Fréttablaðið - 11.01.2023, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 11.01.2023, Blaðsíða 9
Ábendingar hafa borist Neytendasamtökunum um að fólk sé að skila vörum sem keyptar voru á fullu verði fyrir jól í skiptum fyrir inn­ eignarnótu fyrir sömu vöru á tilboðsverði. Engin lög eru til á Íslandi um skilarétt á ógall­ aðri vöru. Neytendastofa bendir einnig fólki á skilarétt þess við fjarsölu. helgisteinar@frettabladid.is Eftir jól og nýár er algengt að fólk skili jólagjöfum án þess að gera sér fulla grein fyrir því hver skilaréttur þess er. Mismunandi skilaréttur er við lýði eftir því hvort varan var keypt á sölustað eða á netinu. Breki Karlsson, formaður Neyt­ endasamtakanna, segir að sér hafi borist ábendingar um að fólk sé að skila vörum sem keyptar voru á fullu verði fyrir jól en fái síðan inneignarnótu fyrir sömu vöru á tilboðsverði. Hann segir að ekki séu til nein lög um skilarétt á ógallaðri vöru en telur að hafi vara verið keypt á fullu verði þá eigi fólk að fá fullt verð í inneignarnótu. Að sama skapi ætti verslun að geta óskað eftir því að nótan gildi ekki fyrr en eftir að útsölunni lýkur. Neytendasamtökin hafa gefið það út að fólk eigi að fá skilafrest til 15. janúar. Skilafresturinn í versl­ unum gildir oftast fram yfir fyrstu daga í janúar en Breki bendir á að margar útsölur byrji jafnvel fyrir það. Að mati samtakanna ætti fólk að geta ráðið hvort það fær vöru á útsöluverði eða bíði fram yfir útsölu og fái nótuna með fullu verði. Breki bætir við að engar reglur séu heldur til staðar þegar kemur að gjafabréfum eða inn­ eignarnótum. „Við sjáum þetta sérstaklega í þjónustugeiranum þar sem gjafa­ bréf eru mikið notuð. Gjafabréf á hótel hafa til dæmis alls konar tak­ markanir sem fólk gerir sér ekki grein fyrir. Ef það eru einhverjar takmarkanir þá verða þær að koma fram á bréfinu sjálfu,“ segir Breki. Matthildur Sveinsdóttir, lög­ fræðingur hjá Neytendastofu, tekur í sama streng og segir að allar takmarkanir verða að koma skýrt fram á vörum sem keyptar eru. „Það geta talist villandi við­ skiptahættir að veita neytendum ekki upplýsingar um eitthvað sem er líklegt til að hafa áhrif á ákvörð­ un þeirra um að eiga viðskipti,“ segir Matthildur. Hún bætir við að þó svo að enginn lögbundinn skilaréttur sé til staðar á sölustað þá hafi neyt­ andi, sem kaupir vöru í fjarsölu og hefur hvorki séð vöruna né kynnst eiginleikum hennar, alltaf rétt til að hætta við kaupin án nokk­ urra skýringa innan 14 daga frá því hann fær vöruna af henta. Í þessum tilvikum á neytandi rétt á að fá endurgreiðslu og ber honum að skila vörunni eigi síðar en 14 dögum eftir að tilkynningin hefur verið send út. Hér er mjög mikilvægt fyrir selj­ endur að standa við skyldur sínar því ef þessar upplýsingar eru ekki veittar til viðskiptavina fram­ lengist fresturinn úr 14 dögum í 12 mánuði. n Í kjölfar heimsfarald- ursins byrjaði stór hluti starfsmanna Disney að sinna störf- um sínum bæði heima fyrir og á vinnustað. Við eru kannski bara að upplifa eftirköst af seinustu þremur árum. Ísleifur Þórhallsson, framkvæmda- stjóri Senu Live Gjafabréf á hótel hafa til dæmis alls konar takmarkanir sem fólk gerir sér ekki grein fyrir. Breki Karls- son, formaður Neytendasam- takanna Viðskiptavinir hafa meiri rétt gagnvart netverslun Neytandi sem kaupir vöru á netinu hefur alltaf fjórtán daga skilafrest eftir að hafa fengið vöruna afhenta. