Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Side 38
VAKA 2. árg. . Jan.-marz 1939
andlega aðstoð frá Þýzkalandi.
Eitt af þessum „Bund“ í bænum
Coli í Colombia við landamæri
Panama lætur meðlimi sína
stunda reglulegar heræfingar.
Þýzkaland hefir tekið íþrótt-
irnar mjög kröftuglega í sína
þjónustu. í íþróttamálum er jafn-
vel sérstök utanríkismáladeild
undir stjórn Schulenberg hertoga.
Heiðursmerki fyrir íþróttir og
líkamleg afrek og gjörvileika fá
vitanlega einungis þeir, sem í
„anda og sannleika“ eru tengdir
hinu nýja Þýzkalandi. Þau eru
notuð sem agn fyrir börn og ung-
linga og hafa sín áhrif. Schulen-
berg hefir fjölda íþróttamanna
og íþróttafræðinga yfir að ráða,
sem sífellt básúna kenningar sín-
ar um íþróttir, karlmennsku og
nazisma og senda þær á bylgjum
útvarpsins til hinnar fjarlægu
heimsálfu.
í Brazilíu, Argentínu og mörg-
um öðrum ríkjum Suður-Ameríku
hefir önnur og þriðja kynslóðin,
afkomendur þýzkra innflytjenda,
verið „endurheimt", sem kallað
er, þeir hafa aftur fengið andlegt
heimkynni innan vébanda ný-
þýzkrar menningar. Þess er getið
til, að í Brazilíu muni innan
skamms myndazt hálfsjálfstætt
ríki þýzkra manna.
Sendiherraskrifstofur Þýzka-
lands í Suður-Ameríku hafa
flestar einskonar aukaskrifstofur,
þar sem vitanlega er starfað að
útbreiðslu nazismans. Sendiboðar
Þýzkalands geta unnið þar ó-
áreittir í helgi sendiherraskrif-
36
stofanna. Þeir semja þar skýrslur
sínar og skrár og þeir eru í beinu
sambandi við hina þekktu leyni-
lögreglu Þýzkalands, Gestopo.
Fulltrúar Gestapo ferðast í
margskonar dulargervum um
Suður-Ameríku. Sumir þeirra eru
verzlunarmenn eða sérfræðingar
og hafa þar fasta búsetu. Þeir
gefa fyrst og fremst upplýsingar
um alla menn af þýzkum ættum
í sínú umdæmi og alla andúð eða
mótspyrnu gegn nazistiskum
kenningum yfirleitt. Á þennan
hátt getur Þýzkaiand fylgzt með
öllu, sem er áð gerast í fjarlæg-
ustu löndum. Það veit, hvenær á
að herða á skrúfunum. Eftir þrí-
veldasamninginn milli Þjóðverja,
ítala og Japana, hefir ýmislegt
komið fram, sem bendir til sam-
vinnu milli leynierindreka þess-
ara þjóða.
*
Barátta nazismans er þannig
ekki einungis barátta um þýzka
verzlun, heldur einnig barátta um
líkama og sál allra manna af
þýzkum ættum, sem búsettir eru
í Suður-Ameríku. Að Gyðingum
einum undanskildum, má svo
heita, að þessi barátta hafi haft
áhrif í flestöllum tilfellum, jafn-
vel þó að andnazistiska blaðið
„Argentinisches Tageblatt“ sé
enn gefið út. Nýlega var gerð
tilraun til að brenna hús það, sem
blaðið hefir í bækistöð sína.
Þýzkir kaupmenn hafa nauðug-
ir viljugir orðið að beygja sig und-
ir hið þýzka áhrifavald. Þeir, sem