Fréttablaðið - 05.01.2023, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 05.01.2023, Blaðsíða 6
Framleiðendur og heildsalar boða miklar verðhækkanir á mat. Bygging Kárahnjúkavirkjunar var ein stærsta og umdeildasta framkvæmd Íslands. Fréttablaðið/Vilhelm Framsóknarmenn og Sjálf- stæðismenn eru virkjanaglað- astir samkvæmt nýrri könnun Prósents. Andstaðan er mest innan Sósíalistaflokksins. kristinnhaukur@frettabladid.is orkumál Meirihluti kjósenda flestra stjórnmálaflokka styður að reistar verði fleiri virkjanir á Íslandi. Mestur stuðningur mælist hjá kjós- endum Framsóknarf lokksins en minnstur hjá kjósendum Sósíalista- flokksins. Þetta kemur fram í nýrri könnun Prósents fyrir Fréttablaðið. 66 prósent styðja auknar virkj- anaframkvæmdir. Það er bæði vatnsafls- og jarðvarmavirkjanir. Framsóknarmenn eru hrifnastir af auknum virkjanaframkvæmdum. 85 prósent þeirra telja þörf á f leiri virkjunum, þar af 44 prósent mun fleiri. Aðeins 2 prósent Framsóknar- manna telja þörf á færri virkjunum. Staðan er svipuð í Sjálfstæðis- flokknum. 84 prósent Sjálfstæðis- manna telja þörf á auknum virkj- unum. Hjá Miðf lokknum mælist stuðningurinn 78 prósent, 77 hjá Viðreisn og 66 hjá Flokki fólksins. Rúmur helmingur Samfylkingar- fólks vill virkja meira, eða 56 pró- sent, og lýkur þar með upptalningu þeirra f lokka þar sem meirihluti er fyrir auknum virkjanafram- kvæmdum. Tæpur helming ur k jósenda Vinstri grænna, 49 prósent, vill virkja meira, þar af 11 prósent mun meira. 37 prósent þeirra telja hvorki þörf á f leiri né færri virkjunum en 13 prósent vilja fækka þeim. St uðning u r inn v ið au k nar virkjanaframkvæmdir er minni í tveimur flokkum. Pírötum þar sem 46 prósent vilja f leiri virkjanir og Sósíalistaflokknum, þar sem stuðn- ingurinn er 44 prósent. Andstaðan við virkjanir mælist langmest innan Sósíalistaflokksins, 19 prósent kjós- enda hans vilja fækka virkjunum. Samk væmt stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar verður sátt að ríkja um nýjar virkjanir til þess að byggja upp grænt og kolefnishlut- laust samfélag. „Mestu skiptir að það verði gert af varfærni gagnvart viðkvæmri náttúru landsins og í takt við vaxandi orkunotkun sam- Helmingur Vinstri grænna vill fleiri vatnsafls- og jarðvarmavirkjanir Viðreisn VG Sjálfstæðisflokkurinn Sósíalistaflokkurinn Píratar Miðflokkurinn Samfylkingin Framsóknarflokkurinn Flokkur fólksins 10% 36% 42% 6% 5% 17% 39% 31% 7% 6% 26% 51% 21% 44% 41% 13% 47% 31% 17% 4% 6%11% 38% 37% 7% 6% 38% 37% 11% 8% 43% 41% 15% 37%29% 29% 4% Stuðningur við vatnsafls- og jarðvarmavirkjanir eftir flokkum n Mun fleiri n Aðeins fleiri n Hvorki né n Aðeins færri n Mun færri Könnunin var netkönnun, gerð 22. til 30. desember. Úrtakið var 4.000 og svarhlutfallið 49,6 prósent. hliða útfösun jarðefnaeldsneytis, til að mæta fólksfjölgun og þörfum grænnar atvinnuuppbyggingar,“ segir þar. Stefna stjórnvalda er að koma á orkuskiptum árið 2040. Samorka, hagsmunasamtök orkufyrirtækja, hefur hins vegar bent á að virkja þurfi sem nemur fimm nýjum Kára- hnjúkavirkjunum til að þau mark- mið náist. Guðlaug u r Þór Þórða r son, umhverfis-, orku- og loftslagsmála- ráðherra, boðaði fyrir áramót að níu ára kyrrstaða í uppbyggingu virkjana sé rofin. Bygging vatns- aflsvirkjunar í neðri hluta Þjórsár hefjist í ár og ÍSOR hefur verið falið að kortleggja jarðhitasvæði. Í kringum 80 prósent orkunnar fara til stóriðju og gagnavera. Um 10 prósent fara til annarrar atvinnu- starfsemi, um 5 prósent til heimil- anna í landinu og svipað hlutfall glatast í kerfinu. n H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ö n n u n Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði til verkefna sem tengjast tilgangi sjóðsins. Hlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka. Að þessu sinni verður lögð áhersla á að styðja verkefni sem stuðla að kynningu, nýliðun og nýsköpun. Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á: www.rannis.is/sjodir/aesku-ithrotta/aeskulydssjodur/. Vakin er athygli á að skila þarf inn umsóknum fyrir kl.15.00 miðvikudaginn 15. febrúar. Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson, andres.petursson@rannis.is, sími 699 2522. Umsóknarfrestur er 15. febrúar 2023 Æskulýðssjóður olafur@frettabladid.is NEYTENDur Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær stefnir í að matarverð hækki verulega á næst- unni, ef marka má verðhækkanir heildsala og framleiðenda nú um áramótin. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir að launþegar hafi lagt sín lóð á vogar- skálar verðlagsstöðugleika með nýgerðum kjarasamningum og nú verði þeir sem geta haft bein áhrif á matarverð í landinu að gera sitt. „Nú verður verslunin og millilið- irnir að halda álagningu hóflegri,“ segir Vilhjálmur. Hann segir líka mikilvægt að stjórnvöld leggi sitt af mörkum. „Tollkvótakerfið hér er til þess fallið að hækka matarverð og skýtur það mjög skökku við,“ segir Vilhjálmur. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, tekur í sama streng og vísar í að gerð hafi verið bókun í kjara- samningum við atvinnurekendur um endurskoðun á sviði tolla- mála. Hann bendir sérstaklega á tollkvótana. „Það nær engri átt að Nú komið að öðrum en launafólki Vilhjálmur Birgisson segir boltann nú vera hjá þeim sem hafa bein áhrif á matarverð. Fréttablaðið/aNtON briNK verksmiðjuframleiðendur kjöts hér geti keypt upp tollkvóta til að halda uppi verði á sinni framleiðslu á kostnað launafólks,“ segir Ragnar. Hann segir að ákveðið hafi verið að ráðast í verðlagseftirlit til að fylgjast með matarverði, enda hafi margir innan verkalýðshreyfingar- innar áhyggjur af því að lausung verði á verðlagi. n gar@frettabladid.is kólumbía Að fá staðgöngumóður í Kólumbíu er eins auðvelt og að kaupa notaðan bíl segir spænska blaðið El País. Að sögn El País eru fjölmargar konur í Kólumbíu sem bjóðast til að verða staðgöngumæður á Facebook. Það sé eins og á uppboði þar sem konurnar keppist um að lýsa kostum sínum að þessu leyti. Sífellt algengara verði að börn séu keypt í gegn um staðgöngumæðrun í landinu. Þar séu slík viðskipti ekki reglum háð líkt og gildi til dæmis í Evrópulöndum. Viðskiptavinirnir séu aðallega útlendingar. n Staðgöngumæður keppa um kúnna Ungabarn. Fréttablaðið/Getty ragnarjon@frettabladid.is baNDaríkiN Mikill óvissa var í gær- kvöldi um val á forseta fulltrúadeild- ar Bandaríkjaþings. Repúblikaninn Kevin McCarthy hafði ekki tryggt sér embættið er blaðið fór í prent í gær eftir fimm kosningaumferðir. Kosningin er iðulega formsatriði en ferlið  nú hefur  ekki tekið eins langan tíma í yfir hundrað ár. Málið er vandræðalegt fyrir Repúblikana sem fengu nauman meirihluta í fulltrúadeildinni. Ekkert er hægt að aðhafast í þinginu fyrr en forsetinn hefur verið valinn. n Mikil óvissa var með þingforseta Kevin McCarthy taldi sig öruggan um að verða forseti fulltrúadeildarinnar. 6 Fréttir 5. janúar 2023 FIMMTUDAGURFréttablaðið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.