Fréttablaðið - 04.01.2023, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 04.01.2023, Blaðsíða 14
Sjálfvirkur opnunarbúnaður og snertilausir rofar frá Þýsk gæðavara. Snertilausir rofar Skútuvogi 1h - Sími 585 8900 www.jarngler.is Inga Sæland formaður Flokks fólksins Í jólamánuðinum f læða minn- ingarnar fram sem beljandi foss. Ég dvel við liðna tíma. Ég sé sjálfa mig sem litla telpu heima hjá pabba og mömmu þar sem jólaandinn sveif yfir og allt um kring. Þar sem mamma var í aðalhlutverki, vakti fram á nætur, bakaði, eldaði og pússaði allt sem hönd á festi. Þar sem fárviðri geisaði utan við glugg- ann minn með tilheyrandi snjó- komu sem færði allt á bólakaf. Allt var hjúpað töfraljóma og ólýsan- legri tilhlökkun. Alveg sama hvað á gekk hjá fullorðna fólkinu, okkur börnunum var haldið fyrir utan það. Nú er öldin önnur og ekki nokkur leið að loka augunum fyrir því órétt- læti og þeim hörmungum sem þús- undir íslenskra barna mega þola í dag. Í gjörbreyttu samfélagi þar sem gildi og viðmið eru öll önnur en þegar ég var að alast upp. Þetta eru börn sem oft leggjast svöng á kodd- ann á kvöldin þar sem fátæktin er slík að hver króna fer í að greiða græðgisvæddum leigufélögum fyrir húsaskjól á okurverði. Þetta eru börnin sem fá helst að borða hjá hjálparstofnunum sem reyna eftir fremsta megni að úthluta þeim mat. Hjálparstofnanir sem meiri hluti alþingismanna undir agavaldi ríkisstjórnarinnar sagði nei við að styrkja um 150 millj. króna fyrir jólin. Þetta eru börnin sem fara í jólaköttinn, fá hvorki ný föt né nýja skó. Þetta er börnin sem eiga frekast á hættu að vera lögð í einelti, börnin sem fá engar tómstundir sem kosta peninga af því að þeir eru einfald- lega ekki til. Ég þarf ekki að tíunda frekar um það sem liggur í framtíð flestra þessara barna. Þið vitið það öll. Stjórnleysi, trúleysi, virðingar- leysi er það sem svífur yfir vötnun- um í dag. Stjórnvöld láta sér á sama standa þótt fólk eigi hvorki í sig né á. Sama þótt fólk eigi ekki í nein hús að venda. Málin eru sett í nefnd. Með öðrum orðum, ábyrgðinni er fleygt út um gluggann. Þessir svokölluðu valdhafar hafa hvorki visku né getu til að takast á við þau verkefni sem þau voru kjörin til að sinna. Ég hlýt að draga þá ályktun fremur en að halda að þessir einstaklingar séu mannvonskan holdi klædd. Eitt er þó alveg víst að öll þessi yfirgengi- lega fátækt, allt þetta vonleysi tug- þúsunda Íslendinga er í boði stjórn- valda. Það er nöturlegt til þess að vita að Alþingi Íslendinga – æðsta stofnun þjóðarinnar, skuli ekki sjá sóma sinn í því að rétta þeim hjálparhönd sem búa hér í sárri neyð, heldur þvert á móti múra enn rammgerðari fátækragildru um þá sem þau voru kjörin til að vernda. Þetta er allt mannanna verk! n Örbyrgð í auðugu landi Kristján Björnsson vígslubiskup í Skálholti Um áramót er eðlilegt að gera upp liðna tíð og horfa um leið til fram- tíðar. Í kirkjunni er liðinn tími mjög langur í sögunni. Í kirkjunni má líka segja að horft sé mjög langt fram í tíma með tilliti til guðfræði vonar- innar. En það góða við guðfræði vonarinnar er að hún liggur ekki öll í óræðri framtíð. Hún er í raun það afl sem breytir öllu á líðandi stund. Það er afar brýnt fyrir kirkju og kristni að íhuga allt er varðar umbúnað í þessum heimi enda var umbúnaður mjög fátæklegur er Jesús fæddist. Tilefni jóladaganna allra til þrettánda dagsins er í raun mjög einfalt þótt við höfum hlaðið á það umgjörð og gjöfum. Tilefnið er að gleðjast með því að gleðja aðra og huga að þeim sem búa við skertan kost og þrengingar, sjúkdóma, stríð og aðrar ógnir. Við þurfum að muna að