Fréttablaðið - 04.01.2023, Síða 18

Fréttablaðið - 04.01.2023, Síða 18
Orkan sem við fáum úr matnum er orka sem endist lengur yfir daginn. Hanna Þóra Helgadóttir, matarbloggari, viðskipta- fræðingur og flugfreyja hjá Icelandair, kolféll fyrir ketó-mataræðinu og er enn jafn hugfangin af því fjórum árum síðar. thordisg@frettabladid.is „Þegar ég byrjaði á ketó var ég komin á þann stað að ég þurfti að léttast fyrir bætta heilsu. Nú fjór- um árum síðar er ég enn jafn ást- fangin af þessum lífsstíl og öllum girnilega matnum sem honum fylgir. Það hefur verið skemmti- legt og gefandi að gefa öðrum inn- sýn í ketó-lífsstílinn og svo hefur fólk tileinkað sér það sem það vill úr uppskriftunum mínum. Sumir fara alla leið, á meðan aðrir eru til dæmis að minnka aðeins sykur- eða hveitineysluna sína. Í grunn- inn er þetta matur sem allir geta borðað,“ segir Hanna Þóra. Hvað þýðir að aðhyllast ketó? Hanna Þóra svarar því. „Að vera á ketó-mataræði þýðir að við innbyrðum minna af kolvetnum og meira af fitu yfir daginn. Með því kemst líkaminn í ástand sem kallast ketósa og fer að brenna eigin líkamsfitu til að nýta sem orku. Við sleppum sykri, hveiti og matvælum sem inni- halda mikið af sterkju. Orkan sem við fáum úr matnum er orka sem endist lengur yfir daginn.“ Hanna Þóra segir fólk iðulega vandræðast með hvernig það eigi að hugsa út fyrir brauðið en sjálf gerir hún sér oft portobello- sveppa-pitsu í hádeginu, sem er f ljótlegt að útbúa. Hún gefur lesendum uppskrift að gómsætri ketó-pitsunni sinni og frosnu jógúrtsnakki sem einnig er ketó. n Ketó-krásir eru matur sem allir geta borðað Hanna Þóra Helgadóttir hefur gefið mörgum innsýn í ketó. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Dýrindis ketópitsa með portobello- sveppum. MYNDIR/HANNA ÞÓRA Gómsætt, frosið jógúrtsnakk. Pitsa með portobello-sveppum Portobello-sveppir Hvítlaukskrydd Pitsasósa (velja sósu sem inni- heldur sem minnst kolvetni) Pitsaostur Álegg eftir smekk Oregano / pitsakrydd Leggið sveppina í eldfast mót. Stráið hvítlaukskryddi ofan á sveppina, áður en þið setjið pitsa- sósu yfir botninn. Það gefur svepp- unum gott bragð og lokaútkoman verður enn betri. Setjið næst ost og álegg eftir smekk og kryddið eftir smekk. Bakið sveppina við 200°C í ofni, eða þar til osturinn er bráðn- aður. Einnig má setja sveppina í airfryer, ef þið eigið til slíka græju. Frosið jógúrtsnakk Það er einfalt að útbúa frosið jógúrtsnakk sem er gott að eiga tilbúið í frystinum þegar löngun kviknar í gott og nærandi milli- mál. Það má setja alls konar gotterí ofan á snakkið og það geymist vel í boxi í frystinum. 1 dós hrein grísk jógúrt 5-6 stevíu-dropar (veljið bragð eftir smekk) 3 msk. rjómi Hrærið jógúrti saman við rjóma og stevíu-dropa. Smyrjið blöndunni á bökunarpappír með sleikju og toppið eftir smekk. Tillaga að ketó-vænum toppi ofan á jógúrtsnakkið Jarðarber, skorin niður í sneiðar Bláber Sykurlaust súkkulaði, smátt skorið Möndluflögur Heslihnetukurl Karamellu síróp, sykurlaust Pekanhnetur Hrafnhildur hefur starfað sem einkaþjálfari hjá World Class í um 17 ár. Hún þjáðist af ristilvandamálum og bakflæði í áratugi vegna meðgönguógleði, sem orsakaði sjö mánaða upp- köst. Fyrir tæplega fjórum árum fór Hrafnhildur Hákonardóttir í ristilspeglun vegna óþæginda í ristli og meltingarvandamála. „Ristillinn hafði verið til trafala í 25 ár frá því ég var ólétt. Á með- göngunni ældi ég daglega í um sjö mánuði. Eins eðlilegur hlutur og ólétta er fyrir kvenlíkamann eru sjö mánuðir af uppköstum ekkert grín fyrir líkamsstarfsemina. Ég hlaut af þessu varanlegar