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY helgisteinar@frettabladid.is Bob Iger, for stjóri Dis n ey, hefur sagt að starfs fólk fyrir tækisins sem vinnur nú að heiman muni þurfa að mæta til vinnu fjóra daga vikunnar frá og með byrjun mars. Í kjöl far heims far aldursins byrj­ aði stór hluti starfs manna Dis n ey að sinna störfum sínum bæði heima fyrir og á vinnu stað. Iger segir hins vegar að lykillinn fyrir skapandi fyrir tæki eins og Dis n ey sé að eiga sam skipti við við skipta vini í eigin per sónu. Til k ynningin kemur að eins tveimur mánuðum eftir að Bob Iger tók aftur við sem for stjóri Dis n ey af Bob Chapek. „Það kemur ekkert í staðinn fyrir þá reynslu sem við öðlumst með því að tengjast, fylgjast með og skapa upp lifun í gegnum nær veru við við skipta vini okkar. Það gefur okkur einnig tæki færi til að vaxa og læra af leið togum og leið bein endum fyrir tækisins,“ skrifaði Iger í minnis­ blaði til starfs manna sinna. Dis n ey er þar með eitt af mörgum fyrir tækjum sem snúið hafa við þeirri stefnu sinni að leyfa starfs­ fólki að vinna að heiman. Fyrir tæki á borð við Twitter, Snap, Tesla og Uber hafa einnig gert svipaðar breytingar á sínum skrif­ stofum. Tækni risinn App le hefur þar að auki sagt sínu starfs fólki að það muni þurfa að mæta til vinnu að minnsta kosti þrjá daga vikunn­ ar. n Starfsmönnum Disney gert að mæta aftur á vinnustað Bob Iger tók skyndilega aftur við sem forstjóri Disney á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA helgisteinar@frettabladid.is Yfir völd í Hong Kong hafa til kynnt að þau muni af létta banni á inn­ flutningi hamstra í lok mánaðarins. Bannið á innflutning hamstra var sett á í fyrra í kjöl far Co vid­smita í gælu dýra búð og neyddust stjórn völd til að svæfa rúm lega 2.000 nag dýr. Land búnaðar­, sjávar út vegs­ og náttúru verndar deild Hong Kong sagði í sam tali við frétta stofuna BBC að þrátt fyrir af léttingu á bann­ inu yrðu hamstrarnir engu að síður skimaðir fyrir veirunni. Tals maður deildarinnar sagði að einungis þau dýr sem reynast nei kvæð fyrir Covid­19 verði seld í gælu dýra­ búðum borgarinnar. Stjórn völd í Hong Kong bönnuðu allan inn flutning á hömstrum á síð­ asta ári eftir að starfs maður í Litt le Boss­gælu dýra búðinni greindist með Delta­af brigðið. Í ljós kom að ellefu hamstrar sem höfðu verið f luttir inn frá Hollandi reyndust smitaðir af Co vid­19. Vanessa Barrs, prófessor í dýra­ heil brigði við borgar há skólann í Hong Kong, sagði að á kvörðunin um að svæfa hamstrana hefði verið mjög sorg leg á sínum tíma, en búið var að stað festa smit tengsl milli hamstra og manna. n Innflutningur hamstra leyfður á ný Stjórn völd í Hong Kong bönnuðu allan inn flutning á hömstrum á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA helgisteinar@frettabladid.is Ísleifur Þórhallsson, framkvæmda­ stjóri Senu Live, segist finna fyrir því að erfiðara sé að halda viðburði en áður fyrr. Hann segir markaðinn fyrir sýningarhald hafa breyst og að viðburðahaldarar þurfi einfaldlega að aðlaga sig breyttum aðstæðum. „Það er eins og það þurfi eitthvað meira til að fá fólk til að kaupa miða. Fólk virðist vera að kaupa miðana sína seinna og er þar að auki orðið viðkvæmara fyrir miðaverðinu.“ Hann segir að þegar Covid byrj­ aði hafi verið mikil óvissa um allan heim um það hvernig framtíð við­ burða myndi vera og þá sérstaklega hvort viðskiptavinir myndu skila miðum sínum eða ekki. „Meirihluti hélt miðunum sínum og fór bara á seinni sýningar, sem var mjög jákvætt. Það gaf öllum von um að við myndum koma sterk til baka eftir Covid,“ segir Ísleifur og bætir við að fyrri helming seinasta árs hafa komið sprengja í viðburða­ haldi sem mun líklega ekki sjást aftur. „Þá voru allir tónleikar, allar uppi­ standssýningar, öll afmæli, allar árs­ hátíðir og það gæti líka vel verið að fólk sé að jafna sig eftir þá sprengju. Við erum kannski bara að upplifa eftirköst af seinustu þremur árum og eigum enn eftir að sjá jafnvægi,“ segir Ísleifur. n Fólk er viðkvæmara fyrir miðaverði MarkaðurinnFréttablaðiðMiðVikuDaGur 11. janúar 2023

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.