Rökkur - 01.12.1930, Síða 40

Rökkur - 01.12.1930, Síða 40
150 RÖKKUR atvirmugreinir, þá má nefna framleiðslu áburðar- og fóður- efna, og loks mjólkuriðnaður, sem einnig hér til lands er að verða sérstök atvinnugrein. Þess utan verða ýmsar hand- verksgreinar sjálfstæðar, sem áður lieyrðu undir búnaðinn, s. s. malarar, slátrarar, söðla- smiðir, vagnasmiðir o. s. frv. Þessa klofning búnaðarins þarf fyllilega að taka til greina þegar um það er rætt, live marg- ir hfi af búnaði, þar sem orðið búnáður fær þrengri og þrengri merkingu eftir því sem þekk- ingin eykst. IX. Eg vona að lesandanum hafi orðið Ijóst af þessu stutta yfir- liti, hvert stefnir með búnaðinn, og hver nauðsyn það er fyrir þá er búnað stunda að afla sér þekkingar á þvi sem þeir ætla sér að hafa með höndum. Og því aðeins að hver og einn hafi sitt ákveðna verksvið verður komist lengst, og í sjað þess að í frumbúnaði reynir hvert heim- ili að vera sjálfu sér nóg, þá verður í framtíðinni einungis ein grein búnaðarins rékin á hverju heimili, og í þeirri grein leitar bóndinn sér þeirrar fræðslu sem fáanleg er, og af því mun leiða að framleiðslan verður rekin af það mikilli þekkingu, og með þeirri hag- sýni að til fyrirmyndar sé, og að verð og gæði verði það góð að lengra verði ekki komist, og bóndinn mun hafa fult vald yf- ir hver afkoman verður. Margir eru það nú þegar inn- an bémaðarins, sem hafa tekið fyrir ákveðnar einstakar grein- ar, enda hafa þeir komist lengst. (Eg verð að taka það fram að lokum til að fyrirbyggja mis- skilning, að enda þótt þróun búnaðarins sé sú að klofna í fleiri og fleiri greinar, þá mun þó búskapur í smáum stíl, þar sem heimilið tekur yfir sem flestar greinar og reynir að bjarga sér sem best sjálft, einn- ig verða rekinn þar sein menn- ing og þroski búnaðarins er kominn á hátt stig; en á slikum heimilum mun ekki verða hægt að komast það langt með fram- leiðsluverð, og gæði á fram- leiðsluvörum, og þar sem lögð er rækt við einstakar greinir, og öll fáanleg þekking og reynsla kemur starfinu að fullum not- um. Brauðverð í Bretlandi lækkaði i septembermánuði og hefir brauðverð aldrei verið lægra þar í landi seinustu sex- tán árin en nú.

x

Rökkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.