Rökkur - 01.12.1930, Side 42

Rökkur - 01.12.1930, Side 42
152 R O K K U R heyrenda, og er hver maður frjáls að því að gera slíka tilraun, án þess að verðá fyrir áreitni. Hinsvegar má öllum Íjóst vera, að Ijóðabóka- viðkoman er orðin svo mikil, að engin von er til, að nema allra bestu bækurnar nái nokkurri verulegri út- breiðslu. Þvi það eru þó takmörk fyrir þvi, sem fámenn þjóð, þó ljóð- elsk sé, getur við tekið. Við eignuð- umst þá meistara á 19. öldinni, að þess getur orðið langt að bíða, að við eignumst ljóðskáld, sem jafnist á við' þá. Sannleikurinn er sá, að 19. aldar skáldin, — til þeirra má auðvitað telja öll þau skáld, sem ljóð voru farin að birtast eftir fyr- ir og um aldamót, — eru einmitt þau ljóðskáldin, sem enn þann dag í dag eru mest lesin. Ljóð þeirra hafa komið út í mörgum útgáfum og selj- ast altaf jafnt og þétt. Og upplögin voru þó stærri en nú tiðkast um ljóðabækur, sem munu nú ekki nema i örfáum tilfellum ná tölunni 2000. Steingrímsbók t. d., kom út 1910 og aftur 1923 (3. og 4. útgáfa). Sigurður Kristjánsson lét prenta 4000 eintök af henni 1910, og var ósmeykur við að prenta önnur 4000 eint. 13 árum síðar, og var þó út- gáfan óbreytt. Þegar bækur ná slík- mn vinsældum og Steingrímsbók, og það má benda á margar fleiri: Bjarna, Jónasar, Kristjáns, Matthí- asar o. fl., þá má ungum skáldum vera Ijóst, að þeir verða að taka á honum góða sínum, ef þeir eiga að komast á bekk með þessum skáld- um. Og sannleikurinn er þá líka sá, að þau skáld, sem fram hafa komið á 20. öldinni, komast fæst i námunda við gömlu skáldin. Þeirra á meðal eru þó glæsileg skáld, svo sem Da- \ið Stefánsson, Jón Magnússon og Sigurður Sigurðsson, sem eg, vegna nokkurra kvæða hans, mundi hik- laust setja efstan þeirra skálda, sem fram hafa komið á þessari öld, til þessa dags, — t. d. kvæðið Hjörsey. En einhvern veginn finst mér, að allir eigi þó eitthvert erindi á skálda þingið. Stór kvæðabók eða litil, þótt hún flytji ekki nema eitt gott kvæði, á sitt erindi til alþýðu manna. Mér dettur í hug kvæðið hans Magnúsar Gíslasonar, „Nú ríkir kyrð í djúp- um dal“, snoturt kvæði, sem öllum þykir vænt um og allir, sem sungið geta, hafa sungið. Nafnið Magnús Gislason deyr ekki fyrir þetta eina kvæði. Að komast á bekk með meist- urunum, ætti að verða hvöt þeim, sem bestum gáfum eru gæddir, og lika hvöt smærri spámönnunum, að vanda sig sem mest; taka meistarana til fyrirmyndar sér, þó ekki væri i öðru en að læra að bera virð- ingu fyrir listinni. — Þetta er þeg- ar orðið ærið langur inngangur, en þetta kom nú fram i hugann, þegar mér barst i hendur ljóðabók vest- an úr Kanada, gefin út árið sem leið. Höfundur hennar er Richard Reck háskólakennari, sem er orð- inn þjóðkunnur maður fyrir ritstörf sín. Um Reck verður það sagt með sanni, að listin er honum helg. Hon- um er lotning i hug, þegar hann krýpur í musteri listarinnar. Ljóð hans bera það með sér. Þess vegna eru þau hugðnæm og likleg til vin- sælda. En þau bera það elcki með sér, — hvað sem seinna verður, — að hann verði jafnoki gömlu meist- aranna. En Beck hefir þegar sýnt, með þessum ljóðum, að hann er gott skáld, sem vandar val yrkisefna sinna og tekst oft prýðilega að túlka göfugar hugsanir í ljóðmáli. Og mér *

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.