Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.2012, Blaðsíða 22
22
36. þing Sjálfsbjargar
„Ég er búinn að sitja nokkur lands-
þing og mér er óhætt að segja að á
þinginu í sumar hafi ríkt mjög góður
samstarfsandi. Um leið létu þingfulltrúar
í sér heyra, létu í ljós skoðanir sínar
og umræður voru uppbyggjandi og
um leið fjörugar. Í heildina lukkaðist
landsþingið mjög vel og í lok þingsins
voru allir í sama gírnum, að vinna að
framgangi baráttumála okkar og að
efla landsambandið sem mest. Það
hafði einnig mjög góð áhrif að verið
var að opna Þekkingarmiðstöðina á
sama tíma og þingið var, sem er eitt
stærsta framtak Sjálfsbjargar frá upphafi,
opnunin hafði góð áhrif og gerði helgina
enn stærri en ella,“ segir Grétar Pétur
Geirsson, formaður Sjálfsbjargar lsf. og
tekur fram að þær breytingar sem hafi
orðið á rekstrinum hafi tekið mikinn
tíma frá honum og sambandsstjórninni.
Innra starf
„Satt best að segja fór mikill tími
hjá mér í innra starf sambandsins á
síðasta kjörtímabili, eftir að farið var
að sameina starfsemi sambandsins og
Sjálfsbjargarheimilins, sem hefur tekist
mjög vel og allir, held ég, sáttir við
þær breytingar. Vegna þessa var minni
tími til að vinna að öðrum málefnum,
sem ég hefði þó viljað sinna af meiri
festu, eins og að heimsækja félög úti á
landi, en það var eitt af mínum helstu
málum að rífa upp félögin úti á landi
og endurvekja þau félög sem legið
hafa í lægð. Okkur tókst að endurvekja
tvö félög á Sauðárkróki og Ísafirði, en
betur má ef duga skal og ég hafði
ætlað mér meira í þessum málum og
ferðir mínar út á land hafa ekki orðið
jafn margar og ég hafði vonast eftir
og ætla ég að reyna að bæta úr því á
þessu kjörtímabili.“
Kjaramál og ferðaþjónusta
Grétar Pétur tekur fram að eins og
oft áður hafi kjaramálin verið ofarlega
á baugi á þinginu. „Kjaramálin voru
þingfulltrúum ofarlega í huga, bætur
hafa ekki hækkað síðan 2008, en
miðað við launaskrið og verðbólgu þá
ættu bætur að vera 25% hærri en þær
eru í dag. Annað mál sem er okkur
mikið réttlætismál er ferðaþjónustan. Nú
á að að fara að bjóða hana út, við
á skrifstofunni höfum lagt okkur fram
um að vinna að þessu máli, skrifað
greinar og sent bréf, en því miður
höfum við ekki náð tilætluðum árangri.
Að mínu viti er verið að fara afturábak
í bókun frá mannréttindaráði þar sem
segir að sérúrræði þurfi fyrir fatlaða.
Þetta er algjörlega á skjön við samning
Sameinuðu þjóðanna sem stendur
til að samþykkja hér á landi. Þar er
hvergi minnst á að það þurfi sérúrræði
fyrir fatlaða.“
Flutningur málefna
fatlaðra til sveitarfélaga
Grétar Pétur nefnir mál sem kom upp
á þinginu og á örugglega eftir að hafa
áhrif á starf landssambandsins í nánustu
framtíð, en það er flutningur málefna
fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. „Þetta
er mál sem Sjálfsbjörg setti nokkra
fyrirvara við varðandi flutninginn, þar
sem við töldum málið ekki nógu vel
undirbúið. Enda er komið í ljós að það
vantar meira fjármagn til málaflokksins.
Mörg sveitarfélög standa ekki nógu
vel og ráða illa við verkefnið. Það sem
við erum hrædd við er að fatlað fólk
fari að sogast á höfuðborgarsvæðið
þar sem þjónustan er mest, sem er
slæmt þar sem það á ekki að skipta
máli hvar er búið, þjónustan á að vera
sú sama alls staðar.“
Þekkingarmiðstöðin
og baráttumálin
ofarlega á baugi
Grétar Pétur Geirsson, formaður
Sjálfsbjargar landssambands fatlaðra
sitt skína í flokknum Önnur mál, þar
sem umræður fóru fjörlega fram í í
bundnu og óbundnu máli, var komið
að kosningum í framkvæmdastjórn og
voru eftirtaldir kosnir til næstu tveggja
ára. Grétar Pétur Geirsson, formaður,
Andri Valgeirsson, varaformaður,
Jón Heiðar Jónsson, ritari, Þorbera
Fjölnisdóttir, gjaldkeri, Anna Torfa-
dóttir, meðstjórnandi, Bergur Þorri
Benjamínsson, 1. varamaður, Jón
Eiríksson, 2. varamaður, Leifur Leifsson,
3. varamaður.
Í lokaorðum við þingslitin sagði
Grétar Pétur: m.a. þingið hafa verið
ánægjulegt og jafnframt sérstakt vegna
opnunar Þekkingarmiðstöðvarinnar og
að spennandi tímar væru fram undan.
Eftir setningu landsþings var komið að því að opna Þekkingarmiðstöðina
Grétar Pétur Geirsson formaður Sjálfsbjargar lsf. setti þingið.