Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Page 17

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Page 17
2. árg. . Jan.-marz 1939 V A K A Runólfur Sveinsson: Þegn^kylda Á Alþingi 1903 bar Hermann heitinn Jónasson frá Þingeyrum fram tillögu um þegnskylduvinnu. Hún vakti mikla eftirtekt og umræður, en náði ekki samþykkti þings- ins. — Runólfur Sveinsson, skólastjóri á Hvanneyri, rœðir þetta mál í eftirfarandi grein, og telur hann sterk rök mcela með því, að þegnskyldan verði tekin uþp nú. — Vaka mun rœða þessa hugmynd nánar síðar. I. ft heyrist í ræöu talað um menn- ingarþjóðir, eða hinn menntaða heim, og oft er í ritum mikið um þessi hugtök skrifuð. — Þótt flestir virðist skilja, við hvað sé átt, þegar talað er um menn- ingarþjóðir, þá býst ég við, að mörgum vefðist tunga um tönn, ef þeir væru beðnir um skýringu á því, hvað væri menn- ingarþjóð og hvað ekki. Það er til margskonar skipting á mannkyninu, s. s. eftir upp- runa, löndum, hörundslit og ýmsu fleiru. Þessar og fleiri aðgrein- ingar falla sjaldnast saman við það, þegar við tölum um og ger- um greinarmun á menningar- þjóðum annars vegar og villi- mönnum eða skrælingjum hins vegar. Um uppruna manna hér á þessum hnetti, eru menn tæpast á eitt sáttir ennþá og langt í fjarska og óljóst er um hina fyrstu sambúð mannanna eða myndun þjóðfélaganna á jörð- inni. Hitt er líklegt, að félags- skapur í einhverri mynd, t. d. milli karls og konu, muni vera jafn gamall mannkyninu. Frá hinum frumstæðasta félagsskap hafa svo þjóðfélögin myndazt og þróazt um þúsundir ára. Til eru menn, sem álíta að villi- mennirnir séu einu frjalsu menn- irnir hér á jörðinni. Þeir hafi eng- in lög eða reglur að lifa eftir og geti því hver einstaklingur hag- að sér til orða og verka eftir sín- um eigin geðþótta. En einstak- lingar menningarþjóðanna séu bundnir og rígskorðaðir á einn bás eftir óteljandi lagaboðum, reglum og venjum, og geti því 15

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.