skemmdir á vélinda sem orsaka bakflæði. Einnig hafði þetta slæm áhrif á ristilinn, sem hafði þau áhrif að ég fór að finna fyrir verkjum í baki og líkamanum öllum. Ég hafði lengi tekið inn ýmis magalyf og alltaf þurft að passa hvað ég borðaði af hveiti- og mjólkurvörum, en það tók mig nokkur ár að átta mig á að þessar matartegundir færu illa í mig. Mér var ráðlagt að taka inn magnesíum til þess að koma jafn- vægi á meltinguna og róa ristilinn. Ég prufaði nokkrar tegundir en þær hentuðu mér ekki. Til allrar hamingju var mér bent á magnesíum með fjallagrösum frá ICEHERBS, en fjallagrös eru mjög mýkjandi. Nú hef ég tekið magn- esíumblönduna í um fjögur ár og aldrei liðið betur. Ég er komin með sléttan maga og meltingin er komin í hið stakasta lag. Með því að taka reglulega inn magnesíum með fjallagrösum get ég jafnvel leyft mér að svindla, því ég veit fátt betra en að geta fengið mér pasta og hvítlauksbrauð á góðum degi. Við bakflæðinu tek ég hósta- mixtúru með fjallagrösum frá ICEHERBS. Mixtúran er bragðgóð og mjúk í hálsi og hjálpar mér að sofa eins og engill,“ segir Hrafn- hildur. Einstök blanda Magnesíumskortur er eitt stærsta lýðheilsuvandamál sem við glímum við í nútímanum. Magn- esíum er eitt mikilvægasta stein- efni í líkamanum og kemur við sögu í yfir 300 efnaskiptum, allt frá slökun vöðva- og taugakerfis- ins, virkni hjarta- og æðakerfisins og í upptöku steinefna. Magn- esíum blandan frá ICEHERBS er einstök á heimsvísu og inniheldur magnesíum citrate og handtínd, íslensk fjallagrös. Fjallagrösin og magnesíumið virkar saman á einstakan hátt. Fjallagrösin mýkja meltinguna og magnesíum eykur upptöku á steinefnum úr fjalla- grösunum. Magnesíum citrate er eitt fárra bætiefna sem er gott að taka inn að staðaldri, en það er mjög erfitt að fá nægt magnesíum úr fæðunni. Þá er mælt með að þeir sem stunda líkamsrækt taki magnesíum reglulega. Áhrif magnesíums Magnesíum stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi og er talið bæta gæði svefns og draga úr fótapirr- ingi og sinadrætti. Þá stuðlar magnesíum að því að draga úr þreytu og lúa. Magnesíum er einnig notað í meðhöndlun meltingarvanda- mála. Það eykur vatnsinntöku í meltingarkerfið sem auðveldar líkamanum að melta og losa hægðir. Þá er magnesíum einnig hreinsandi og hefur góð áhrif á ristilinn. Það stuðlar líka að eðli- legri starfsemi taugakerfisins. Leyndarmál frá náttúrunni Fjallagrösin hafa öldum saman verið notuð sem náttúruleg heilsujurt á Íslandi. Þau eru rík af steinefnum og stuðla að heil- brigðri þarmaflóru. Þá eru fjalla- grös vatnslosandi og minnka bjúg. Fjallagrös innihalda einnig trefjar sem mynda mýkjandi himnu á slímhúð í maga sem bætir og mýkir meltinguna. Hrein náttúruafurð Markmið ICEHERBS er að nýta náttúruauðlindir sem tengjast íslenskri hefð og sögu og vinna í hreina neytendavæna vöru fyrir viðskiptavini. „Við hjá ICEHERBS leggjum áherslu á að framleiða hrein og náttúruleg bætiefni sem byggja á sjálfbærri nýtingu nátt- úruauðlinda. Við viljum að vör- urnar okkar nýtist viðskiptavinum okkar, að virkni skili sér í réttum blöndum og að eiginleikar efnanna viðhaldi sér að fullu. Þá notum við enn fremur engin óþörf fylliefni.“ n ICEHERBS fæst í öllum betri mat- vöruverslunum, apótekum og heilsuvöruverslunum og í nýrri vefverslun á www.iceherbs.is. Kemur ró á ristilinn Magnesíum með fjallagrösum frá ICEHERBS hefur hjálpað Hrafnhildi Hákonar dóttur mikið. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 4 kynningarblað A L LT 4. janúar 2023 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.