Kristur er það afl sem stendur af sér alla eyðileggingu og ógnir einmitt með því að hafa tekið sér stöðu mitt í sorg og kvíða, missi og átökum okkar. Ég hef ekki áhyggjur af kristni sem býr í hjörtum okkar en er hugsi yfir stöðu kirkju minnar og sam- eiginlegri þátttöku trúaðra í því trúarlífi sem mótar samfélagið. Það er eitt að trúa í hjartanu og láta það móta okkur sjálf. Annað er að láta persónulega trú hafa mótandi áhrif á samskipti okkar við aðra og sam- félagið í heild. Ég á erfitt með að sjá fyrir mér trú og kærleika Jesú Krists sem ekki er miðlað til annarra í orði og verki. Hvaða merkingu hefur þannig trú ef við þenjum svo bara flautuna á jeppanum á þau sem eru föst í snjónum á litla borgarbílnum sínum? Dómharka er verst. Líka í trúarlegri umræðu. En svo sjáum við og heyrum af fólki sem lætur gott af sér leiða hvar sem það fer þótt það minnist ekki á trú sína. Verkin tala; hughreystandi orð og gjörðir. Umbúnaður á það til að pakka trúarlegri hugsun okkar svo ræki- lega inn að hún hafi þverrandi áhrif á samfélagið og náunga okkar. Þetta er einnig raunveruleg hætta með kirkju sem stofnun með sérstöðu. Ef ég tek dæmi af því sem stendur mér næst hefur Þjóðkirkjan verið að ganga í gegnum ótrúlega miklar breytingar síðustu misseri og því fylgja vaxtarverkir sem hafa ekki farið framhjá almenningi. Ég tel að við gætum ratað á rétta leið með styrk kristinnar vonar og skilningi á samfélaginu. Framtíðarsýn okkar mótast af afli vonarinnar í miðjum breytingum þessara daga og vikna, mánaða og missera. Mörgum kann að virðast freistandi að finna lag og leggja að kirkjunni í þessum breyt- ingum miðjum. En það er líka eðli- legt. Ég sé hins vegar mikil tækifæri í þeirri siðbót sem þarf til að einfalda skipulag kirkjunnar. Það er í þeirri von að góðu verkin og góða þjónust- an verði að meira gagni fyrir þjóð og land. Erindi kirkjunnar er einfalt en það er gríðarlega mikilvægt. Jólin minna okkur á þann litla umbúnað sem þurfti til að breyta öllu í sögu mannkyns, farsæld fólksins og sam- félagsins í heild og þá staðreynd að góður helmingur jarðarbúa trúir nú á sama Jesú Krist. n Kraftur vonar á nýjum tímum Lovísa Ólafsdóttir heilsuhagfræðing- ur og forvarnar- ráðgjafi fyrirtækja hjá VÍS Höfund langar að byrja á því að óska sjómönnum, fjölskyldum þeirra og útgerðum til hamingju, en í nóv- ember 2022 fór í loftið nýtt atvika- skráningarkerfi ATVIK – sjómenn sem VÍS þróaði og gaf sjómönnum og var af hent rannsóknarnefnd samgönguslysa til eignar á síðast- liðnu ári. Hvers vegna er atvikaskráning mikilvæg? Árið 2002 gerði höfundur rann- sóknina „Áhrif hvíldar á öryggi og heilsu sjómanna“, þar sem um 150 sjómenn tóku þátt. Í rannsókninni voru svefnvenjur, svefnmynstur og heilsa sjómanna skoðuð og í því skyni skoðuð áhrif góðrar hvíldar sem liðs í að draga úr álagseinkenn- um, slysum og veikindum. Helstu niðurstöður voru eftirfarandi: • Almennt hvílast sjómenn illa og líkamsástand þeirra er í f lestum tilfellum bágborið. Um 62% þeirra sem tóku þátt í rannsókninni sögð- ust þjást af verkjum í baki og 49% af verkjum í hálsi eða öxlum. Þegar dýnuundirlagið var skoðað sást að álag á mjóbak og herðablaðasvæði var mikið • Um 43% þeirra töldu sig ekki vakna úthvílda og um 60% sögðust þjást af streituþunglyndi með kvíða og svefntruf lunum. Um 80% sjó- manna sögðust fá meiri svefn á fyrri vaktinni en þeirri seinni sem passar við svefnmælinguna sem var gerð. Í um 40% tilfella mátti rekja streitu til álags að degi til. Til þess að skynja svefn þarf ein- staklingurinn að vera sofandi í þrjár til f jórar mínútur. Augnablikið þar