Rökkur - 01.12.1930, Síða 35

Rökkur - 01.12.1930, Síða 35
RÖKKUR 145 Engu verSur spáð um stjórn Cerros, en sennilega verður hún óvinsæl er frá líður, eins og txtt er um hervaldsstjórnir. Hinsvegar þykir nokkurn veginn víst, aS Leguia sé ekki dauöur úr öllum æSum enn, þótt hann hafi orSiö aS hröklast frá völdum aS sinni. Þróun búnaðarins. Eftir Gunnar Árnason, biifræðiskandidat. I. Um búnaðinn í landnámstíð liér á landi vitum við fremur lítið, því saga hins íslenska húnaðar hefir aldrei verið skráð i lieild. En með þvi að geta í eyðurnar, er liægt að lýsa búnaðinum i landnámstíð í fáum orðum þannig: Landkostir voru góðir, land- rýmið var nægilegt, og bænd- urnir létu búpeninginn hjarga sér sjálfan yfir sumarið, og að þvi leyti sem liægt var yfir vet- urinn, en væri liart í ári, féll fénaðurinn að meira eða minna Ieyti, þvi að bændurnir höfðu ekki sjálfir vald yfir liver af- koma hvers árs varð. Jarðræktin var lítil. Sumpart var þekkingin svo lítil á því sviði, og þess utan að nokkru eðliiegra að meira væri um bú- fjár-eign, þar eð léttara var að láta búpeninginn nota land- kostina og' landrýmið, en brjóta landið til kornyrkju, sem hefir verið stopul, þótt þekt væri. Gerði það og sitt til að draga úr jarðræktinni, að veiðiskap- ur var nægur. Það, sem einkennir hinn fyrsta búnað eins hér á landi sem annars staðar, er að hónd- inn og heimilisfólk lians lifir af búnaði í orðsins fylstu merk- ingu. Sem minst eða jafnvel ekkert er keypt eða fengið ut- an heimilisins, kjöt, mjólk, korn (það sem liægt er að rækta) og öll matvæli, fatnað- ur, ílát, áhöld og verkfæri, alt er það framleitt eða tilbúið á lieimilinu. Einnig var tré (reka og skógarviður) og jafnvel járn (rauðablástur), unnið eða framleitt innan heimilisins. Heimilið var sjálfu sér nóg. Þq hefir fljótt, og altaf er hægt var, kornvörur verið fengnar utanlands frá. Aftur á móti hefir frumbún- aðurinn i suðlægari löndum ekki þurft að sækja neitt utan heimilisins, og verlcaskiftingin innan húnaðarins byrjar fyrst, er mentun og samgöngur auk- ast. 10

x

Rökkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.