Rökkur - 01.12.1930, Side 11

Rökkur - 01.12.1930, Side 11
R Ö K K U R 121 Skrímslissagan. (Frakkneskt æfintýri). Þýtt hefir Stgr. Th. Einu sinni var kaupmaSur nokk- ur rikur; hann átti þrjár dætur, er allar voru hinar fríÖustu, en hin yngsta var samt ■ fríöust, enda hét hún líka Fríða. En þa'Ö var ekki eingöngu það, að hún var fríðust þeirra systranna, hún var líka betri í sér en báðar hinar, því þær voru drembnar og stórlátar og gerðu ekki annað allan daginn en að stássa sig og ganga sér til skemt- unar. Einu sinni þurfti kaupmaðurinn að fara langferð í verslunarerind- um, og er hann kvaddi dætur sin- ar þá beiddu báðar hinar eldri hann að færa sér nýja kjóla, knipl- inga og skartgripi. Sú yngsta bað ekki um neitt. „Og hvað á eg að færa þér?“ spurði faðirinn loks. „Nú, ef þú endilega vilt koma með eitthvað handa mér,“ svaraði hún, „þá láttu það vera rós.“ Nú leggur kaupmaður af stað, en er hann var kominn í hafnarborg- ina, þangað sem förinni var heitið, þá höfðu skuldheimtumenn hans þegar lagt löghald á vörurnar í skipi hans, því er komið var aö landi; sá hann þá ekki annað fyr- ir, en að hverfa aftur við svo búið jafn tómhentur og hann hafði kom- ið. Á leiðinni viltist hann inn i dimman og þykkvan skóg. Nóttin datt á og hvesti og gerði kafalds- byl með frosti, svo að kaupmaður bjóst ekki við öðru en að hann mundi þar lífi týna, annaðhvort af kulda eða hungri, eöa þá að hann yrði úlfunum að bráð, sem hann heyrði þjóta þar alt í kring. En alt í einu sá hann, að hann var kom- irin inn i löng trjágöng og grilti í ljós langt í burtu, þar sem þau enduðu. Hugsaði hann þá með sér, að þar sem ljós væri, þar hlytu menn að vera fyrir, og reið hann á ljósið og kom að skrautlegri höll, sem lýst var ótal ljósum. Lofaði kaupmaður guð fyrir, aö hann hafði fundið náttstað og reið hann svo óhikað inn i hallargarðinn. En ekkert manna var þar fyrir. Fer kaupmað- ur þar af baki, og hesturinn, sem sá þar opið hesthús, fór óðara þar inn, fann þar fulla jötu af höfrum og reif í sig fóðrið með græðgi. Nú sem hesturinn hafði sjálfur séð svona fyrir sinni þörf, þá gekk kaupmaðurinn inn í höllina. Voru þar öll herbergi bjartlega lýst, en ekki sást þar nokkur maður, frem- ur en í garðinum. Kom kaupmaður loksins inn í herbergi eitt, þar sem eldur logaði glatt í arinofni og var þar dúkað borð með víni og ýms- um réttum á. Nú með því maður- inn var banhungraður, þá var hann

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.