Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.12.2022, Qupperneq 23

Fréttablaðið - 28.12.2022, Qupperneq 23
KYNN INGARBLAÐ ALLT MIÐVIKUDAGUR 28. desember 2022 Matarklúbburinn er bæði æfingahópur og vinskapur. Meðlimir eru á breiðu aldursbili og flest hafa tekið þátt í hálfum Járnkarli. Myndir/aðsendar Ekki bara einhver matarklúbbur Matarklúbburinn er hópur af hressum einstaklingum úr ýmsum áttum sem hafa hreyft sig saman allt frá árinu 2017. Hópurinn nærir sig síður á mat, mun fremur á líkama og sál. jme@frettabladid.is „Við borðum nefnilega ekki saman, það er það fyndna við þetta. Upphaflega var þetta hópur stelpna sem tók sig til og fór saman í maraþon árið 2016. Upp úr því fór hluti af þeim að æfa saman og síðar hleypa strákunum inn í hópinn,“ segir Arna Torfadóttir, einn af upp- runalegum meðlimum hópsins. Hittast ekki til að borða Hópurinn sem Matarklúbburinn samanstendur af í dag, tók á sig mynd árið 2017 þegar meðlimir fóru að æfa saman í hjólaþjálfun. Upp frá því hafa svo hægt og rólega tínst inn nýir meðlimir í hópinn, aðallega makar, vinir og vinnufélagar. „Í kjölfarið fórum við f lestöll saman í fyrsta hálfa Járnkarlinn okkar árið 2019 í Austurríki,“ segir Arna. „Við erum núna um tólf með- limir og hópurinn sem fór út var í kringum tólf líka. Þegar við komum heim úr keppninni tókum við eftir því að það eina sem við deildum inni á Facebook- síðu hópsins voru myndir af matnum sem við vorum að borða. Það var eins og enginn væri að æfa neitt og allir voru bara að senda matarmyndir. Þá segir einhver þessa f leygu setningu: „Hvað, er þetta bara einhver matarklúbbur hérna?“ Síðan þá hefur nafnið fest við okkur. Við hittumst eiginlega aldrei til að borða, heldur er þetta æfingahópur.“ Við erum bara vinir „Það gerist ósjálfrátt þegar maður er farinn að hitta æfingafélagana meira en vinina að þetta verður að vinskap. Við erum því farin að gera mun meira en bara að æfa saman. Í einni hjólaferðinni uppi á hálendi, í kringum 2021, sem Kjartan Long, einn meðlimur hópsins, skipulagði, sitjum við einhvers staðar að borða nestið okkar og erum að ræða hvað við séum, hvort við værum æfinga-  Japanskt „city pop“ verður alls- ráðandi á Prikinu í kvöld. starri@frettabladid.is Íslensk-japanska félagið og Asahi standa fyrir Japanese City Pop Night í kvöld, miðvikudagskvöld, á Prikinu í Reykjavík. Þar mun plötusnúðurinn Árni Kristjáns spila japanskt „city pop“ sem er tónlistarstefna sem hefur margar birtingarmyndir, svo sem japanskt enka, fönk, soul, rokk og diskó. Tónlistarstefnan spratt fram í Japan í lok áttunda áratugar síðustu aldar og var vinsælust þar á níunda áratugnum. „Þessi tónlist er mjög fjölbreytt og getur verið allt frá laufléttum ballöðum yfir í pumpandi diskó,“ segir Árni. „Svo eru útsetningarnar yfirleitt fallegar en vinsælustu plöturnar í þessari stefnu deildu bestu laga- höfundum, hljóðfæraleikurum og útsetjurum landsins á þessum tíma. Fókusinn á lífið utan vinnu, ferðir á ströndina og stórborgar- lífið heilla líka, en öll umgjörðin í kringum plöturnar er hjúpuð ljúf- fengri 9. áratugar nostalgíu.“ Árni bjó í Japan í tæp tíu ár og safnaði þá plötum til að spila sem plötusnúður. „Á sama tíma var ég einnig að skrifa greinar fyrir dagblaðið Japan Times um tónlist og ég fékk tækifæri til að skrifa um uppruna þessarar stefnu fyrir blaðið sem dýpkaði áhugann.“ Boðið verður upp á japanskan bjór fyrir þá fyrstu þyrstu sem mæta svo gott er að vera tíman- lega á ferðinni. Ókeypis er inn á viðburðinn. n Japönsk stemning við völd á Prikinu Hjálpræðisherinn á Íslandi sendir landsmönnum öllum óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.