Fréttablaðið - 28.12.2022, Side 6

Fréttablaðið - 28.12.2022, Side 6
thorgrimur@frettabladid.is Kósovó Mikil spenna ríkir nú við landamæri Kósovó og Serbíu, þar sem serbneski herinn hefur verið settur í viðbragðsstöðu. Öryggis- sveitarliðum hefur verið fjölgað upp í um 5.000 og Aleksandar Vučić, for- seti Serbíu, segist ætla að „gera allar ráðstafanir til þess að vernda þjóð- ina okkar og varðveita Serbíu“. Kósovó, sem er aðallega byggt fólki af albönsku þjóðerni, klauf sig frá Serbíu á tíunda áratugnum og lýsti yfir sjálfstæði árið 2008. Serbía og serbneski þjóðernisminnihlutinn í Kósovó viðurkenna ekki sjálfstæði landsins og hafa átt í stormasömu sambandi við kósovósk stjórnvöld. Hjörtur Bragi Sverrisson, fyrr- verandi framkvæmdastjóri mann- réttindadeildar ÖSE í Kósovó, segir deiluna sem hefur valdið þessum heræsingi snúast um númeraplötur á bílum. „Þetta er gömul deila sem kemur alltaf upp öðru hverju. Þegar albanski þjóðernismeirihlutinn tók yfir Kósovó skiptu þeir um núm- eraplötur og tóku upp sínar eigin plötur sem virkuðu þá hvergi nema í Kósovó. Serbneski minnihlutinn í Kósovó neitaði að skipta um númera- plötur og hefur yfirleitt viljað nota skráningarnúmer sem eru gefin út annaðhvort af serbneskum yfirvöld- um eða staðaryfirvöldum sem eru hliðholl Serbíu í borginni Mitrovica.“ Hjörtur segir að stjórn Kósovó hafi öðru hverju reynt að banna notkun serbnesku bílnúmeranna. Nú hafi hins vegar verið gengið lengra en áður og lögreglumönnum gert að sekta Serba fyrir að hafa þau. „Þótt þetta hljómi sakleysislegt tengist þetta sjálfstæðisbaráttu Kósovó gagnvart Serbíu og vilja Serbanna til að vera óháðir yfirvöldum Kósovó,“ segir Hjörtur. „Þetta er táknrænt fyrir þessa baráttu.“ Hjörtur segir að hernaðarupp- bygging við landamærin hafi áður átt sér stað en hann muni ekki til þess að Serbar hafi áður haft svo marga hermenn til reiðu. „Þetta tengist auðvitað árásinni í Úkra- ínu, sem hefur skapað tómarúm í öryggismálum þar sem allir eru með hugann við Úkraínu. Serbar halda kannski að þeir geti ógnað Kósovó aftur og að Vesturlönd eigi erfiðara með að styðja við Kósovóalbana.“ Þrátt fyrir hernaðaruppbygg- inguna segist Hjörtur ekki búast við neinni allsherjarinnrás Serba í Kósovó. „Mér finnst ekkert ólíklegt að þeir sendi inn einhverjar öryggis- sveitir til að styðja við þessa lögreglu- menn eða sérstjórnir sem Kósovó- serbar eru með. Það hafa þeir gert áður. Ég hef sjálfur séð lögregluþjóna í serbneskum einkennisbúningum í þorpum í Kósovó. Ég held ekki að þeir geri heila árás því það væru endalokin fyrir Serba ef þeir vilja ganga í ESB eða eiga samstarf við Evr- ópu. Það eru líka NATO-hermenn í Kósovó og þeir myndu allavega verja sjálfa sig, ef ekki Kósovóalbana.