Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.2012, Blaðsíða 7
7
heilbrigðiskerfið í sex löndum og við
drengurinn minn, Markús Svavar meira
að segja búin að fara á sjúkrahús í
þessum sex löndum samtals. Við
höfum alltaf fengið bestu þjónustuna
hér heima.
Gigtin í mér er ættgengur sjúkdómur
og sonur minn hefur erft hana. Báðir
foreldrar mínir fengu gigt, við erum
þrjá systurnar og erum við tvær með
gigt og af sjö barnabörnum eru þrjú
með gigt. Ég vissi að þegar okkur
langaði að eignast barn að viss áhætta
var tekin, en mér var hugsað til þess
að ég lifi hamingjusömu lífi og hversu
úrræðin eru orðin góð, en auðvitað var
mjög erfitt að kyngja því þegar Markús
Svavar svo fékk gigtina, erfiðara en ég
hélt fyrir, en gigtin hjá honum er væg,
hann er mikið í íþróttum og finnur lítið
fyrir sjúkdómnum.“
Þekkingarmiðstöðin á
eftir að festast í sessi
Guðbjörg er að lokum spurð hvort hún
sjái fyrir sér að Þekkingarmiðstöðin eigi
eftir að að stækka og þjóna mun víðar
Markmið Þekkingarmiðstöðvarinnar
Að veita hreyfihömluðu fólki og
aðstandendum þeirra upplýsingar
og stuðning á þeirra eigin forsendum.
Að standa fyrir námskeiðum og
jafningjafræðslu.
Að efla þekkingu á málefnum
hreyfihamlaðs fólks og vinna þannig að
hugarfarsbreytingu í samfélaginu.
í samfélaginu.
„Okkar stefna er
að sinna öllum
þeim sem þurfa
á upplýsingum að
halda til handa
fötluðu fólki
og vera óháð
öllum hagsmuna-
samtökum. Ég
sé fyrir mér að
við eigum eftir
að festast í sessi
og sjálfvirknin
verði meiri með
fullkominni heimasíðu og að ýmsar
stofnanir tengist henni og að við
veitum visst aðhald. Við njótum þess
að hafa nafn Sjálfsbjargar í nafninu
okkar. Námskeiðahald á vegum
okkar ásamt jafningjafræðslu er og
verður hluti af starfseminni og fyrir
stuttu vorum við í samstarfi við Rauða
krossinn með skyndihjálparnámskeið
fyrir hreyfihamlað fólk. Þetta var
námskeið í hjartahnoði þar sem farið
var yfir hvernig skal haga sér þegar
hreyfihamlaður einstaklingur er einn
með manneskju sem fær hjartaáfall.
Námskeiðið heppnaðist mjög vel og
tók ég sjálf þátt í því og kom í ljós að
ef ég með mína takmörkuðu hreyfigetu
lendi í þessari aðstöðu, þá get ég
notað hælinn til að beita hjartahnoði.
Vonandi kemur þó ekki til að ég lendi
í slíku en nú veit ég hvernig ég næ
bestum árangri.
Hvort sem við vöxum mikið eða
höldum okkar striki eins og starfsemin
er í dag þá er starfið mjög jákvætt í
alla staði og ég hef gaman af því að
mæta í vinnuna og alltaf spennt að
vita hvaða fyrirspurnir skyldu nú berast
til okkar í dag.“
Sjálfsbjörg þakkar
stuðninginn