Sumardagurinn fyrsti - 01.06.1975, Blaðsíða 2
2
SUMARDAGURINN FYRSTI 1975
Skýrsla félagsráðgjafa
fyrlr árið 1974
Starfssvið félagsráðgjafa varð nokkuð viðameira og víðtæk-
ara en undanfarin ár. Stafar það m. a. af ákvörðun stjórnar Sum-
argjafar, að félagsráðgjafi skyldi auk umsjónar með innritun á
barnaheimili félagsins taka meiri þátt í innra starfi heimilanna.
Ekki var nánar ákvarðað á hvern hátt starf þetta skyldi unnið.
Það þróaðist hinsvegar þannig, að félagsráðgjafi tók að sér
ýmsa þætti, sem áður höfðu ekki verið í hennar verkahring. Má
þar nefna aðstoð og fyrirgreiðslu við stofnun og starfræksiu
nýrra barnaheimila, tilraunir með foreldrasamvinnu og foreldra-
fundi með nokkuð öðru sniði en áður hafði tíðkast, svo og
fundi með starfsfólki einstakra heimila, þar sem fjallað var um
einstök börn og starfið í heild.
Starfsfólk heimilanna nýtti sér þessa þjónustu í misjafnlega
ríkum mæli. Sum heimilin alls ekki, en önnur allmikið. Að mínu
mati er mikið starf óunnið á þessu svði og enn víðtækara, en
tilraunir voru gerðar með á þessu ári. Ég tel einnig að greina
megi vaxandi áhuga meðal starfsfólks heimilanna á slíkri þjón-
ustu.
Nefna má í þessu sambandi, að um áramótin 1974-1975 hóf-
ust tilraunir á einu barnaheimilanna með reglulega hópfundi að-
standenda barnanna, sem á heimilinu dvelja. Er þessi tilraun ár-
angur af samstarfi starfsfólks viðkomandi heimilis og félagsráð-
gjafa. Þessi nýbreytni virðist mælast vel fyrir meðal foreldra, og
af ummælum þeirra, er hugmyndin var kynnt, mátti ráða, að
aukin samvinna foreldra og starfsfólks er sá þáttur í starfsemi
barnaheimilanna, sem síst má vanrækja.
Félagsráðgjafi hefur á síðari hluta ársins unnið að og skilað
tillögum til stjórnar Sumargjafar um breytingar á nýtingu og
barnafjölda á heimilum félagsins í samræmi við ákvæði Reglu-
gerðar um dagvistunarheimili, sem út var gefin af Menntamála-
ráðuneytinu í apríl 1974.
Félagsráðgjafi og frú Svava Stefánsdóttir félagsráðgjafi, sem
sæti á í stjórn Sumargjafar, hafa unnið að útgáfu bæklings um
barnaheimili félagsins. Bæklingur þessi, sem út kemur í byrjun
árs 1975, er ætlaður til kynningar á því starfi, sem unnið er á
barnaheimilunum og til almennra upplýsinga um starfsemi fé-
lagsins.
Starf félagsráðgjafa var einnig fólgið í félagslegri þjónustu við
þá, er sóttu um vist fyrir börn á heimilum félagsins. Þessi þjón-
usta varð að sjálfsögðu einstaklingsbundin og mismikil. Meiri-
hluti þess fólks, sem leitar eftir vistun barna sinna á barna-
heimilum á ekki við áberandi félagsleg vandræði að stríða, en
jafnan er þó talsvert stór hópur, sem æskir og þarf á meiri
þjónustu og fyrirgreiðslu að halda en þeirri, sem fólgin er í vist-
un barnsins. Oft er um að ræða tímabundna erfiðleika, sem hægt
er að leysa úr á tiltölulega einfaldan hátt, en kynnu að vaxa og
hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar, væri þeim ekki sinnt.
Nokkuð stór hópur foreldra virðist eiga við langvarandi félags-
leg og tilfinningaleg vandkvæði að stríða. Flestir í þessum hóp
eru þegar í tengslum við aðrar félagslegar þjónustustofnanir, svo
sem Félagsmálastofnun Reykjavíkur, Fleilsuverndarstöð Reykja-
víkur og Geðdeild barna. Flefur þvi jafnan verið haft náið sam-
starf við þessa aðila um einstök mál.
Sú félagslega þjónusta, sem veitt var beint af félagsráðgjafa
var einkum fólgin í viðtölum, útvegun húsnæðis og fjárhagslegri
fyrirgreiðslu. Einnig var stuðlað að sérfræðilegri athugun á ein-
stökum börnum í samvinnu við foreldra. Slíka þjónustu er enn
erfitt að fá fyrir börn á barnaheimilisaldri, nema með löngum
biðtíma.
Vil ég því enn vekja athygli á því, hversu mikilvægt er, að
tryggð verði skjót og örugg þjónusta, bæði sálfræðileg og á öðr-
um sérsviðum, t. d. talkennslu, fyrir þau börn, sem á barna-
heimilum dveljast og þarfnast slíkrar þjónustu. Hlyti slík starf-
semi, sem hægt væri að sinna á skipulagðan hátt, að teljast spor
í rétta átt tíl aukins fyrirbyggjandi starfs.
Innritun á barnaheimilunum varð mun umfangsmeiri á árinu
en áður.
Fjöldi nýrra umsókna um dagheimilisvist hefur farið vaxandi
ár frá ári. Eftirfarandi tölur sýna aukningu beiðna þau 4 ár, sem
félagsráðgjafi hefur séð um innritun.
Árið 1971 340, árið 1972 459, árið 1973 428, árið 1974 505,
samtals 1732 umsóknir.
Auk ofangreindrar aukningar á umsóknum um dagheimilisvist
koma tveir aðrir þættir til:
1. Um áramót 1973-'74 ákvað stjórn Sumargjafar að innritun
á leikskóla félagsins skyldi öll færð á einn stað. Ákveðið
var að innritun á leikskóla skyldi einnig falla undir umsjón
félagsráðgjafa. Hefur þeim þætti innritunarinnar verið hald-
ið sér, og tók frú Sigurlína Þorsteinsdóttir kennari að sér
að sjá um daglegan rekstur hennar.
Innritun á leikskólana með þessu fyrirkomulagi hófst í
febrúar 1974.
Frú Sigurlína, sem unnið hafði með félagsráðgjafa síðan
í janúar 1972, vann að þessu í fullu starfi, þar til í ágúst
sl., en frá þeim tíma og til áramóta í % úr starfi.
2. Snemma sl. vor fór Félagsstofnun stúdenta þess á leit
við stjórn Sumargjaíar, að félagið tæki að sér alla inn-
ritun og vistun, sem áður hafði verið í umsjá Félagsstofn-
unarinnar. Var orðið við þessari málaleitan, og tók félags-
ráðgjafi við allri innritun frá Félagsstofnun stúdenta 1. maí
sl. Reglur um fjölda rýma á dagheimilum til handa börnum
námsmanna eru óbreyttar, þ. e. 8% rýma eru ætluð börn-
um stúdenta við Háskóla íslands og 8% rýma börnum
annarra námsmanna.
Auk áðurnefndra 8% dagheimilisrýma stúdenta eiga þeir
rétt á þeim 85 rýmum, sem eru á stúdentabarnaheimilun-
um Valhöll og Efrihlíð, eða samsvarandi fjölda rýma á öðr-
um barnaheimilum.
Með því að innritun barna stúdenta er nú öll á einum
stað, er auðveldara að sjá til þess, að á svonefndum „stú-
dentabarnaheimilum" verði ekki eingöngu börn stúdenta,
heldur eðlilegri blöndun barna frá öðrum þjóðfélagshópum.
Var þetta m. a. ein af ástæðunum fyrir tilmælum Félags-
stofnunar stúdenta um, að innritunin færi öll fram á einum
stað. Ráðinn var einn nýr starfsmaður á árinu vegna áður-
nefndra breytinga á starfseminni. Frú Kristín Gunnarsdóttir
ritari hóf störf 1. apríl sl., og var hún frá þeim tíma og til
áramóta til aðstoðar félagsráðgjafa við innritun á dagheimili.
Hér fara á eftir tölulegar upplýsingar um starfsemina árið 1974.
Þeim er skipt í þrjá hluta. Fjallar hinn fyrsti um dagheimili, sá
næsti um skóladagheimili og hinn síðasti um leikskóla.
ÚTGEFANDI: BARNAVINAFÉLAGIÐ SUMARGJÖF
41. árgangur. - Júní 1975
Ritstjóri: Þorvarður Örnólfsson
Setning og prentun: Flagprent h.f.