Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Page 48
V A K A 2. árg. . Jan.-marz 1939
Jónas Jónsson:
II íii lieita lífstrií
Fyrir stuttu síðan flutti eitt
hið merkasta blað í heimi,
Manchester Guardian, grein um
ísland. Þar var því haldið fram,
að þýzkir nazistar hefðu í frammi
óleyfilegan undirróður hér á landi,
og að hér væri í leyni flokkur
manna, sem ætlaði að taka á móti
vopnum frá útlöndum, til að
beita móti samlöndum sínum.
Með þessu væri efnt hér til bylt-
ingar. Núverandi þjóðskipulag
ætti að hverfa. Hér ætti að
koma leppríki, háð gefendum
vopnanna, sem notuð hefðu ver-
ið til að svipta þjóðina stjórn-
frelsi, trúfrelsi, skoðanafrelsi,
málfrelsi, hugsanafrelsi. f stuttu
máli: í hinu nýja ríki myndi allt
persónufrelsi vera dauðadæmt.
Til hvers áttu þessir undarlegu
hlutir að gerast, eftir því sem
Manchester Guardian segir? Til
þess að Þjóðverjar gætu haft hér
bækistöð í ófriði móti Englend-
ingum, fyrir kafbáta og flugvélar.
ísland væri þá orðið leikvöllur
í heiftarstríði tveggja frændþjóða
íslendinga, jafnframt því og þær
eru mestu herþjóðir heimsins.
Manchester Guardian er yfir-
leitt mjög áreiðanlegt blað. En
það leggur enga sönnun fram
fyrir máli sínu. Og við íslendingar
vonum, að enga sönnun sé hægt
46
að leggja fram í því skyni, að
hér séu engir menn til, sem vilji
framselja landið í hendur erlendu
valdi.
En hér á landi er sannanlega til
flokkur, sem lýtur erlendu valdi.
Kommúnistar fara ekki dult með
að þeir eru háðir yfireftirliti í
Rússlandi. Þeir heyra til pólitísku
trúarfélagi, sem hefir sinn páfa
og sitt kirkjuráð í Rússlandi. —
Talsvert mikið af æskumönnum í
landinu tilheyrir þessum söfnuði.
Að lífsskoðun eru hinir sanntrú-
uðu í þessum söfnuði fyrst og
fremst þegnar í veldi Rússa, en
þar næst íslendingar.
Alstaðar þar, sem kommúnistar
hafa bækistöð, vex upp nazismi
í einhverri mynd. Það má þess
vegna fullyrða, að hér á landi
eru til drög að tveim ofbeldis-
flokkum, báðum ættjarðarlausum
í eðli sínu. Báðir fúsir til ofbeld-
isathafna. Báðir trúarlega bundn-
ir við erlend yfirráð. Báðir líklegir
til að geta flutt erlendan ófrið
inn í landið.
Og nú er svo komið, að stór-
þjóðirnar hafa veitt eftirtekt
þessum sjúkdómseinkennum í
þjóðlífi íslendinga. Þessi einkenni
eru ekki á háu stigi. Margfaldlega
mestur hluti þjóðarinnar er
rammíslenzkur og þjóðlegur í