Fréttablaðið - 17.01.2023, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 17.01.2023, Blaðsíða 28
Það er auðvitað búið að vera óhemjumikið kuldaskeið hér á suðvesturhorninu. odduraevar@frettabladid.is Borgný Katrínardóttir líffræðingur „Það er ekki algengt að and- fuglar festist í ís og oft virðast þeir bara fastir því þeir eru að spara orku í kuldanum og geta því legið hreyfingarlausir lengi,“ segir Borgný, líffræðingur við Náttúru- fræðistofnun Íslands, í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins um það hvort það sé algengt að fuglar festist í ís líkt og dæmi er um að hafi gerst síðustu daga. Blaðið ræddi meðal annars við konu sem kom tveimur álftum til bjargar í Keflavík sem frosið höfðu fastir. Sagðist konan hafa eytt um einum og hálfum tíma í björgunina. „Álftir sérstaklega eru það kraft- miklir fuglar að þær eiga í flestum tilfellum að geta losað sig. Ef þær eru fastar þá er líklega oftast eitt- hvað undirliggjandi, svo sem sjúk- dómar eða meiðsli,“ segir Borgný. „Það er auðvitað búið að vera óhemjumikið kuldaskeið hér á suðvesturhorninu sem reynir á fuglana og því gott að hjálpa þeim með matargjöfum. Varðandi and- fuglana þá er ágætt að hafa í huga að gefa þeim í bland við brauð eitt- hvað næringarríkara, eins og heil- korn og hundaþurrmat sem dæmi. Hægt er að nálgast upplýsingar á netinu um hvað má gefa þeim.“ n Ekki algengt að fuglar frjósi fastir Álftin festi sig í frostinu um helgina. Mynduðu ástina við eldfjallið Ljósmyndararnir Styrmir Kári Erwinsson og Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir sér- hæfa sig í brúðkaupsmyndum erlendra ferðamanna hér á landi. Síðastliðinn ágúst voru þau viðstödd brúðkaup bandarísks pars og tóku myndir sem unnið hafa til alþjóðlegra verðlauna. odduraevar@frettabladid.is „Þetta var svolítið öðruvísi,“ segir brúðkaupsljósmyndarinn Styrmir Kári sem myndaði bandaríska parið Alissu og Steven þar sem þau giftu sig í Meradölum þann 16. ágúst á síðasta ári, örskömmu áður en eld- gosið gaf upp öndina. Myndirnar af parinu hafa vakið alþjóðlega athygli og verið dreift ótalmörgum sinnum á samfélags- miðlum. Þau Styrmir og Heiðdís fengu alþjóðleg verðlaun frá June- bug fyrir myndirnar. Þau hafa starfað sem brúðkaupsljósmynd- arar síðan 2015 og eru því öllu vön en fyrsta eldfjallabrúðkaupið sitt mynduðu þau í Geldingadölum árið 2021. „Þetta var skipulagt af teymi af brúðkaupsskipuleggjendum frá Pink Iceland. Parið f laug með þyrlu frá Reykjavíkurf lugvelli að gosstöðvunum ásamt athafna- stjóranum Tryggva Gunnarssyni frá Siðmennt, ljósmyndurum og kvikmyndatökumanni. Á gosstöðv- unum tók á móti þeim fólk frá Pink Iceland og svo tók við göngutúr til að finna hentugan stað fyrir athöfn með tilliti til vindáttar, sjónarhorna og þess háttar,“ segir Styrmir. Hann segir athöfnina hafa verið stutta en fallega. Allt hafi þurft að ganga upp, sem það hafi gert þennan dag. „Veðrið og gasið frá eldfjallinu var til friðs. Eftir athöfn var svo búið að skella upp smá pik- nik með freyðivíni, samlokum og heitu kakói. Svo röltu brúðhjónin um svæðið með ljósmyndurunum fyrir myndatöku fram í rökkur en þá gekk öll hersingin niður af fjall- inu í þoku og grenjandi rigningu.“ Þau Styrmir og Heiðdís eru öllu vön. „Við höfum sérhæft okkur í að mynda ævintýraleg brúðkaup fyrir fólk sem vill gera eitthvað svolítið öðruvísi á brúðkaupsdeg- inum sínum. Við erum því alvön að mynda í alls konar íslenskri náttúru, til dæmis upp á fjöllum og jöklum, niðri í hellum og undir fossum.“ n Þau Alissa og Steven komust upp á fjall með þyrlu en röltu svo niður. Mynd/ StyrMir og HeiðdíS Parið var afar ánægt með útkomuna enda hafa mynd- irnar vakið verð- skuldaða athygli á alþjóðavísu. Mynd/StyrMir og HeiðdíS Við höfum sérhæft okkur í að mynda ævintýraleg brúðkaup. sérfræðingurinn | 24 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 17. jAnúAR 2023 17. janúar 2023 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.