Fréttablaðið - 04.01.2023, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 04.01.2023, Blaðsíða 2
Okkur fannst æðislegt að við vorum fyrsta fólkið í morgun sem sá Goðafoss í drifhvítum vetrarhamnum. Nancy og Tom Lynch, bandarískir ferðamenn Það eru stórir og breið- ir flekar á hreyfingu. Sveinn Brynjólfs- son, ofanflóða- sérfræðingur Ógn að ofan Grýlukerti hafa myndast víða á höfuðborgarsvæðinu undanfarið og eru sum þeirra svo stór og voldug að það stafar hreinlega hætta af þeim fyrir vegfar- endur. Með hlýnandi tíð hafa ruðningar fallið af þökum. Það er á ábyrgð húseigenda að fjarlægja grýlukerti sem geta skapað hættu. Fréttablaðið/Ernir Hlynur M. Jónsson á milli hjónanna Nancy og Tom Lynch. Fréttablaðið/bÞ Leiðsögumenn á Íslandi þurfa að spila eftir eyranu þegar ekki er hægt að komast með ferðamenn að náttúruperlum vegna snjóa. Hið óvænta getur þó orðið mesta ævintýrið. bth@frettabladid.is þingeyjarsveit Hjónin Nancy og Tom Lynch, bandarískir ferðamenn á vegum Kensington Tours, segja að hinn harði vetur og ýmsar breyting- ar á skipulagðri dagskrá vegna snjóa hafi orðið þeim blessun en ekki böl. Leiðsögumaður hjónanna segir mikilvægt að impróvísera þegar ófærð rústar fyrir fram skipulagðri dagskrá. Þau Nancy og Tom komu 30. desember síðastliðinn til landsins og hafa verið á ferðinni síðan. Þau áttu leið um Baðlónið í Mývatns- sveit í vikunni og þótt þau kæmust ekki til að skoða náttúruperlur þann dag, svo sem Dimmuborgir, vegna ófærðar sögðu þau svoleiðis vendingar ekki skipta nokkru máli. „Óveðrið hefur engin neikvæð áhrif haft á okkar ferð, það er mjög vel séð um okkur þótt leiðsögu- maðurinn hafi ansi oft þurft að skipta um áætlun. Það er ævintýri að njóta Íslands á þessum árstíma,“ segja Nancy og Tom. Þau segjast hafa átt von á allt ann- arri veröld en heima hjá sér í Suður- Karólínu þar sem alltaf er hlýtt og sandskaf lar í stað snjóskaf la. Því hafi tíðin ekki komið þeim sérstak- lega á óvart. „Okkur finnst allt alveg meiri háttar hérna. Ekki síst maturinn. Við reynum að borða sem mest af fiski á litlum lókal stöðum. Plokk- fiskur er í sérstöku uppáhaldi, við forðumst að fá okkur pitsu!“ Leiðsög umaður bandar ísk u hjónanna, Hlynur M. Jónsson, segir að ferðalagið teygist um allt Ísland. Hlynur segir að það færist í vöxt að erlendir kúnnar kaupi sér hágæða- þjónustu með einkaleiðsögumanni og bílstjóra. Ferðir verði oft per- sónulegri og skemmtilegri fyrir vikið. „En þetta veður hefur auðvitað verið mjög sérstakt, allur þessi snjór og þetta mikla frost um daginn. Þetta er auðvitað áskorun og maður þarf að impróvísera grimmt,“ segir Hlynur. „Við erum ekki bara á plani b í dag, við erum á plani c,“ segir Hlynur hlæjandi. Nancy hrósar Hlyni á hvert reipi. „Okkur fannst æðislegt að við vorum fyrsta fólkið í morgun sem sá Goðafoss í drifhvítum vetrarhamn- um, fyrsta fólkið sem tók myndir af þessum fallega fossi í dag. Allt var svo óspjallað og hreint, fönnin drif- hvít, það var frábært,“ segir Nancy. Amerísku hjónin viðurkenna þó að aðkoman í Keflavík hafi verið nokkuð drungaleg þegar þau litu Ísland augum í fyrsta skipti. Ekki þó þannig að á þau hafi runnið tvær grímur. „Síðan er þetta bara búið að vera stórkostleg upplifun,“ segir Tom og brosir framan í blaðamann Frétta- blaðsins áður en hann skellir sér í jarðbaðið. n Njóta ófærðarinnar þó að dagskráin fari úr skorðumbth@frettabladid.is samgöngur Alexander Jónasson, starfsmaður Vegagerðarinnar, hafði í mörgu að snúast þegar rofaði til eftir mikla snjókomu í Þingeyjar- sýslu í gær. Alexander vann við að koma niður nýjum vegastikum í Mývatns- sveit er Fréttablaðið bar að garði en stikurnar verða oft fyrir hnjaski á þessum árstíma. Vegurinn í Dimmuborgir var ófær en snjómoksturstæki á staðnum einbeittu sér að því að ryðja stofn- æðar. Fara þarf talsvert langt aftur í tímann til að finna annað eins vetr- arríki og verið hefur síðustu daga að sögn heimamanna í Mývatns- sveitinni. n Vegstikur lagfærðar í Mývatnssveit Alexander Jónasson kemur fyrir nýjum vegastikum í Mývatnssveit. Fréttablaðið/bÞ ser@frettabladid.is nÁttÚruvÁ Greinilegur óstöðug- leiki er í snjóalögum víða á Trölla- skaga og hafa fjölmörg meðalstór snjóflóð fallið þar síðustu daga, þar á meðal í Hlíðarfjalli, Hörgárdal, Öxnadal, norðan Dalvíkur og við austanverðan Siglufjörð. „Það eru stórir og breiðir f lekar á hreyfingu,“ segir Sveinn Brynj- ólfsson, ofanflóðasérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, en næsta þykkt snjóalag sem myndast hafi á síðustu vikum liggi á ísalögum sem þést hafi frá því fyrr um haustið. „Fjallaskíða- og vélsleðamenn verða að hafa sérstaka gát á aðstæð- um vegna þessa,“ segir Sveinn enn fremur, en f lóðin sem runnið hafi síðustu daga hafi fallið á hefð- bundnum stöðum upp til heiða og dala. „En þetta er snjóflóðahrina sem við fylgjumst með,“ segir Sveinn Brynjólfsson. n Snjóflóðahrina á Tröllaskaga N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM með og án rafmagns lyftibúnaði Komið og skoðið úrvalið 2 Fréttir 4. janúar 2023 MIÐVIKUDAGURFréttablaðið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.