Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Síða 50

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Síða 50
VAKA 2. árg. . Jan.-marz 1939 lSækiir Merkir samtíðarmenn nefnist 4. bindi af Komandi ár, eftir Jónas Jónsson. Bókin inniheldur þrjátíu og tvær minningargreinar, og eru flestar greinarnar dánarminningar. Hin alkunna ritsnilld höfundarins nýtur sín vel í þessari bók, sem er mjög skemmtileg aflestrar. Auk þess geymir hún merkileg drög að sögu mesta framfaratímabils íslenzku þjóðarinnar. — Útgefandinn er Samband ungra Framsóknarmanna. Læknirinn eftir Victor Heiser, er starfssaga athafnamikils læknis, sem leggur á margt gerva hönd og kemur víða við sögu. Bókin er skemmtileg aflestrar, full af æfintýrum og furðulegum at- burðum, en nokkuð reyfarakennd á köflum. — Þýðandi er Freysteinn Gunnarsson en ísafoldarprentsmiðja útgefandi. Belgjurtir heitir myndarlegt rit, sem Áburðarsala rikisins sendir frá sér. Höfundurinn er Ólafur Jónsson framkvæmdastjóri. í bókinni er að finna fræðilegt yfirlit um belgjurtirnar, eðli þeirra, eiginleika og þýðingu fyrir ræktunina. Síðan segir frá aðalárangri 9 ára fræðilegra tilrauna með ræktun belgjurta og um hagnýtingu þessara jurta. Undir heiðum himni, ljóðabók eftir Jón Þórðarson frá Borgarholti, kom út fyrir síðustu jól. Kvæðin fjalla flest um nátturu landsins, ferðalög og útilíf. Þau eru flest snotur, en tilþrif eru lítil í þeim. Höfundurinn er ekki líklegur til að setjast á bekk með stórskáldum þjóðarinnar, þótt eigi sé ólíklegt, að honum vaxi nokkuð ásmegin hér eftir. En innan skamms áttar hin heilbrigða æska í landinu sig til fulls á því, að í Vöku eru sett full- komin grið milli lýðræðisflokk- anna. Og þá byrjar æskan að fylkja liði um hin sameiginlegu áhugamál okkar íslendinga, sem eiga ættjörð. Vökumenn fylkja liði undir fána, sem heitir Hvít- bláinn. Þeir hafa hersöng með hinum ódauðlegu ljóðlínum um þetta fagra merki: ... djúv sem blámi himinhœða, hrein sem jökultindsins brún. Og síðan byrjar hið víðfeðma starf: Efling heimilanna. Vernd- un móðurmálsins. Barátta fyrir 48 frelsi og sjálfstæði. Barátta við eitur áfengis og ofbeldis. Barátta fyrir andlegri sameiningu og manndómi hins íslenzka kyn- stofns. Hér eru nefnd nokkur einkenni í hinni nýju heitu lífstrú æsk- unnar í landinu. Næsta vetur mun Vökumannahreyfingin halda inn- reið sína í alla skóla landsins, þar sem eitur ofbeldishugsjóna, á- fengis eða svefns hins dáðlausa sofandi sljóleika hefir ekki gegn- sýrt sálir nemenda og kennara. Þá reynir á, hve víða sú þrenning á sér vígi, sem geta staðizt hina heitu lífstrú Vökumanna.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.