Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Side 7

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Side 7
2. árg. . Jan.-marz 1939 V A K A Halldór Kiljan Laxness (til hægri). Knútur Arngrímsson (til vinstri). inda frjálsu þjóðanna, hefði ver- ið álíka og að fá óvita dýrmæta bók í hendur. Hin óupplýsta og félagslega vanþroska þjóð mis- notar frelsið af því að hún kann ekki með það að fara, og barnið eyðileggur bókina, af því að það ber ekki skyn á gildi hennar. Byltingin í Rússlandi hafði því ekki aðra stjórnskipulagsbreyt- ingu í för með sér en þá, að hún steypti af stóli gömlu formi ein- veldis og setti nýja tegund ein- ræðis í staðinn. Hin forna yfir- stétt landsins missti fé og völd, líf og mannréttindi, en fámennur kommúnistaflokkur, oddalið bylt- ingarinnar, varð arftaki hennar. Eigi að síður hefir byltingin haft sína þýðingu. Á síðustu árum hafa margvíslegar framfarir átt sér stað í Rússlandi. Framleiðslan hefir tekið stakkaskiptum. Á sviði vísinda og tækni hafa orðið stór- felldar framfarir. Og það hefir mikið verið gert til þess að manna þjóðina, þó að ærið sé það ein- hliða að vísu. En þetta þýddi ekki að bjóða íslendingum eða íbúum hinna gömlu lýðræðisríkja yfirleitt. — Frelsið er skilyrði til þess að þeir leggi sig fram og njóti sín, en ekki reiddur hnefi óskeikuls drottnara. — Og Halldór Laxness leggur á- herzlu á það í bók sinni, að Rússa annars vegar og íbúa þessara rlkja hins vegar megi ekki bera saman, þvi að um þá aðila skipti svo mjög í tvö horn. Þá er röðin komin að „þriðja ríkinu“. — Vegna æskunnar í landinu, sem ekki man atburði stríðsáranna og tímabilsins þar á eftir ,verður að telja nauðsynlegt að rifja upp í stórum dráttum sögu Þýzkalands síðan í ófriðar- lok. — 28. júní 1919 var formlegur endir gerður á heimsstyrjöldina með friðarsamningunum í Ver- sölum. Þjóðverjum voru þar settir harðir kostir, sem þeir neyddust til að sætta sig við. Þeim var gert að láta af hendi stór landflæmi í Evrópu og nýlendur sínar í öðr- um heimsálfum, ströng fyrirmæli 5

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.