Fréttablaðið - 11.01.2023, Page 32
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is
PRentun & dReifing Torg ehf.
2022 - 2025
Það er Veganúar og það er
skemmtilegt. Það er skemmtilegt
vegna þess að fæðufjölbreytileiki
er mikilvægur og eykur úrvalið
fyrir okkur öll. Líka þau sem vilja
hrossabjúgu eða slátur í annað
hvert mál. Það er þá hægt að
prófa falafel í hitt. Það er mikil-
vægt að við séum umburðarlynd
gagnvart fæðuvenjum hvert ann-
ars. Sjálf er ég að mestu græn-
metisæta en það kemur fyrir að
ég borði fisk. Í fjölskyldunni er
svo ein á vegferðinni í vegan og
restin af fjölskyldunni borðar
bara það sem er í matinn. Það
kemur ljómandi vel út og allir
bara vel haldnir (og rúmlega
það).
Ástæður þessa fæðuvals eru
ýmsar; þeir sem eru vegan horfa
til siðferðilegra þátta, áhrifa iðn-
aðarbúskapar á menn en jafnvel
enn frekar dýrin. Sömu þættir
skipta grænmetisætur máli og
einnig þá sem eru að draga úr
neyslu dýraafurða. Fólk horfist í
augu við eigin áhrif á umhverfið.
Í stóru myndinni er ljóst að
breytingar munu eiga sér stað
í fæðuvenjum jarðarbúa, enda
ekki síður mikilvægar en ferða-
venjur fyrir þá sem vilja minnka
kolefnisfótsporið sitt. Það er
morgunljóst að á næstu árum
og áratugum mun hlutfall fæðu
sem ekki kemur úr dýraríkinu
minnka mjög hratt og það er vel.
Í einni uppáhaldsauglýsing-
unni minni er í aðalhlutverki
karl á ferð á (dísil)jeppanum
sínum og fær af því fréttir að í
kvöldmatinn verði pasta. Hann
spyr því hvort ekki verði „matur
með’essu“. Þetta fannst mér
ægilega fyndið fyrst, enn þykir
mér þetta skondið en ég veit að
auglýsingin verður bráðum hjá-
kátleg. n
Vegan
Önnu Sigrúnar
Baldursdóttur
n Bakþankar
Hough leikur
Beethoven
MIÐASALA Á SINFONIA.IS
12.01 | 19:30
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN