Fréttablaðið - 28.12.2022, Page 12

Fréttablaðið - 28.12.2022, Page 12
Dómnefnd Markaðarins valdi sölu Origo á Tempo sem viðskipti ársins 2022. Þeir sem sátu í dómnefndinni nefndu hve klókt það hefði verið að halda eftir hlut í fyrirtækinu á sínum tíma. Það hefði skilað sér í mikilli verðmætaaukningu fyrir hluthafa. ggunnars@frettabladid.is Sala Origo á 40 prósenta hlut í hug- búnaðarfyrirtækinu Tempo til fjár- festingasjóðsins Diversis Capital fyrir 28 milljarða er, að mati dóm- nefndar Markaðarins, þau viðskipti sem stóðu upp úr á árinu sem er að líða. Hreinn hagnaður af sölunni nam ríflega 22 milljörðum. Tempo býr til hugbúnað sem hjálpar fyrirtækjum við tíma- stjórnun, áætlanagerð og kostnað- arstjórnun. Tempo var upphaflega þróað sem lausn við innanbúðar- vandamáli hjá Nýherja, sem nú heitir Origo, í kringum fjármálahrunið en árið 2015 var stofnað sérstakt félag utan um rekstur Tempo. Þegar tilkynnt var um viðskiptin í október síðastliðnum sagði Jón Björnsson, forstjóri Origo, að upp- gangur Tempo væri skýrt dæmi um það hvernig frábært starfsfólk, íslenskt hugvit og stuðningur eig- enda geti búið til mikil heilmikil verðmæti. Það væri jafnframt von Origo að f leiri hugbúnaðarvörur gætu átt jafn farsælan feril og Tempo í framtíðinni. Dómnefnd Markaðarins var á einu máli um ágæti sölunnar og fram- göngu stjórnenda Origo í tengslum við málið. „Einstaklega gjöful viðskipti fyrir hluthafa Origo, sem fengu vænan skerf af sölunni inn á vörslureikn- inga sína í byrjun desember,“ segir meðal annars í rökstuðningi dóm- nefndar. Fyrir utan fjárhagslegan ávinning nefndu meðlimir dómnefndar hve mikil viðurkenning salan væri fyrir íslenskan hugverkaiðnað. „Þessi við- skipti munu án efa laða erlenda fjár- festa að þessum öfluga iðnaði. Sala af þessari stærðargráðu ryður brautina og kveikir áhuga. Það er gríðarlega mikilvægt og verðskuldað.“ Aukinheldur er Origo talið það til tekna að hafa klárað söluna við erf- iðar aðstæður. „Origo hefur verið á góðri siglingu síðastliðin ár og stóran hluta af því má rekja til uppgangs Tempo. Virki- lega vel gert að klára söluna miðað við hvernig markaðsaðstæður hafa þróast á árinu,“ segir í rökstuðningi dómnefndar. Einn af álitsgjöfum Markaðarins segir söluna á Tempo sjónarmun á undan kaupum Síldarvinnslunnar á Vísi við val á viðskiptum ársins. Aðallega vegna þess hve krefjandi aðstæður hafi verið á hlutabréfa- mörkuðum. Í því ljósi séu þessi viðskipti enn stærri en ætla mætti í fyrstu. Flestir hafi talið að viðskipti af þessu tagi væru komin í bið vegna óróa á mörkuðum. „Réttar ákvarðanir stjórnenda undanfarin ár í tengslum við Tempo eru aðdáunarverðar. Til dæmis sú ákvörðun að fá inn erlenda fjárfesta árið 2018. Félagið er að uppskera eins og til var sáð og niðurstaðan er ein stærsta sala allra tíma á íslensku hug- viti. Virkilega vel gert að ná þessu í gegn í þessu árferði,“ segir í mati dómnefndar. n Þessi viðskipti eiga eftir að styrkja bæði félög til lengri tíma litið. Þótt endanlegt kaup­ verð hafi reynst lægra en samið var um í upphafi leikur enginn vafi á því að salan á Mílu eru tímamóta­ viðskipti. Fyrir utan fjárhagslegan ávinning nefndi dómnefnd hve mikil viðurkenning salan væri fyrir íslenskan hugverkaiðnað. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Gjöful viðskipti fyrir hluthafa Origo 2. sæti 3 sæti1. sæti Önnur viðskipti sem voru tilnefnd Jón Björnsson, forstjóri Origo Félagið er að uppskera eins og til var sáð og niðurstaðan er ein stærsta sala allra tíma á íslensku hugviti. Þótt tilkynnt hafi verið um sölu Símans á Mílu til franska fjárfest- ingasjóðsins Ardian á síðasta ári þá varð ekki ljóst fyrr vel var liðið á þetta ár að Samkeppniseftirlitið myndi endanlega leggja blessun sína yfir viðskiptin. Í millitíðinni þurftu samnings- aðilar að setjast niður í tvígang og semja upp á nýtt. Þótt kaupverðið hafi lækkað frá því sem samið var um í fyrsta samningi er salan á inn- viðafyrirtækinu Mílu söguleg við- skipti. Fyrir eljuna, sem þurfti til að klára viðskiptin á árinu, valdi dóm- nefnd Markaðarins Orra Hauksson, forstjóra Símans, viðskiptamann ársins. Þegar öll sund virtust lokuð og útlit fyrir að viðskiptunum yrði endanlega rift, stigu stjórnendur Símans fram, með Orra í farar- broddi, og sigldu fleyinu í höfn. Að mati dómnefndar er fullt til- efni til að taka ofan fyrir forsvars- fólki Símans vegna sölunnar á Mílu á þessu ári líkt og því síðasta. Í rök- stuðningi dómnefndar segir meðal annars: „Þótt endanlegt kaupverð hafi reynst lægra en samið var um í upphafi leikur enginn vafi á því að salan á Mílu eru tímamótaviðskipti. Eftir stendur Síminn með 46 millj- arða í kassanum, sem er mun hærri fjárhæð en nokkur hefði getað gert sér í hugarlund fyrir fáeinum árum. Aukinheldur eru viðskiptin gríðar- lega góð tíðindi fyrir önnur íslensk fyrirtæki á fjarskiptamarkaði.