Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Síða 83
2. árg. . Jan.-marz 1939 V AK A
Vaka heitir eftirtöldum
verðlaunum fyrir söfnun Verðlaun!
nýrra kaupenda:
vei'ðlauii: Bezta bók ársins 1938 (sú, sem vinnur í at-
kvæðagreiðslu Vöku) í vönduðu skinnbandi. Til þess að hljóta þessi
verðlaun verður að safna minnst 15 áskrifendum og sjá um innheimtu
áskriftagjaldanna.
2. verðlaim: vandaður pappírshnífur. Þessi verðlaun verða
veitt fyrir að safna minnst 10 nýjum áskrifendum og annast innheimtu
áskriftagj aldanna.
3. verðlaun: l- °S 2. árgangur Vöku í bandi. Þessi verð-
laun verða veitt fyrir að safna 5 nýjum áskrifendum og annast inn-
heimtu áskriftagjaldanna.
Þeir, sem safna 3 nýjum áskrifendum og annast innheimtu áskrifta-
gjaldanna, fá yfirstandandi árgang Vöku ókeypis.
Veitt verða fleiri en ein verðlaun í hverjum flokki. Verðlaun
hljóta því allir, sem til þeirra vinna.
Það er auðvelt að útbreiða Vöku, og þvf hægðar-
leikur að vinna til þessara eigulegu verðlauna.
Lieiðréttingar
r frásögn af Grími Grímssyni á Svarf-
hóli í síðasta hefti Vöku, slæddist inn
villa. Meðal bygginga þeirra, sem Grím-
ur hefir reist á Svarfhóli, var talin
steinsteypt hlaða. Þetta var á misgán-
ingi byggt og ekki rétt hermt. Um leið
og þessi missögn er leiðrétt, skal það
tekið fram, að gefnu tilefni, að heimild
um byggingar á Svarfhóli var ekki frá
Grími sjálfum.
*
í þessu sama hefti voru nokkrar
prentvillur. Flestar þeirra voru ekki
skaðlegar og auðvelt að „lesa í málið“.
Ein þeirra getur þó e, t. v. valdið mis-
skilningi, og skal hún því leiðrétt hér.
Á bls. 103, 1. línu að ofan, stendur hern-
aður í stað hermaður.
*
í kvæði Einars Sigvaldasonar átti sér
stað ruglingur orða. Fjórða ljóðlínan var
svona: sú er myndin hugum þekk, en á
að vera: er sú myndin hugum þekk. —
Lesendur ritsins eru beðnir velvirðingar
á þessum mistökum.