Rökkur - 01.12.1930, Page 38
148
RÖKKUR
Því meir sem þekkingin eykst
þess betri verður afkoma bún-
aðarins, þá fækka víxlsporin á
framfarabrautinni, víðsýni og
þroski eykst, og allur rekstur-
inn verður hagkvæmari.
Eg vil hér skýra frá samtali
ininu við einn bónda til að reyna
að gera lesandanum Ijóst hvers
virði víðsýnið er fyrir þann sem
reka vill búskap.
Þetta var á nautgripasýningu
og við ræddum um nautgripi:
Hve mikið mjólkar kýrin
þín, spyr eg.
Hún komst í 14 merkur, var
svarið.
En yfir árið, spyr eg aftur.
Eg veit það ekki, svarar hann.
En viltu ekki halda skýrslu
yfir það, spyr eg enn.
Nei, eg held hún mjólkaði
ekkert meira Jx') eg viktaði úr
henni svarar hann, og þóttist
hafa svarað vel, og stungið upp
í mig fyrir forvitni mína að því
er mér virtist.
En hefði bóndinn gcfið- þetta
svar hefði hann haft verulega
þekkingu á nautgriparækt ?
Hver sem nokkuð þekkir til
slíkra hluta hlýtur að svara því
neitandi, og veit að tölur yfir
afurðir búfjárins er fróðleikur
sem hægt er að nota á víðtækan
hátt, og sliks er ekki aflað af
forvitni, heldur af nauðsyn.
Og framtiðar bóndinn og sá
sem þekkingu hefir, er ekki það
kærulaus að honum standi á
sama um, hvað kýr, sem hann
hefir í fjósinu hjá sér, mjólka.
Hann mun rannsaka hvert at-
riði ofan í kjölinn, og hann mun
ekki láta sér nægja að vita livað
hans eigin kýr mjólka, heldur
mun hann einnig leitast við að
kynnast því víðsvegar, hvað
kjTnar mjólka, til að fá upplýs-
ingar um, hvar hann geti feng-
ið bestan stofn, ef hann ekki á
besta stofninn sjálfur. Því hann
mun vita hvers virði það er að
eiga góða gripi. Og hann mun
ekki fóðra kýrnar sínar eins og
venja er að fóðra kýr, heldur
mun liann reikna út hvað hver
kýr þarf sér til viðhalds og hve
mikið hún þarf til að framleiða
hvern lítra mjólkur, og í hvaða
fóðurtegundum muni best að
gefa henni það til að fá það ó-
dýrast.
Og eins og jarðræktarmaður-
inn mun gefa hverri plöntuteg-
und það sem hún þarfnast af
næringu, og í réttum hlutföll-
um, eins mun búfjárræktar-
maðurinn gefa hverjum ein-
staklingi það, sem hann þarfn-
ast og gefa það í ódýrustu fóður-
tegundunum. Og sá, sem næga
þekkingu hefir mun e. t. v. fara
það langt að reikna út, hvort sé
meiri kostnaður að eyða flugun-
um úr fjósinu, eða láta kýrnar