Fréttablaðið - 26.11.2022, Page 124

Fréttablaðið - 26.11.2022, Page 124
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@ frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Kjartan Ólafsson er einn skipuleggjenda ErkiTíðar, elstu raftónlistarhátíðar á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Tónlistarhátíðin ErkiTíð hefst í dag. Hátíðin var haldin í fyrsta sinn árið 1994 og er því elsta raftónlistarhátíð landsins. Íslensk tónlist er í brennidepli á hátíðinni þar sem flutt eru fjörutíu íslensk verk fjögurra kynslóða raf- tónskálda. ninarichter@frettabladid.is Ferill Þorkels Sigurbjörnssonar tón- skálds er í forgrunni á hátíðinni. Að sögn skipuleggjenda á Þorkell heiðurinn af fyrsta raftónlistarverki sem samið hefur verið á Íslandi auk fyrsta tölvutónverksins. Þá efna hátíðin og RÚV til tónverkasam- keppni fyrir ung tónskáld, þar sem þátttakendur semja ný verk með tengingu við Þorkel. Í dag verður slegið upp svoköll- uðum maraþontónleikum í Mengi við Óðinsgötu, þar sem flutt eru sér- valin raftónlistarverk. Tónleikarnir standa frá 15.00 til miðnættis. „Þar eru flutt íslensk verk frá 1959 til dagsins í dag. Þar verða um 20 verk frumflutt,“ segir Kjartan Ólafs- son, tónlistarmaður og einn skipu- leggjenda um dagskrána í Mengi. „Listamennirnir verða sumir á staðnum. Bæði eru þetta vídeóverk og hljóðverk og sum verkin eru fjöl- rása. Þetta er sett upp þannig að maður getur bara farið í tímavél til ársins 1975,“ segir Kjartan og hlær. Að sögn Kjartans er ókeypis inn á flesta viðburði hátíðarinnar. „Þar er hægt að kynna sér íslenska raftón- list og tilraunatónlist sem á sínum tíma var líka svona framúrstefnu- tónlist.“ Athygli vekur að engin verk eftir konur má finna á neinum dagskrár- hluta, en elsta verkið eftir kvenskáld er Adagio eftir Karólínu Eiríks- dóttur frá árinu 1992. „Konur komu seint inn í raftónlistina og ég held að þær séu komnar í meirihluta núna. Þetta var miklu meira kynjabundið áður fyrr. Þegar Sinfóníuhljóm- sveit Íslands byrjaði voru þar mest karlmenn, en núna eru í meirihluta konur.“ Hátíðin var fyrst haldin árið 1994. „Hún var haldin svo til óslitin á tveggja ára fresti til ársins 2000,“ segir Kjartan. „Þá tók ég við sem for- maður Tónskáldafélagsins og fékk þá eina hátíð, eða reyndar tvær. Ég fékk Myrka músíkdaga til að sjá um hana. Ég sá um Myrka músíkdaga í sautján ár ásamt fleirum og þegar það var búið tók ég upp þráðinn aftur. Nú er ErkiTíð sívaxandi hátíð sem vex með hverju árinu. Nú er unga fólkið að koma inn í þetta líka, sem kemur með sinn stíl og sinn tíma, sem er frábært.“ Kjartan segir nýbreytnina ein- kennast af fjölbreytni. „Það sem við sjáum fyrst og fremst er mun meiri fjölbreytni en hefur sést áður. Þar kemur unga fólkið sterkt inn. Það er ekki bundið við neinn stíl og er að móta sinn stíl. Einstaklingur sem listamaður er það mikilvægasta sem til er, með sinn persónulega stíl og sína tónlist, eins og við sjáum með þá þekktustu tónlistarmenn sem við eigum.“ Barnaóperan Robbi rafmagns- heili eftir Þorkel Sigurbjörnsson frá árinu 1968 er dagskrárliður á hátíð- inni. Að sögn Kjartans á óperan alveg jafn sterkt erindi við almenn- ing í dag og þegar hún var samin, ef ekki meira. Orðið rafmagnsheili er forveri orðsins tölva, og leitast verkið meðal annars við að finna nýtt orð yfir nýmælið sem rafheil- arnir voru í þá daga. Kjartan segir Þorkel hafa séð fyrir hversu veiga- mikinn þátt tölvurnar áttu eftir að eiga í lífi fólks. Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar má finna á vefsvæðinu erkitid.is.n Segir fjölbreytni einkenna íslensku raftónlistarsenuna Bæði eru þetta vídeó- verk og hljóðverk og sum verkin eru fjöl- rása. Þetta er sett upp þannig að maður getur bara farið í tímavél til ársins 1975. Kjartan Ólafsson „Það sem mér dettur fyrst í hug – og það er ekki í mínum karakter, en kannski er þetta nýi karakterinn minn, er þetta mál með Heims- meistaramótið og One love-borð- ana sem þeim er meinað að spila með,“ segir Steinunn Rögnvalds- dóttir, félags- og kynjafræðingur. „OneLove„-armböndin eru hluti af herferð sem er ætlað að taka afstöðu gegn mismunun. Steinunn kveðst reið yfir lyddu- skap FIFA í Katar sem hafi afráðið að banna armböndin að beiðni stjórnvalda þar í landi. Gagnrýni Steinunnar á mótið snýr einnig að dómgæslunni. „Ég veit ekki mikið en ég hélt að dómarar ættu að fylgja leikjabók og ekki fylgja skipunum frá FIFA um hvernig þeir eiga að dæma sína leiki,“ segir hún. Steinunn segir samstöðuaðgerðir þýska landsliðsins vera hjóm eitt við hliðina á því sem íranska lands- liðið gerði til að sýna samlöndum sínum stuðning með að syngja ekki sinn eigin þjóðsöng á mótinu. Alda óeirða ríkir í Íran vegna mannrétt- indabrota klerkastjórnarinnar gegn eigin þegnum. „Maður verður ótrúlega hugsi yfir því hvað skiptir máli í þessu sam- hengi, hvernig við metum hlutina og hvað við metum. Metum við hæfni í að spila fótbolta eða hug- rekki, samstöðu og mann- réttindi? Það er umhugs- unarvert af því að þetta sport er ekkert án fólksins sem tekur þátt og horfir og mætir og styður.“ n Dáist að hugrekki íranska landsliðsins n Frétt vikunnar Steinunn Rögnvaldsdóttir, félags- og kynjafræðingur: Steinunn Rögnvaldsdóttir, félags- og kynjafræðingur Holtagörðum, Reykjavík | Smáratorgi, Kópavogi | Dalsbraut 1, Akureyri | Skeiði 1, Ísafirði 20-50% AFSLÁTTUR ALLA HELGINA * Afsláttur gildir af öllum vörum nema Simba 80 Lífið 26. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.