Stétt með stétt - 01.05.1941, Blaðsíða 23
STETT MEÐ STÉTT
19
•— Það þaut bíll fram hjá húsinu.
Það buldi í jörðinni og hvein í loft-
iþu. — Hávaðinn barst inn um gtugg-
ann og vakti hana >—
— Hún opnaði augun, horfði rann-
sakandi um herbergið eins og hún
þyrfti að átta sig á einhverju, en hún
sá ekkert athugunarvert. — Hún dró
dofna hægri hendina undan höfðinu
og fór að nudda hana með þeirri
vinstri. — Smá saman fór dofinn úr
hendinni, þá spennti hún greipar,
teygði handleggina upp yfir höfuð
sér, lét lófana snúa upp og treygði sig.
— Hún geyspaði. — Ha — ha-a —
a — Þessi svefn — antdvarpaði hún.
— Hún vildi svo gjarnan sofa meira.
— Hún leit á kl. Kl. var 9. — Ö, guð
— Já, það var satt. — En að muna
ekki strax eftir því. — Og á augna-
bliki var öll löngun til að sofa horfin.
— Skyldi hann koma. — Ánægjulegt
bros færðist yfir varir hennar og jók
fegurð hennar. — Hún hafði svo gam-
an af þessu — þetta var svo spenn-
andi og það kitlaði svo fínt. — Já að
hugsa sér. — Hann kom nærri á
hverjum morgni — það var svo spenn-
andi. — Það voru 3 mánuðir síðan
hún flutti í bæinn. Fyrir þann tíma
þekkti hún ekkert til bæjarlífsins,
nema það sem hún hafði kynnst gegn-
um ýmsar sögur sem gengu mann frá
manni Oig voru- aðai uppistaðan í eld-
húsumræðum þorpsins þar sem hún
ólst upp. — Sögurnar höfðu svifið
gegn um huga hennar og skapað
dulda löngun til að vera aðalpersónan
í einni slíkri sögu. Vitanlega án þess
að nokkur vissi nema hún og kannske
kunningjastúlkurnar. — Svoi fór hún
að leita fyrir sér. — Fyrst með Gejra
Athugið jafnan að nafnið
sé á þeim vinnufötum er þér
kaupið.
Happdrætti
Hánkóla Islands
1 3. flokki eru
4 0 2 vinningar
Samtals 87700 kr.
Dregið verður 10. maí.
Athugið ákvæðin um skatt-
frelsi vinninganna.