Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Page 77

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Page 77
2. árg. . Jan.-marz 1939 VAK A urnar höfðu að flestu leyti ger- breytzt, miðað við hina síðustu tvo til þrjá ártugi. Þannig var við- horfið, þegar Vökumenn hófu göngu sína. Nýrra félagslegra á- taka var vissulega þörf. Stofnun Vökumannahreyfingarinnar var þar hið nauðsynlega og eðlilega svar. í slíku fólst eigi nein árás á ungmennafélögin. Hér þurfti að starfa á öðrum vettvangi held- ur en þau höfðu helgað sér. í starfi sínu höfðu þau jafnan haslað sér völl utan hinnar stjórnmálalegu baráttu. Og vafa- samt var, hvort rétt væri að beit- ast fyrir því, að þau tækju þar upp nýja stefnu. En hér var einmitt þörf stjórn málalegra átaka til verndar lýð- ræðinu og lýðræðisflokkunum í landinu. Hinir erlendu og óþjóð- legu öfgaflokkar leituðu nú hér landsvistar og sóttu nokkuð á, sérstaklega meðal hinna yngri manna og kvenna. Markmið þeirra og vinnubrögð eru með öllu fjarlæg íslenzkri hygð og íslenzk- um aðstæðum. Það getur aldrei samræmzt íslenzkri þjóðarsál að kropið sé að fótskör einvalds- herranna eins og nú gera fylgj- endur Hitlers og Stalins. íslenzka þjóðin yrði þá eins og rótslitin planta í nýjum og óhæfum jarð- vegi. Nei, hér mátti eigi fljóta sof- andi að feigðar ósi. Það varð að gera alvarlegri tilraun til að sam- eina lýðræðisöflin í landinu — ekki einungis til varnar — heldur og til sóknar gegn þeim, sem kalla vilja feigð á núverandi þjóðskipu- lag. Allir lýðræðissinnar hlutu að fagna slíkri tilraun — ungmenna- félagar eigi síður en aðrir, því að langmestur hluti þeirra, er ein- dregið fylgjandi lýöræðinu. Það var eðlilegt, að hin yngri kynslóð myndaði hér brjóstfylkinguna til sóknar og átaka. Æskan getur ekki látið sig engu skipta, hversu því ríki farnast, sem síðar á að verða hennar óðalsland. Vökumenn hófu líka starfsemi sína í skólunum, þar sem ung- mennafélögin voru ekki starfandi. í þessum stofnunum höfðu ein- ræðisstefnurnar látið allmikið á sér bera, það var því eigi óeðli- legt, þótt andófið gegn þeim væri hafið þar. Hér hefir verið bent á megin viðfangsefni Vökumanna: Að fá sem allra flesta Íslendínga til þess að slá skjaldðorg um lýð- rœði og persónufrelsi í landinu. Mörg önnur viðfangsefni munu þeir einnig láta til sín taka. Þeir munu berjast móti áfengisbölinu og fyrir meiri háttprýði í allri umgengni manna. Þeir munu leitast við að kveðja sem bezt hljóðs þeirri skoðun meðal yngri kynslóðarinnar, að fyrr beri að gera kröfur til sjálfs sín heldur en annarra, hins opinbera. Einnig vilja þeir vernda og styrkja tengsl milli allra barna íslenzku þjóðarinnar, hvar á hnettinum, sem þau eru búsett. Fleira skal eigi talið hér. Ung- mennafélögin munu líka halda áfram sinni margþættu menn- 75

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.