“ n Stríðsæsingur út af númeraplötum Ítalskir hermenn á vegum Atlantshafsbandalagsins í norðurhluta Kósovó. Fréttablaðið/Getty Úttekt hjá ferðaskrifstofu eða verslun að verðmæti 100.000 kr. 216 1696 4203 4588 5069 7173 8022 9177 9564 12532 13828 13968 15631 18899 19010 21597 25523 26143 28505 32299 33550 34269 34481 34872 35218 38826 38838 41005 41343 41652 43948 44169 45202 45609 47212 47284 47399 48246 52022 52322 54770 56222 56421 57123 57413 59202 60657 61578 61981 66283 71230 73990 74074 74119 76621 76743 81032 82218 84922 85401 86282 86946 86984 87094 87337 87466 89850 90436 91483 92581 92686 95507 96233 99170 99902 100260 102776 103010 103684 104221 105173 105221 105226 106097 106477 106683 107040 107937 109593 109855 110758 110960 112549 113269 115013 115045 115669 121139 122577 124852 125616 128616 128865 129437 129518 131775 133724 133742 134463 135084 135369 135446 136526 138432 138926 139469 139476 141444 142061 143322 144538 145047 148727 149252 151725 151813 155342 156342 156825 157637 157740 158046 158650 158691 159892 B irt á n áb yr gð ar Úttekt hjá ferðaskrifstofu eða verslun að verðmæti 200.000 kr. 5152 5394 7322 7617 8120 10162 10670 13287 13717 18012 18133 18527 19230 20211 21026 22730 24637 25824 26113 26522 28445 28510 29176 31009 33977 35201 37095 38210 41396 41723 42185 43285 44862 45145 46341 50691 53864 54086 56643 56881 56917 57108 59488 60134 61223 63550 65534 66796 67434 68556 69946 71021 72649 73166 73194 75533 75540 76450 77344 77711 80028 81982 85022 87394 89594 90469 96474 97460 97779 98321 99743 102594 102701 105903 108489 108946 111803 112214 112385 114033 114536 117444 117522 119574 120258 120321 121144 122403 124618 126664 128098 128549 132836 137983 138331 138895 140061 145246 147619 148081 148626 149351 150186 150484 151244 152183 152853 153440 156474 158536 Krabbameinsfélagið þakkar landsmönnum veittan stuðning. Handhafar vinningsmiða framvísi þeim á skrifstofu Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8, sími 540 1900. Byrjað verður að greiða út vinninga þann 10. janúar nk. Aiways U5 Premium, 100% rafmagnaður – 5.990.000 kr. 80392 Greiðsla upp í bifreið eða íbúð að verðmæti 1.000.000 kr. 33438 51576 53632 krabb.is TREK rafhjól Allant+ 7, 2022 – 529.990 kr. 23588 29333 45177 55096 57275 68899 75782 80992 95850 104398 108771 111634 121349 127547 131021 136264 138489 139000 150112 150161 Vinningar Jóla happ drætti ÚTDRÁTTUR 24. DESEMBER 2022 gar@frettabladid.is taívan Ótti við vaxandi ógn frá Kína er sögð ástæða þess að stjórn- völd í Taívan hafa þrefaldað lengd herskyldu fyrir karla í landinu, úr fjórum mánuðum í eitt ár. Gert er ráð fyrir að þessi breyting taki gildi í ársbyrjun 2024. Kínverjar líta á Taívan sem hluta af Kína og beita refsiaðgerðum gegn löndum sem eiga í stjórnmálasam- bandi við eyjuna. Flest lönd viður- kenna Taívan ekki sem sjálfstætt ríki og Kínverjar segjast munu beita valdi svo Taívan verði ekki sjálfstætt. n Taívanar lengja herskylduna gar@frettabladid.is danmörK Metfjöldi þorskseiða mælist nú í Eystrasalti að sögn Kaupmannahafnarháskóla. Hefur danska ríkisútvarpið eftir sérfræðingi að magn þorskseiða milli fjögurra og tólf sentímetra að stærð sé nú tífalt meira en á sama tíma í fyrra. Þá hafi mælingarnar þess utan sýnt óvenju mikið magn af seiðum. Þetta sé öldungis frábær þróun í ljósi þess hversu