Fréttablaðið - 17.01.2023, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 17.01.2023, Blaðsíða 4
Ég tel að við munum standa þennan vetur þó þetta gæti orðið krefjandi. Hrefna Hallgrímsdóttir, forstöðumaður hitaveitu hjá Veitum Ég tel að við munum standa þennan vetur þó þetta gæti orðið krefjandi. Hrefna Hall­ grímsdóttir, forstöðumaður hitaveitu hjá Veitum info@arcticstar.is - www.arcticstar.is Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618 MARINE COLLAGEN Kollagen er eitt helsta uppbyggingarprótein líkamans. Kollagen er að finna í öllum liðum, liðamótum, vöðvum, sinum og beinum mannslíkamans. Arctic Star Marine Collagen inniheldur íslensk sæbjúgu, kollagen úr þorskroði og C vítamíni. C vítamín er þekkt fyrir: • Stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir starfsemi brjósks, beina og húðar. • Stuðlar að eðlilegri starfsemi tauga- kerfisins og ónæmiskerfisins. • Stuðlar að því að verja frumur fyrir oxunarálagi og draga úr þreytu og lúa. • Stuðlar að endurnýjun afoxaðs forms E-vítamíns og auka upptöku járns. • Stuðlar að eðlilegum orkugæfum efnaskiptum. ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar fast www.arcticstar.is Arctic Star Marine Collagen Varan fæst í flestum apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, Fjarðakaup og Heimkaup.is 4 fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 17. jAnúAR 2023 ÞriÐJUDAGUr kristinnhaukur@frettabladid.is sjávarútvegur Japanska hvalveiði- fyrirtækið Kyodo Senpaku mun opna fjórar sjálfsafgreiðslubúðir með hvalkjöt. Þar munu Japanir geta keypt íslenskt hvalkjöt sem samið hefur verið um kaup á. Samkvæmt fyrirtækinu verða búðirnar opnaðar um miðjan febrú- ar. Flutt verða inn nærri 3 þúsund tonn af langreyðarkjöti frá Íslandi á hverju ári til sölu í búðunum, sem verða í Tókýo, Osaka og Yokohama. Kyodo Senpaku hefur þegar hafið prufusölu í sjálfsala á einum stað í Tókýo. Sá var opnaður í lok des- ember og er merktur „hvala búð.“ Þar er auk annars hægt að kaupa hrátt hvalkjöt sem er meðal annars notað í sushi. En einnig eldað og niðursoðið hvalkjöt af ýmsu tagi. Samkvæmt fréttasíðunni Asia News var hvalkjöt næstvinsælasta kjötið í Japan árið 1962, á eftir svína- kjöti, og seldust 233 þúsund tonn árlega. Nú er hins vegar neyslan aðeins 1 þúsund tonn og stjórnvöld vilja auka neysluna. Meðal annars með því að bjóða upp á hvalkjöt í skólum. Að sögn Kozue Mihira, sölustjóra Kyodo Senpaku, hefur salan farið mjög vel af stað þrátt fyrir að vör- urnar séu ekki verðlagðar lágt. Hafi salan farið fram úr væntingum og fyrirspurnir um hvar sé hægt að kaupa kjötið margar. n Íslenskt hvalkjöt boðið í sjálfsölum Fyrsti sjálfsalastaðurinn með hvalkjöt hefur verið opnaður. FRéttablaðið/Epa Þrátt fyrir mikinn kulda búast hitaveitur á suðvestur- horninu við því að standa af sér veturinn. Afköst næsta veturs ráðast af því hvernig gengur að hvíla lághita- svæðin. kristinnhaukur@frettabladid.is veitumál Tvær stóru hitaveiturnar á suðvesturhorninu telja sig geta staðið af sér veturinn þrátt fyrir óvenju mikla kuldatíð. Um helgina fór frostið í tveggja stafa tölu og frostið heldur áfram inn í vikuna. Gengið hefur á vatnsborðið á lág- hitasvæðunum en vonir standa til að hægt verði að hvíla lághita- svæðin fyrir næsta vetur. „Þetta langa kuldakast og álag er eiginlega fordæmalaust í áratugi. Þess vegna má ekkert út af bregða með bilanir og þannig lagað,“ segir Svanur Guðmundur Árnason, sviðs- stjóri vatnssviðs hjá HS Veitum. En fyrirtækið sér um hitaveitu á Suður- nesjum auk þess að reka fjarvarma- veitu í Vestmannaeyjum. Þó álagið hafi verið mikið síðan í byrjun desember séu engar sérstak- ar aðgerðir eða skerðingar á döfinni hjá HS Veitum. Allt hafi gengið vel hingað til. Veitur hafa hins vegar þurft að grípa til skerðinga í sundlaugum í vetur, aðallega vegna bilana. Sam- kvæmt Hrefnu Hallgrímsdóttur, forstöðumanns hitaveitu, eru engar fyrirbyggjandi eða langtímaað- gerðir í bígerð vegna áframhalds kuldatíðarinnar. Fyrirtækið fylgi hins vegar ákveðinni viðbragðsá- ætlun og mun grípa til skerðinga ef svo