Fréttablaðið - 17.01.2023, Side 12

Fréttablaðið - 17.01.2023, Side 12
Útgáfufélag: Torg ehf. Stjórnarformaður: Helgi Magnússon forStjóri og Útgefandi: Jón Þórisson ritStjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is aðStoðarritStjóri: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is fréttaStjóri: Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út fimm daga í viku og hægt er að nálgast það ókeypis á 120 fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum, Árborg, Ölfusi, Akranesi, Borgarnesi, Akureyri og víðar. Að auki er blaðið aðgengilegt í pdf-formi og í appi. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 fréttaBlaðið Kalkofnsvegur 2, 101 reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VefStjóri: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is marKaðurinn: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is HelgarBlað: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is menning: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is Íþróttir: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Hvað ætli hafi drifið alþingis- menn til að ætla þannig að ákveða fyrir hönd íslensks vísinda- fólks hvað er ákjósan- legt að rannsaka? Múgæs- ingur? Flokkur fólksins lagði fram tillögu um heima- greiðslur til foreldra meðan þeir bíða eftir leik- skólaplássi fyrir börn sín. Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is ser@frettabladid.is Áfengisskylda Vegir hins opinbera eru órann­ sakanlegri en Guðs almáttugs, síðasta sönnun þess er alls­ herjarkrafa Isavia suður með sjó um áfengisskyldu allra matarbúllanna í f lugstöð Leifs heppna Eiríkssonar. Fyrir vikið er einn vinsælasti matarbarinn á staðnum, hinn safaríki Jói, að hrökklast út með alla sína hollustu, en forkólfar þessarar dáðu djúsgerðar telja það engan veginn samrýmast heilnæmi staðarins að selja áfengi ofan í ávaxtablönduna. Ekki er með öllu vonlaust að hafa samúð með sölumönnum þessum, enda óskiljanlegt að ríkisfyrirtæki geri það að skilyrði að leigutakar hafi brjóstbirtuna til sölu. Mathallirnar Eftir að baðstöðum hefur verið komið fyrir í öllum byggðum bólum á Íslandi er komið að því að troða mathöllum í hvaða hús­ næði sem er. Það losnar ekki fer­ metri svo að ekki sé þar kominn bás og kokkur fyrir innan. En sitt sýnist hverjum, enda er verð­ lagningin á matvörunni kannski ekki alveg í takti við það að kúnninn þarf svo að segja að gera allt sjálfur. Sem minnir á flugið nú til dags, en þar er svo komið að miða­ kaupandinn þarf að gera allt sjálfur, nema að fljúga vélinni, sem er kannski næsta skref. n Kolbrún Baldursdóttir oddviti Flokks fólksins í borgarstjórn Í dag, 17. janúar, hefur borgarfulltrúi Flokks fólksins óskað eftir umræðu um manneklu í leikskólum á fundi borgarstjórnar. Mannekla í leikskólum er langvarandi vandamál í Reykjavík sem meirihlutinn hefur ekki getað leyst. Eins og vandinn blasir nú við er vissulega engin ein töfralausn. Mörg hundruð börn bíða eftir plássi. Meirihlutinn lofaði plássum í leikskólum sem ekki höfðu verið byggðir eða fullkláraðir sem var áfall fyrir foreldra. Ekki kann góðri lukku að stýra að lofa upp í erm­ ina á sér og þurfa síðan svíkja loforðin. Það er ekki aðeins vandamál að það vanti pláss heldur berast títt fréttir af því að leikskólar sendi börn heim vikulega eða jafnvel oft í viku vegna manneklu. Það gengur heldur ekki til lengdar að foreldrar ungra barna hafi áhyggjur og að starfsfólk leikskólanna sé að bugast vegna mikils álags í starfi. Hættan er að það skapist svipað ástand og er á bráðamóttöku Landspítalans en þar hefur margt starfsfólk sagt upp vegna mikils