Fréttablaðið - 26.11.2022, Page 118

Fréttablaðið - 26.11.2022, Page 118
Hugmyndir fólks um fegurð kvenna hafa sveiflast í gegnum söguna. Líkamsgerðir hafa komið í tísku og dottið úr tísku og virðast slík hjól snúast æ hraðar á 21. öldinni. ninarichter@frettabladid.is Ef marka má stóra miðla vestan- hafs er svokallað áhrifavalda-útlit að detta úr tísku og heróín-þveng- mjóa útlit tíunda áratugarins að snúa aftur, sem vakið hefur hörð viðbrögð. Því hefur löngum verið f leygt að líkami kvenna sé miklu meira en bara líkami. Hugmyndir um ákjós- anlega líkamsgerð konu endur- spegli samfélagið, gildin og jafnvel efnahaginn. Tímaritið Science of People birti stutt ágrip þar sem rætt var um mismunandi tískubylgjur í því til- liti í gegnum söguna. Þar er stiklað á stóru og er erfitt að fullyrða um nákvæmnina, en ýmsar heimildir og listaverk benda þó til þess að tilhneigingin hafi verið í eina átt frekar en aðra. n Tággranna tískan veldur áhyggjum á nýjan leik Egyptaland til forna 1292-1069 f. Kr. Í Egyptalandi til forna þóttu fegurstu kon- urnar vera grannar með nettar axlir, hátt mitti og samhverfa andlitsdrætti. Kynfrelsi var nær því sem tíðkast í vestrænum ríkjum nútímans, skilnaður þótti ekki tiltökumál og kynlíf fyrir hjónaband ekki heldur. Grikkland til forna 400-300 f. Kr. Í Grikklandi til forna þóttu þær konur fegurstar sem voru vel í holdum, þéttar í vexti og ljósar yfirlitum. Forn-Grikkir eiga að hafa verið upp- teknir af formi karlmannslíkamans og hafa gert meiri útlitskröfur til karla en kvenna. Útlitslega þóttu konur vera hálfmisheppnaðar útgáfur, sé vitnað í helstu hugsuði frá þeim tíma. Han-ættarveldið 200 f. Kr.-220 e. Kr. Han-ættarveldið í Kína stóð í tvær aldir fyrir og fram yfir aldamótin. Fegurðarstaðlar kvenna sneru að grönnu mitti, ljósri húð, stórum augum og smáum fótum, síðu dökku hári, hvítum tönnum og rauðum vörum. Fegurðarhugmynd- in um smáa fætur er enn við lýði í Kína. Ítalska endurreisnin 1400-1700 Eins og listaverk frá þessum tíma bera með sér þóttu íturvaxnir líkamar fagrir, stór brjóst, ávalur magi, stórar mjaðmir og ljós húð. Konum var ætlað að endurspegla stöðu eiginmannsins í samfélaginu, bæði í hegðun og útliti. Þéttur líkami og ljóst yfirbragð þótti ákjósanlegt. Viktoríutíminn á Englandi 1837-1901 Á þessum tíma þótti fallegt að vera íturvaxin en mittið átti að vera ofurgrannt og var þeim áhrifum náð með frægum nærklæðnaði, korse- lettinu. Þetta náði fram ýktri stundaglass-lögun sem þykir eftirsóknarverð enn þann dag í dag. Argandi annar áratugur 1920-1930 Nettur og lágur barmur, fyrirferðarlítið mitti, drengjalegur vöxtur og stutt hár var með því flottasta í svokallaðri flapper-tísku annars ára- tugar síðustu aldar. Konur hófu störf á vinnu- markaði á stríðsárunum. Vaxandi iðnvæðingu og verksmiðjustörfunum fylgdi styttra hár, af öryggis- og hreinlætisástæðum. Gullaldar-Hollywood 1930-1950 Á svokölluðum gullaldarárum kvikmyndaborg- arinnar þótti fallegast að konur hefðu ávalar línur, stundaglass-vöxt, stór brjóst og grannt mitti, í anda kyntáknsins Marilyn Monroe. Sjöundi áratugurinn 1960-1970 Á sjöunda áratugnum komst grannur vöxtur aftur í tísku og best var ef konur voru slánalegar í vexti. Langir leggir þóttu fallegir og unglingalegt yfirbragð. Tímabil ofurfyrirsætunnar 1980-1990 Á þessum tíma komu fram mörg frægustu súp- ermódelin sem við þekkjum í dag, konur sem prýddu forsíður sundfatatímarita. Þær voru íþróttamannslega vaxnar, hávaxnar, stæltar en með ávalar línur og stór brjóst og vöðvastælta upphandleggi. Þessari tísku fylgdi ofuráhersla á líkamsrækt og átröskunarbylgja. Heróín-útlitið 1990-2010 Þessi lífseiga bylgja gekk út á að konur skyldu vera eins grannar og mögulegt var. Gríðar- lega lág líkamsþyngd, lítil brjóst og föl húð þótti falleg. Kate Moss var frægasta fyrirsæta þessarar tískubylgju sem sætti harðri gagnrýni, enda héldu lífshættulegar átraskanir áfram að aukast samhliða bylgjunni. Tískubransinn setti í kjölfarið á reglur til að vernda heilsufar fyrirsæta sem gengu tískupallana, eftir að fyrirsætur stigu fram og lýstu alvarlegum veikindum vegna út- litspressu í módelstörfum. Áhrifavaldafegurð 2010-2020 Samfélagsmiðlar og ljósmyndafilterar ýttu undir þessa tilteknu tísku og raunveruleika- þáttastjörnur á borð við Kardashian-systur voru áhrifamiklar. Á þessu tímabili fæddist einnig umræða um inngildingu í tískubrans- anum. Orðræða um fegurð í stærri stærðum varð háværari en nokkru sinni. Þá fóru fegrun- araðgerðir að verða ódýrari og aðgengilegri. Tískubylgjan náði hámarki sínu í heimsfaraldri en nú virðist vera að draga úr. 2022-? Merki eru á lofti um að hið svokallaða „heroin chic“ ofurgranna útlit sé að komast í tísku á ný. Adriana Diaz hjá New York Post birti grein þann 2. nóvember sem bar titilinn „Bye bye booty: Heroin Chic is back“, sem gaf til kynna að ofurgranna útlitið væri aftur í tísku. Þessu til stuðnings birti hún myndir af Kardashian- systrunum sem höfðu fjarlægt púða úr bakhluta og brjóstum, þvengmjóum Miu Miu módelum á tískupöllum nokkrum dögum áður og nýjar myndir af tággrannri ofurfyrirsætunni Bellu Hadid. Blaðamaður The Guardian, Alaina De- mopoulos, skrifaði grein í vikunni þar sem hún gagnrýndi harðlega tilhneigingu tískubransans til að hvetja konur til að svelta sig. Þar er vitnað í leikkonuna og aktívistann Jameelu Jamil, sem sagði á Instagram í tengslum við grein New York Post: „Líkamar okkar eru ekki tískufyrirbæri, segið það með mér! Ég ætla að stofna til ekki- svangrar-tísku, hamingjusamrar-tísku, fokkið- ykkur-tísku. Hvað sem er nema þetta.“ Æskileg kvenleg fegurð og líkamsvöxtur hefur breyst í áranna rás. Fréttamiðlar vestanhafs spá því að ofur- granna útlitið sem kennt er við „heroin-chic“ sem var vinsælt á tíunda áratugnum sé mögulega að koma aftur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 74 Lífið 26. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 26. nóvember 2022 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.