ber undir. Veitur settu fram spá um mikið álag um helgina, eftir- spurn upp á 20 þúsund rúmmetra á klukkustund. „Það varð reyndar ekki jafn mikið úr frostinu og spáð var en þó mikið álag,“ segir Hrefna. Erfitt sé að sjá langt fram í tímann og aðeins sé hægt að treysta á áreiðanlegar veðurspár til þriggja daga. Von er á stuttri en vel þeginni hláku tíð í lok vikunnar. „Við mynd- um vilja að horfurnar væru fyrir lengri hitatíð en spáð er. En þetta mun létta á,“ segir Hrefna. Þó að hitaveitan hafi staðið lang- varandi kuldatíðina af sér nokkuð vel hefur gengið á vatnsborðið á lág- hitasvæðunum. Staðan sé þó mismunandi eftir svæðum og sum hafa enn þá umframrýmd. „Ég tel að við munum standa þennan vetur þó þetta gæti orðið krefjandi,“ segir Hrefna. Þó að kuldakastið nú virðist vera aðskilið frá því í desember hefur í raun verið samfelld langvarandi kuldatíð. „Þá reynir þeim mun meira á að við náum að hvíla lághitasvæðin okkar vel fyrir næsta vetur.“ Suðurnesjamenn eru líka með hugann við kuldatíðina. „Við gerum ekkert annað en að fylgjast með þessu,“ segir Svanur. Boltinn sé hins vegar ekki aðeins hjá veitufyrirtækj- unum. Almenningur getur hjálpað. „Við hvetjum fólk til að fara vel með varmann,“ segir hann. n Hvíla þarf lághitasvæðin til að hægt sé að eiga fyrir heitu vatni næsta vetur Hitaveitur fylgjast vel með stöðunni hvern dag í kulda­ tíðinni. FRéttablaðið/GVa kristinnhaukur@frettabladid.is neytendur Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra mun ekki leggja fram frumvarp um breytingu laga til að leyfa framleiðslu og markaðs- setningu á CBD-olíu að svo stöddu. Starfshópur sem hún skipaði vill bíða eftir að Matvælaöryggisstofn- un Evrópu, EFSA, staðfesti öryggi olíunnar en það hefur hún ekki gert. Þetta kemur fram í svari Svan- dísar til Halldóru Mogensen, þing- manns Pírata, sem mikið hefur barist fyrir lögleiðingu CBD. Segir að EFSA hafi 19 umsóknir vegna CBD-olíu til meðferðar og enn skorti töluvert upp á að hægt sé að meta öryggi. „Meðal þess sem ekki liggur fyrir eru áhrif CBD á lifur, meltingarveg, innkirtlakerfi og taugakerfi í mönn- um,“ segir í svarinu. „Þá sýna rann- sóknir á dýrum verulegar eiturverk- anir á æxlunarfæri.“ n Breyta ekki lögum um CBD-olíu Svandís Svavars­ dóttir, matvæla­ ráðherra Rannsóknir á dýrum sýna verulegar eitur- verkanir í æxlunar- færum. arnartomas@frettabladid.is grindavÍK Rafmagnslaust var á öllum Suðurnesjum um eftirmið- daginn í gær og stóð það yfir í um tvo tíma. Suðurnesjalína 1, eina tenging svæðisins við f lutnings- kerfi Landsnets, leysti út. Línan var komin aftur í gang upp úr hálf sex en víða voru hús enn án heits vatns þegar Fréttablaðið fór í prentun. Einar Jón Pálsson, forseti bæjar- stjórnar Suðurnesjabæjar, lýsti áhyggjum sínum yfir fjarskipta- vandamálum sem fylgdu ástandinu. „Ég talaði við Símann en gat ekki fengið svör þar,“ segir Einar Jón sem óskaði svara sem forseti bæjar- stjórnar upp á öryggi í framtíðinni. „Ég á ekki von á öðru en að ég heyri frá þeim með það, og ef ekki fylgi ég því eftir.“ Einar Jón segir málið vekja upp spurningar varðandi öryggi „Við erum háð GSM símanum og engu öðru. Það er ekkert til sem heitir öryggiskerfi, ekkert skilgreint öryggiskerfi. Að sjálfsögðu ætti eitt símafyrirtæki í það minnsta að vera með öryggiskerfi sem dygði lengur og myndi þá vera á reiki milli síma- kerfa.“ Tímasetningin á rafmagnsleysinu var ekki sú besta fyrir áhugafólk um íþróttir en það skall á skömmu fyrir landsleik Íslands gegn Suður-Kóreu í handbolta. Björgunarsveitin Þor- björn í Grindavík, sem hleypt hafði varaafli á húsnæði sitt, opnaði dyr sínar og bauð Grindvíkingum að horfa á leikinn á risaskjá. „Þetta var svolítið þungt þar sem það voru margir að nota 4G og svona,“ segir Bogi Adolfsson, for- maður Þorbjarnar, en sveitin bauð gestum upp á kaffi og að hlaða símana sína á meðan leiknum stóð. „Það mættu svona þrjátíu manns og stemningin var bara góð.“ n Grindvíkingar horfðu á landsleikinn í rafmagnsleysi Bogi Adolfsson, formaður Þorbjarnar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.