álags og slæmrar vinnuaðstöðu. Borgin, sem er í hröðum vexti, stefnir á fjölgun leikskólaplássa um allt að 500 á næsta ári. Margir leikskólakennarar hafa f lutt sig yfir til grunnskól­ anna þar sem þeim kann að finnast störfin þar meira aðlaðandi. Í Reykjavík þarf að laða fólk til starfa í leikskólum meðal annars með bættum kjörum og starfsað­ stæðum. Það kann að vera erfitt þar sem fjárhagur borgarinnar er á heljarþröm. Flokkur fólksins hefur lagt fram nokkrar tillögur til úrbóta. Til að vinna okkur út úr stöðunni þarf hlaðborð lausna. Flokkur fólksins lagði fram tillögu um heimagreiðslur til foreldra meðan þeir bíða eftir leikskólaplássi fyrir börn sín. Sú lausn er ódýrari fyrir sveitarfélagið en dýrt leikskólapláss ef miðað er við yngstu börnin. Flokkur fólksins hefur einnig ítrekað lagt til að bjóða fólki upp á sveigjanleg starfslok. Í hópi eldri borgara er dýrmætur mannauður, mannauður sem við viljum njóta sem lengst. n Lofað og svikið Hugvíkkandi efni og áhrif þeirra fengu ærið pláss í fjölmiðlaumfjöll­ un og almennri umræðu í liðinni viku í tengslum við ráðstefnu um málefnið. Á háværri umræðunni mátti bæði merkja gott markaðsstarf skipuleggj­ enda og knýjandi þörf á nýjum úrlausnum við geðrænum vanda á við þunglyndi og kvíða. Ýmsar vísbendingar eru um að þunglyndi fari vaxandi á heimsvísu og mat fjölþjóðleg rann­ sókn þunglyndi næstalgengustu ástæðu örorku á heimsvísu árið 2019. Það er því ekki að undra að bæði heilbrigðisstarfsfólk og almenning þyrsti í nýjar og betri lausnir. Þegar skipuleggjandi ráðstefnunnar segir frá því í fjölmiðlum að hún stundi meistaranám í hugvíkkandi efnum, án þess að sú fullyrðing sé skoðuð í kjölinn, má þó gera því í skóna að spennan sé hreinlega orðin of mikil. Eins þegar svo íþróttahetja, sem kynnt er sem „strákurinn okkar,“ hvetur spjallþáttastjórnanda til að prófa sveppatripp í einum vinsælasta sjón­ varpsþætti RÚV, er full ástæða til að staldra aðeins við. Nú liggur fyrir Alþingi þingsályktunartil­ laga um heimild til rannsókna og notkunar á efninu sílósíbin í geðlækningaskyni. Í henni er heilbrigðisráðherra falið að leggja til nauð­ synlegar breytingar á lögum svo heimila megi rannsóknir og tilraunir á efninu og lagt er til að Ísland verði leiðandi í slíkum rannsóknum á heimsvísu. Þegar rýnt er í umsagnir fagaðila er ekki annað að sjá en að forsvarsmenn tillögunnar hafi lítinn skilning á eðli slíkra rannsókna enda bendir Embætti landlæknis á að núgildandi löggjöf standi ekki í vegi fyrir slíkum rannsóknum. Ef íslenskir vísindamenn sjá hag í að ráðast í rannsóknir á sílósíbin eða öðrum hugvíkk­ andi efnum stendur lagaumhverfið ekki í vegi fyrir því. Aftur á móti er bent á það í fleiri en einni umsögn að fámenni og fjársveltir innviðir heilbrigðiskerfisins geri Ísland ekki að ákjósan­ legum leiðtoga í slíkum rannsóknum. Hvað ætli hafi drifið alþingismenn til að ætla þannig að ákveða fyrir hönd íslensks vísinda­ fólks hvað er ákjósanlegt að rannsaka? Múg­ æsingur? Staðreyndin er sú að eðlilegt ferli nýrra lyfja er að standast fjögurra fasa prófanir áður en þau fá markaðsleyfi. Þetta ættum við flest að hafa lært eftir heitar umræður um Covid­bólu­ efni sem sumum þótti þróast of hratt. Það sama gildir auðvitað um þessi lyf og mikilvægt er að umræðan sé á þeim nótum. Eða er það jafnvel sama fólkið sem gefur lítið fyrir vísindalegar rannsóknir á hugvíkkandi efnum – og neitaði að láta bólusetja sig af ótta við að bóluefnin væru ekki fullprófuð? n Múgæsingur halldór Frá degi til dags 12 skoðun FRÉTTABLAÐIÐ 17. jAnúAR 2023 ÞRIðJuDAGuR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.