Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.01.2023, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 04.01.2023, Qupperneq 1
| f r e t t a b l a d i d . i s | Frítt KYNN INGARBLAÐ ALLTMIÐVIKUDAGUR 4. janúar 2023 thordisg@frettabladid.isEnn eru blessuð jólin og í dag er ellefti dagur jóla. Margir luma á góðum kjötafgöngum sem hægt er að nota í gómsætar tartalettur sem er mikill uppáhaldsmatur hjá mörgum og gaman að njóta á rómantískum jólakvöldum sem nú. Vinsælt er að brytja niður hangi­ kjöt í tartalettur með kartöflum og baunum í uppstúf eða nota afgang af hamborgarhrygg eins og góða skinku í hátíðartartalettur með aspas og Óðalsosti. Einnig má nota tartalettur undir sætmeti og í raun hvað sem maginn og munnur girnast. Himneskar hátíðartartalettur250 g Óðals Tindur200 g skinka eða hamborgar- hryggur4 msk. majónes2 msk. 18% sýrður rjómi 1 msk. Dijon-sinnep1 dós aspas í bitum2 msk. aspassafi10 tilbúnar tartalettuskeljarHitið ofn í 180°C. Rífið ostinn með grófu rifjárni og setjið í skál. Skerið kjötið í litla bita og setjið saman við. Hrærið afganginum af hráefnunum saman og blandið vel.Skiptið fyllingunni í tíu tarta­ lettuskeljar og bakið í um 12 til 15 mínútur eða þar til osturinn hefur bráðnað og tekið á sig fallegan, gull­ brúnan lit. n Heimild: gottimatinn.is Tartalettur um jól Tartalettur eru lostæti og tilvaldar í jólaafgangana. mYnd/gottimatinn.is Andrea Kristín Gunnarsdóttir er þakklát fyrir að fóturinn hafi bjargast eftir hjólaslysið í Króatíu. Hún er þakklát fyrir að geta ferðast og gengið enda hefur hreyfing alltaf verið henni mikilvæg. Hér er hún á göngu með hundinn sinn hann Púka. Fréttablaðið/ernir Kollagenið frá Feel Iceland átti stóran þátt í batanumAndrea Kristín Gunnarsdóttir, 56 ára Mosfellingur og þriggja barna móðir, var ansi nálægt því að missa annan fótinn eftir að hún lenti í örlagaríku hjólaslysi í Króatíu. Hún þakkar meðal annars kollageninu frá Feel Iceland fyrir að svo fór ekki. 2 HALLDÓR | | 12 PONDUS | | 20 2 . t ö L U b L A ð | 2 3 . á R g A N g U R | M I ð V I K U D A g U R 4 . j A N ú A R 2 0 2 3 sport| | 16 MEnning | | 22 líFið | | 24 | líFið| | 24 Spáir í aspas og boðar konunglega fæðingu Leggur allt í sölurnar fyrir list Markar ekki endalokin Hræddu börn í Tívolí Börn á leið úr Hlíðaskóla þurftu að klöngrast yfir háan skafl eftir snjóruðning fyrir bílaumferð til að komast yfir á gangbrautarljósum. Fréttablaðið/Ernir HeILbRIgðISMáL Ellen Sif Sævars- dóttir, sálfræðingur og rekstrarstjóri Litlu kvíðameðferðarstöðvarinnar, segir mikið áhyggjuefni hversu lengi börn og unglingar þurfi að bíða eftir sálfræðiþjónustu. Biðtíminn og bið- listinn hafi lengst úr hófi síðastliðin þrjú ár. „Eins og staðan er núna erum við með rétt rúmlega þúsund mál á bið,“ segir Ellen. Dæmi séu um að foreldrar setji börn á biðlista á mörgum mismun- andi stöðum og hringi þangað reglu- lega til að kanna stöðuna. sjá síðu 4 Þúsund börn bíða sálfræðiþjónustu Ellen Sif Sævars- dóttir, sálfræð- ingur Miklar hækkanir á heild- söluverði matvöru taka gildi núna um áramótin og ljóst er að verðlag mun hækka á komandi vikum og mánuðum. Mögulega eru þetta erlendar hækkanir sem enn eiga eftir að koma inn í verðlag hér á landi. olafur@frettabladid.is NeYteNDUR Hækkanir frá heild- sölum og birgjum virðast hlaupa á bilinu 2,5-46 prósent. Almennt virð- ist verð hækka á bilinu 5-12 prósent. Guðmundur Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Bónuss, segir hækk- anir dynja yfir smásöluna nú um ára- mót. Bæði sé um að ræða innlenda framleiðslu og innflutta matvöru. Þær séu af þeirri stærðargráðu að þær hljóti að fara að einhverju marki út í verðlag til neytenda. Guðmundur segir eina ástæðu hás matvælaverðs hér á landi vera vernd- arstefnu stjórnvalda gagnvart inn- lendri matvælaframleiðslu. Staðinn sé vörður um innlenda framleiðslu og komið í veg fyrir samkeppni meðal annars með fyrirkomulagi tollkvóta. Breki Karlsson, formaður Neyt- endasamtakanna, segir stóra kjöt- framleiðendur geta haft hagsmuni af því að kaupa tollkvóta á mjög háu verði. Þannig gætu þeir tryggt að neytendum stæði ekki ódýrt innflutt kjöt til boða og haldið uppi háu mat- vælaverði í landinu. Hann segir tolla- kvóta vera vonda fyrir neytendur. Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, segir verðhækk- anir fyrirtækisins vera langt undir almennum verðlagshækkunum, Ölgerðin hafi ráðist í umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir og ný og hag- kvæm verksmiðja leiði jafnframt til þess að neytendur njóti lægra verðs. Hann segir erfiðara að hamla gegn erlendum verðhækkunum sem séu miklar og sjái ekki fyrir endann á. Matarverð á evrusvæðinu hefur hækkað um 16 prósent síðustu 12 mánuði. Í Þýskalandi hefur hækk- unin numið um 21 prósenti, 12 pró- sentum í Frakklandi og ríf lega 16 prósentum í Bretlandi. Hér á landi hækkaði matarverð um 10,1 prósent á síðasta ári. Þetta getur bent til þess að hækk- anir sem þegar eru komnar inn í verðlag í f lestum Evrópulöndum eigi enn eftir að koma inn í verðlag hér landi. sjá síðu 8 Holskefla hækkana nálgast Erlendar verðhækk- anir kannski enn ekki komnar inn í verð hér.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.