“ Aðdáunarverð þrautseigja Orri Hauksson, forstjóri Símans Gunnþór Ingvason, framkvæmda- stjóri Síldar- vinnslunnar Um mitt sumar var tilkynnt að Síldarvinnslan hefði náð samkomu- lagi um kaup á öllu hlutafé útgerðar- félagsins Vísis í Grindavík en Vísir er rótgróið fyrirtæki sem rekur bæði saltfiskvinnslu og frystihús í Grindavík auk þess að gera út sex fiskiskip. Í tilkynningu til Kauphallarinnar kom fram að viðskiptin hefðu hljóð- að upp á 31 milljarð króna. Kaup- verð hlutafjár var um 20 milljarðar en vaxtaberandi skuldir Vísis um 11 milljarðar. Með viðskiptunum skip- uðu seljendur Vísis sér í hóp kjöl- festufjárfesta í Síldarvinnslunni. Dómnefnd Markaðarins valdi kaup Síldarvinnslunnar á Vísi þriðju bestu viðskipti ársins. Viðskiptin sættu nokkurri gagn- rýni fyrstu vikurnar eftir að gengið var frá samningum. En eftir að Sam- keppniseftirlitið lagði blessun sína yfir gjörninginn hafa þær raddir þagnað að mestu. „Það leikur enginn vafi á að þessi viðskipti eiga eftir að styrkja bæði félög til lengri tíma litið. Vísir verður rekið sem dótturfélag og mun starf- semin í Grindavík verða enn öflugri en hingað til. Aðkoma jafn öflugs félags og Síldarvinnslunnar mun ýta undir samkeppnishæfni og sjálf- bærni Vísis.“ Að mati dómnefndar bendir ekk- ert til annars en að tilgangur Síldar- vinnslunnar með kaupunum sé að hámarka verðmæti afurða. Nú sem endranær. „Starfsemin í Grindavík mun styrkja samsteypuna enn frekar í þeirri vinnu,“ segir í mati dóm- nefndar. n Síldarvinnslan styrkir stöðu sína Edda Sif Pind Aradóttir, fram- kvæmdastýra Carbfix. Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldar- vinnslunnar. Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar. Spjótin stóðu á fulltrúum Banka- sýslu ríkisins á árinu. Helgi Hermannsson, stofnandi Sling. Salan á Sling til Toast „Að fara á sjö árum úr því að labba á milli mögulegra viðskiptavina í Bandaríkjunum með PowerPoint- skjal í að selja fyrirtækið á átta komma sex milljarða er afrek sem vert er að veita athygli. Það fór ekki mikið fyrir Helga Her- mannssyni og félögum hjá Sling framan af en þau eiga heiðurinn af öskubuskuævintýri ársins í íslensku viðskiptalífi.“ Íslandsbankasalan „Önnur viðskipti sem komast á blað er útboð Íslandsbanka sem var vel heppnað. Ljóst er að tímasetningin var góð fyrir ríkið sem seljanda, sem heldur enn eftir verulegum hlut í félaginu. Þótt framkvæmdin á sölunni hafi valdið deilum og verið umdeild þá leikur enginn vafi á að verðið sem fékkst fyrir 22,5 prósenta hlut ríkisins var mjög gott.“ Kaup Hampiðjunnar á Morenot „Félagið hefur verið að gera frá- bæra hluti í yfirtökum sem hafa styrkt arðsemi félagsins. Þar stóðu kaupin á Voninni í Færeyjum upp úr. Kaupin á Morenot marka önnur skil í vexti félagsins. Kemur ekki á óvart að bréfin hafi hækkað um 20 prósent daginn eftir til- kynningu og líkt og með Vonina fela þessi kaup í sér umtalsverð tækifæri til samlegðar.“ Viðskipti Síldarvinnslunnar „Viðburðaríkt ár hjá Síldarvinnsl- unni og nokkuð ljóst að það er mikill hugur í eigendum og stjórn- endum fyrirtækisins á krefjandi tímum. Margur hefði haldið að kaupin á útgerðarfélaginu Vísi frá Grindavík væri nægilega stór biti á einu ári en Síldarvinnslan lét ekki þar við sitja og keypti líka stóran hlut í fiskeldisfyrirtækinu Arctic Fish.“ Carbfix á siglingu „Uppgangur Carbfix er aðdáunar- verður. Fyrirtækið er að skipa sér í raðir brautryðjenda í kolefnis- förgun andspænis loftslagsvand- anum. Tæknin sem Carbfix hefur þróað skilaði meðal annars styrk upp á 16 milljarða frá nýsköp- unarsjóði Evrópusambandsins á árinu og fyrirtækið heldur áfram að vaxa og dafna í spennandi geira umhverfisvænna lausna.“ Bestu viðskipti ársins 28. desember 2022 MiðvikuDAGur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.