sem einstaklingurinn gerir sér ekki grein fyrir því að hann er sofandi nefnist „svefngloppur“ og er þess vegna ekki meðvitaður um hættur í umhverfinu. Niðurstaða svefnmælinganna sýndi að tíðni á „svefngloppum“, þ.e. þegar svefninn ryðst inn í vökutímann, var nokkuð há. Þessar „svefngloppur" voru að gerast á tímum sólarhringsins þegar slysin áttu sér stað samkvæmt tölu- legum upplýsingum frá Slysavarna- skóla sjómanna. Þó svo að ekki hafi verið hægt að tengja ákveðna „svefngloppu“ við ákveðið slys, þá gáfu niðurstöðurnar vísbendingar um hvað væri að gerast í umhverf- inu og enn fremur mikilvægi slysa- skráninga. Líkamsástand bágborið Það sem kom einnig í ljós var að líkamsástand sjómanna var mjög bágborið og verulega undir því sem mælist hjá meðalmanni. Um þriðj- ungur manna féll í f lokk fyrsta stigs offitu (BMI) og flestir voru um það bil að falla yfir í annað stig. Yfirvigt og offita veldur hjarta- og æðasjúk- dómum, en hefur um leið áhrif á hvíldarþörf. Grunur um kæfisvefn var hjá um 9% sjómannanna. Atvinnurekandi ber ábyrgð á góðu vinnuumhverfi Mikil ábyrgð situr hjá stjórnendum fyrirtækja þegar kemur að góðum aðbúnaði í vinnuumhverfinu og ber atvinnurekandi ábyrgð á því að framkvæmt sé áhættumat starfa skv. vinnuverndarlögum. Auk þess er atvinnurekandi leiðandi af l í sterkri öryggismenningu. Engu að síður situr ábyrgðin á eigin öryggi og heilsu hjá einstaklingnum sjálf- um, en um 61% sjómanna sagðist aldrei stunda líkamsrækt, um 56% þeirra reyktu og langflestir drukku mikið magn af kaffi. Þrátt fyrir aug- ljós mikil álagseinkenni sóttu fæstir sjómenn sér meðferð við þeim. Vinnuumhverfi sjómanna er skilgreint sem „hörð vaktavinna“ samanborið við aðrar tegundir vaktavinnu, þar sem í þessari rann- sókn var um að ræða sex klst. vakta- vinnukerfi. Það tekur líkamann um fimm daga að endurstilla líkams- klukkuna, en oftar en ekki voru sjó- menn að vinna á annarri vaktinni einn túrinn, fóru í land í 2–3 daga og síðan út á sjó á hinni vaktinni. Vinnufyrirkomulag sem þetta leiðir til þess að líkamsklukkan brengl- ast og líkaminn fer að vinna gegn sjálfum sér þ.e. blóðsykur eykst, blóðþrýstingur hækkar, hormóna- starfsemin brenglast, örvun verður til á annarri starfsemi líffæra og mótstöðuaf l líkamans minnkar. Þó svo að dauðsföllum hafi fækkað svo um munar síðustu áratugi með bættum skipaf lota og öryggis- búnaði, þá er slysatíðni sjómanna enn há og trónir á toppnum miðað við aðrar starfsstéttir samkvæmt nýlegri rannsókn Valdimars Briem og félaga. Í þeirri rannsókn er einnig komið inn á mikilvægi atvikaskrán- inga og vald eflandi öryggisstefnu. Mætum því óvænta Verum viðbúin því óvænta og höldum til haga mikilvægum upp- lýsingum eins og skráningu næstum því slysa og atvika. Byggjum upp sterkt lærdómssamfélag með öfl- ugri öryggisstefnu, -menningu og öryggishegðun. Hver vinnustaður á sitt eigið DNA og er rót þess, en þegar kemur að slysum er eitt slys of MIKIÐ og það er á ábyrgð allra. Leggjum áherslu á forvarnir þar sem DNA-ið okkar er. „Við vitum hver við erum“, „Við vitum hvað við gerum“ og síðast en ekki síst „Við vitum hvert við viljum fara“. n Sjómenn, til hamingju, við stefnum í rétta átt Stjórnvöld láta sér á sama standa þótt fólk eigi hvorki í sig né á. Sama þótt fólk eigi ekki í nein hús að venda. Málin eru sett í nefnd. Vinnuumhverfi sjó- manna er skilgreint sem „hörð vaktavinna“ samanborið við aðrar tegundir vaktavinnu, þar sem í þessari rann- sókn var um að ræða sex klst. vaktavinnu- kerfi. 14 Skoðun 4. janúar 2023 MIÐVIKUDAGURFréttablaðið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.