Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Page 39
2. árg. . Jan.-marz 1939 V A K A
sýna mótþróa, tapa strax við-
skiptum samlanda sinna og þeir
eru óvirtir og hrjáðir á marga
vegu. Gyðingarnar hafa heldur
ekki gleymzt í þessari baráttu.
Yfirvofandi viðskiptabann hefir
jafnvel hrætt innfædda suður-
ameríkanska kaupmenn til þess
að slíta öllu viðskiptasamneyti við
Gyðinga. Fjölda Gyðinga hefir
verið sagt upp atvinnu og miljón-
um níðrita um Gyðinga hefir
verið dreift út. Argentínskur
Þjóðverji að nafni Hugo Wast
hefir í riti sínu „Gull“ (Oro)
krafizt algjörðrar „útrýmingar"
á Gyðingakynstofninum. Nazistar
hafa dreift riti þessu frá Argen-
tínu til Mexico.
Barátta gegn katólskum mönn-
um, sem mjög hefir borið á í
Þýzkalandi, er grafin eilífri þögn
í hinum katólsku ríkjum Suður-
Ameríku. í stað þess hafa Gyð-
ingaofsóknirnar á mjög lævísleg-
an hátt verið gerðar að sérmáli
katólskra manna og liður í trúar-
baráttu þeirra. Hatursfullir sálm-
ar um Gyðinga sem erkifjanda
katólskrar trúar eru prentaðir
aftan á skrautkort af Maríu guðs-
móður og dreift út meðal almenn-
ings.
Um langan aldur hefir hin
spanska Ameríka verið víðfræg
fyrir vinsamlega sambúð ólíkra
kynflokka og viðurkennt jafn-
rétti. Allt slíkt heyrir nú fortíð-
inni til. Hinn langi armur nazist-
isks kynflokkahaturs hefir seilzt
yfir Atlantshafið.
*
í sextán klukkutíma úr hverj-
um sólarhring útvarpar Berlín
til Suður-Ameríku á spönsku og
portúgölsku. Með furðulegri verk-
fræðilegri fullkomnun hefir Þjóð-
verjum tekizt að gera útvarp sitt
svo sterkt og skýrt, að svo má
heita að það sé einrátt í Suður-
Ameríku. í Guatemala-blöðum
eru næstum eingöngu birtar
þýzkar útvarpsdagskrár. í inn-
flutningsskýrslum sama ríkis frá
desembermánuði 1937, má sjá, að
inn hafa verið flutt 8800 þýzk
útvarpstæki. Tæki þessi voru seld
mjög lágu verði og sum jafnvel
gefin, en öll voru þau þannig gerð,
að ekki var hægt að ná til ann-
arra en þýzkra útvarpsstöðva.
Kvikmyndirnar hafa orðið Þjóð-
verjum erfiðari viðfangs en út-
varpið. íbúar Suður-Ameríku voru
vanir enskum myndum og skildu
enskuna betur en þýzku. Fjöldi
þýzkra „skóla“-mynda hefir þó
verið lánaður kvikmyndahúsum,
skólum o. fl. án endurgjalds.
Þá hefir ákaflega mikið verið
gert að því að bjóða suður-amer-
ískum borgurum til náms í Þýzka-
landi. Stórir hópar fara mánað-
arlega frá Braziliu til námsdval-
ar hinum megin hafsins. Náms-
menn þessir koma að jafnaði
aftur sem eldheitir áhangendur
nazismans og boðberar kenninga
hans. Svo er og með fjölda hern-
aðarsérfræðinga, er þiggja þýzk
heimboð. Á ýmsan hátt má segja,
að nazismi finni frjóan jarðveg
í hinum blóðöru og oft gjörræðis-
hneigðu Suður-Ameríkubúum.
37