Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Blaðsíða 32
V A K A 2. árg. . Jan.-marz 1939
ár ætti sér stað stórfellt verðfall
í einhverri aðalframleiðsluvöru
þjóðarinnar, t. d. fiski, og meðal-
alinin hrapaði af þeim sökum
niður í 90 aura. Þá ættu laun um-
ræddra manna að lækka í kr.
3240.00.
Með þessum hætti gæti kerfið
haldið áfram alla tíð og þá hefði
það áhrif á hag allra landsmanna,
hvaða verðlag væri á okkar fram-
leiðsluvörum. Lifnaðarhættir allra
yrðu þá að nokkru leyti að miðast
við hag framleiðslunnar, sem er
grundvöllur allrar fjármálavel-
gengni í þjóðfélaginu. Hvaða verð
er á aðfluttum vörum á hverjum
tíma, hefir áhrif á hag allra
landsmanna, framleiðenda jafnt
sem annarra. Að taka tillit til
þess við breytingar á launakjör-
um, eru því óeðlileg sérréttindi til
handa launastéttunum og full-
komið ranglæti, sem hlýtur að
skapa röskun á þjóðfélaginu, eins
og nú er svo átakanlega komið
í'ljós.
Okkar launamál eru, eins og
stendur, í óviðundani óreiðu eins
og margt annað. Veldur því meðal
annars þrekleysi af hálfu valda-
manna þjóðfélagsins. Að koma
þeim í fast og heppilegt horf, er
vandasamt og erfitt verk, en það
verður að vinnast. Á sama hátt
er það erfitt verk og vandamikið,
að koma því kerfi, sem hér hefir
verið drepið á. En hitt er víst, að
þegar það væri komið á, þá er
auðvelt að framfylgja því, og það
myndi hafa góð áhrif í þá átt að
skapa friðsamlegt og heillaríkt
samstarf milli stétta þjóðfélags-
ins meö vaxandi almennum skiln-
ingi á gildi framleiðslunnar.
V esturlieims-
blöðin
V ökumenn haja nú hafizt handa um að
útvega Vesturheimsblöðunum nokkra tugi borg-
andi kaúpenda hér á íslandi. Er þetta einn þátt-
urinn í því starfi Vökumanna að auka samvinnu
og samband milli tslendinga fyrir vestan haf og
hér heima. Blöðin, Lögberg og Heimskringla, eru
mjög þýðingarmikill styrkur fyrir landana í Ame-
ríku í baráttu þeirra við að viðhalda íslenzku máli
og menningu þar vestra.
Hvort blaðið kostar kr. 15.00 árg. og er óskað
eftir því, að b œði blöðin séu keypt, til þess að
enginn munur sé á þeim gerður.
Þeir, sem kynnu að vilja leggja sinn skerf •
til stuðnings lessu máli með því að gerast kaup-
endur að blöðunum, geta sent pöntun til Egils
Bjarnasonar, box 961 Reykjavík.
30