Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Síða 40
VAKA 2. árg. . Jan.-marz 1939
*
Hver er svo niðurstaða alls
þessa? Er það nægileg skýring,
að hér sé verið að taerjast um
verzlun og markaði? Er hér ein-
ungis að ræða um venjulega hrá-
efnaþörf stórrar þjóðar og mark-
að fyrir vélar og vopn? Engan
veginn verður það skilið á þann
veg einn. Baráttan stendur um
miklu umfangsmeiri hluti. Það er
barátta um heimsvöld. Það er
baráttan um það, að gera Suður-
Ameríku hluta af varnarlínu
Stór-Þýzkalands. Ef Þjóðverjar
ganga þaðan með fullan sigur
af hólmi, geta örlög brezka heims-
veldisins leikið á þræði. Argen-
tina er eitt af þýðingarmestu
matforðabúrum Bretlands. Ar-
gentina og Brazilia eru ómissandi
aðstoðarhlekkir í keðju brezka
heimsveldisins. Á ófriðartímum
getur líka olía Venezuela og
Mexiko verið bilið milli lífs og
dauða.
Markmið Þýzkalands er til að
byrja með það að gera Suður-
Ameríkuríkin sér hliðholl í stríði
Til þess að ná því takmarki má
engan tíma missa. Stríð getur
komið fyrr en varir. Þótt Þjóð-
verjar geri sér ekki vonir um op-
inberan stuðning Suður-Ameríku,
getur leynilegur stuðningur orðið
óendanlega dýrmætur. Tregða á
sölu matvara, þegar mikið ríður
á, getur t. d. verið meira virði en
mörg og vel búin herskip. Þannig
stendur Þýzkaland mun betur að
vígi nú en fyrir heimsstyrjöldina
38
f N
r
Eg skorsi
á alla . . .
skulýður, tímans kröfur kalla,
hvetja þig til starfs og brœðralags.
Út við sœ, og upp til hárra fjalla
óma nýjar raddir: ver til taks.
Hefjum merki hreysti,
frœgðar, sóma,
hefjum það mót Ijósi sólardags,
svo verði ísland vafið frœgðarljóma,
vinnum öll að menning þjóðfélags.
Setjum takmark, göngum vel
að verki,
voru landi gerumst óskabörn,
vinnum öruggt undir hreinu merki,
œtíð djörf í sókn, og traust í vörn.
Eins og brœður berjumst,
sigrum, dugum,
bregðumst aldrei trausti föðurlands.
Verndum sól og vor í okkar hugum,
vinir tryggir gerumst sannleikans.
Niðjar fslands, nóg er til að vinna
naktar skriður víða bíða enn,
nú er þörf að neyta krafta sinna,
nú skal sýna glaða, frjálsa menn.
Ég skora á alla unga, hrausta drengi
að yrkja,grœða og prýða landið sitt.
Að koma öllu í œðra og betra gengi,
œskulýður, það er hlutverk þitt.
Böðvar Gtjðlaugsson.
síðustu, og trompin, sem það
heldur í Suður-Ameríku eru mörg
og þýðingarmikil.