þorskstofninn í Eystrasalti var í slæmu ásigkomu- lagi. n Góðar fréttir af dönskum þorski Tsai Ing-wen, forseti Taívan. Þorskur kominn á land. Utanríkisráðherra Lettlands segir hertar refsiaðgerðir gegn Rússum eitt mikilvægasta tækið til að takmarka getu þeirra í stríðinu. kristinnhaukur@frettabladid.is helenaros@frettabladid.is úKraína Edgars Rinkevics, utan- ríkisráðherra Lettlands, sagði í árlegu ávarpi sínu að efnahags- þvinganir á Rússa yrðu að vera til staðar eftir að hernumin svæði í Úkraínu verða frelsuð. Einnig að þau ríki sem standa með Úkraínu verði að vera meira samstíga í þvingunum. Rinkevics segir hertar refsiað- gerðir gegn Rússum vera eitt mikil- vægasta tækið til að takmarka getu þeirra til að fjármagna og heyja stríðið þar sem þær aðgerðir auki pólitískan og efnahagslegan kostn- að við stríðið. Evrópusambandið er með efna- hagsþvinganir gegn Rússum, sem og Bandaríkin, Kanada, Bretland, Noregur, Ísland og f leiri ríki, en misharðar þó. Þessar þvinganir beinast meðal annars gegn orku-, f lug- og hátækniiðnaði og er ætlað að veikja mátt Rússlands til þess að herja á Úkraínu. Einnig er þvingunum beitt gegn 1.836 rússneskum einstaklingum og 171 fyrirtæki. Þar á meðal eru æðstu embættismenn Rússlands, þingmenn, meðlimir þjóðarörygg- isráðsins og aðrir einstaklingar sem standa nálægt Pútín líkt og olígark- ar og áróðursmeistarar. Au k opinber ra þv ing u na r- aðgerða hafa fjölmörg fyrirtæki hætt viðskiptum við Rússland og hefur landinu verið vísað úr íþrótta- og menningarstarfsemi, svo sem knattspyrnumótum og Eurovision. Rinkevics sagði að ekki væri nóg að hafa þvinganirnar í gangi meðan stríðið sjálft geisaði. Eftir að Úkraínumenn frelsa allt sitt landsvæði undan hernámi þarf að viðhalda þvingunaraðgerðunum þar til Rússar viðurkenna fullveldi Úkraínu og alþjóðlega viðurkennd landamæri, en innan þeirra eru bæði Donbass og Krím. Einnig þarf Rússland að greiða skaðabætur til þess að byggja Úkraínu upp að nýju eftir gríðarlega eyðileggingu í stríðinu. Tilkynnti Rinkevics að Lettland myndi styðja nýja áætlun Evrópu- sambandsins um að nota frystar eignir Rússa til að greiða fyrir upp- byggingu í Úkraínu. Að sögn Rinke- vics er nauðsynlegt að kalla einnig aðila sem hafa hjálpað Rússum að forðast refsiaðgerðir til ábyrgðar. Vladímír Pútín Rússlandsfor- seti undirritaði í gær tilskipun sem bannar útflutning á rússneskri olíu og olíuafurðum til ríkja sem hafa komið sér saman um verðþak á olíu frá Rússlandi. Bannið tekur í gildi 1. febrúar næstkomandi og gildir í fimm mánuði. G7-ríkin ásamt Evr- ópusambandinu og Ástralíu settu 60 dollara verðþak á hverja inn- flutta tunnu af rússneskri hráolíu sem flutt er sjóleiðis, fyrr í desem- ber. n Þvinganir á Rússa skulu gilda eftir frelsun Úkraínu Edgars Rinkevics segir hertar refsiaðgerðir mikilvægar. Fréttablaðið/ePa Evrópusambandið hyggst nota frystar rússneskar eignir til að greiða fyrir uppbygg- ingu í Úkraínu. 6 Fréttir 28. desember 2022 MIÐVIKUDAGURFréttablaðið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.