Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Síða 4

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Síða 4
V A K A 2. árg. . Jan.-marz 1939 Hugrekki er ekki einstök dyggð, ekki sérstakur þáttur í skapgerð manna, sem greindur verði frá öðrum. Það er undirstaða allra dyggða. Sannsögli, trúmennska, orðheldni og allir aðrir góðir eiginleikar eiga œtt sína að rekja til hugrekkis. Það er grundvöllur skapgerðarinnar. Á því byggist festa og öryggi í skaphöfn. „Heimskur er hugmestur," segir forn íslenzkur málsháttur. — Hann á ekki við um hugrekki og hugrakkan mann, heldur um fífl- dirfsku og fífldjarfan mann. Á þvi tvennu er reginmunur. Heimska og fífldirfska fara oft saman. Hið síðara siglir í kjölfar þess fyrra. Skynsemi útilokar hinsvegar fífldirfsku. — Fífldirfska krefst ekki hugrekkis. Hún á jafnan rœtur sínar í hugleysi. — Tökum dœmi: Hópur manna skorar á tvo menn að stökkva niður af háum kletti. Stökkið er tilgangslaust, engum í hag. Engum getur dulizt, að það hefir veruleg meiðsl í för með sér. En það á að sýna, að þessir tveir menn „þori“ að stökkva. Annar þeirra er hugrakkur, hinn hugdeigur. Hvor þessara manna vœri líklegri til að stökkva niður af klettinum? Án efa sá hugdeigi. Hann mundi ekki þola eggjunarorð þeirra, sem skoruðu á hann. Hann hefði ekki hugrekki til að hlusta á þá, sem brygðu honum um hugleysi. Af einu saman hugleysi mundi hann hœtta limum sinum í fifldjörfu stökki. Hinn hugrakki mundi hins- vegar ekki hirða um hina tilgangslausu áskorun. Hann er gceddur þeim andlega styrk, sem hrópyrði hafa ekki áhrif á. Hann hefir sínar skoðanir og breytir samkvœmt þeim. Hann tekur afstöðu og fylgir henni fram, þótt hann sé einn á móti mörgum. Slíkt er hugrekkið. Aðalsmerki þess er það andans ástand einstaklinganna, sem knýr til að breyta samkvœmt eigin sannfœringu, gera það, sem menn vita sannast og réttast, meta hugsjónir sínar meira en veraldleg gœðí, öryggi og fylgi fjöldans. Menn geta tamið sér hugrekki. í hvert sinn, sem yfirunninn er ótti, eru menn miklum mun nœr því að vera hugrakkir en áður. Hugrekkið vex þó einkum verulega, ef menn gera sér að reglu að meta innra gildi meira en ytra, andleg verðmœti meira en veraldleg. Hugrekki er undirstaða lífshamingju. Hamingjan er fráhverf þeim, sem ávallt beygja sig í auðmýkt og meta einskis persónulega afstöðu. Þeir kunna að hafa nóg að bíta og brenna, sem svo er kallað, en hamingjusamir eru þeir ekki. Hins vegar á hamingjan ávallt samleið með þeim, sem eru trúir hugsjónum sínum og sann- fœringu, og líta á starf og baráttu sem þroskaleiðir. 2 Argus.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.