Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Page 18

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Page 18
V A K A 2. árg. . Jan.-marz 1939 aldrei um frjálst höfuð strokið. Það mun heldur ekki óalgengur hugsunarháttur, bæði hér á landi og annars staðar, að öll lög séu aðeins til þvingunar, og skyldi menn til eins og annars, og gleymist þá oft alveg þau rétt- indi, sem mönnum eru sköpuð með lögum. Við þessu er í stuttu máli þetta að segja: í fyrsta lagi hafa villimanna- flokkarnir sín lög og venjur og oft miklu strangari heldur en nokkur menningarþjóð. Og þótt lög villimannanna séu ekki skráð, þá er þess vandlega gætt, að þeim sé hlýtt og eru refsingar mjög harðar, ef útaf er brugðið. í öðru lagi verða einstaklingar þeirra þjóðfélaga, sem telja sig tilheyra menningunni, að skilja að öll lög og reglur, sem raun- verulega skapa þjóðfélögin, hafa ávallt orðið til fyrir þörf einstak- linganna sjálfra og eru fyrst og fremst miðuð við það, að þau séu borgurunum, hverjum og einum og í heild, fyrir beztu. Lögin skapa okkur réttindi, og sá, sem krefst réttinda, verður að ganga undir skyldur í hlutfalli við þau. Hverjum einstakling innan hvers þjóðfélags ber að leggja fram, beint og óbeint, vinnu og fé til opinberra gjalda, sem kall- að er, eða til reksturs ríkisins, — þjóðfélagsins í heild. Hversu mik- ið þetta framlag er, fer eftir ýms- um ástæðum, en búast má við, að hjá fámennum þjóðum verði þetta framlag hlutfallslega hærra 16 heldur en þeim fjölmennu, og hærra í strjálbyggðu landi, en þéttbyggðu. Að þessu leyti stönd- um við íslendingar illa að vígi að reka okkar þjóðarbúskap. Við komumst ekki hjá því, að hafa fjölda embættismanna. Við verð- um að byggja og reka skóla. Við verðum að halda uppi samgöng- um bæði á sjó og landi o. m. fl. Samgöngumálin eru og verða þjóðfélagi okkar alveg sérstaklega erfið, vegna þess hve landið er strjálbýlt, óslétt, vatnaríkt og snjóþungt. — í margar aldir voru hér engir vegir, engar brýr og engar bryggjur eða lendingar- staðir nema frá náttúrunnar hendi. Á landi voru aðein:; óljósir troðningar eftir menn og hesta, og margar stórárnar illar yfir- ferðar. Það tók marga daga að komast vegalengdir, sem bílar nútímans þjóta á fáum klukku- stundum. Og að komast yfir spillt vötn að vetrarlagi gat tekið fleiri daga, sem bifreið ekur í dag á broti úr mínútu. Síðasta manns- aldurinn, og þó sérstaklega síð- ustu einn til tvo áratugina, hafa íslendingar lagt fram geysifé í samgöngur bæði á sjó og landi, miðað við íbúatölu og efnahag landsins. Það verður ekki hægt að halda áfram með sama hraða í lagningu vega og brúargerðum. Pjárhagur landsins leyfir það ekki. Vegirnir eru þó landbúnaði okkar sú lífæð, sem flytur nær- ingu framleiðslunnar til og frá innan- og utanlands mörkuðum. Þrátt fyrir það, að síðustu 10 árin

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.