Rökkur - 01.12.1930, Page 47
R Ö K K U R
157
Þráðlaust talsamband.
„Heimur versnandi fer“, stend-
ur einhversstaSar skrifað og svip-
a*ð verður þeim oft að orði, sem
einblina aftur en ekki fram, telja
að liðnu tímarnir hafi verið betri,
— „í þá gömlu góðu daga“, segja
menn stundum, en sannleikurinn
er þó vafalaust sá, að þrátt fyrir
alt fer heimurinn batnandi. Það
verður að mánsta kosti ekki um
það deilt, aö hinar mikilsverðu
uppgötvanir, sem gerðar hafa ver-
ið síðustu áratugi, hafa létt mönn-
um lífiS á margan hátt, gert mönn-
um störf auðveldari og skemti-
legri, bætt kjör miljóna, varpað af
mönnum áhyggjum og gert menn
glaðari, ánægðari með lífið, þótt
kannske megi um það deila, hvort
menning vorra daga hafi enn
megnað að lyfta mönnum hærra,
í andlegum skilningi talað. Ein
hinna mikilverðustu uppgötvana,
sem gerð hefir verið á síðari tím-
um, eru þráðlausu talsímamir,
sem nu hafa veriö fullkomnaðir
mjög. Verður þess vart langt að
bíða, að íslendingar geti talað við
| skyldmenni sín og vini í fjarlæg-
um heimsálfum. Er fróðlegt að
lesa um það, sem nágrannaþjóð
vor, Bretar, eru að gera á þessu
sviði. Þeir eru nú að koma á þráð-
Eusu talsímasambandi við Ind-
land og innan skamms verður
einnig komið á talsímasambandi
milli Englands og Suður-Afríku,
en markið er að England verði
talsímiasambands-miðstöð alls
Bretaveldis. Verður þetta eitt af
stórmálum þeim, sem rædd verða
á albresku ráðstefnunni, sem hefst
i London þ. 30. sept. Þegar búið
er að framkvæma það, sem nú er
ráðgert þessum málum viðvíkjandi
geta talsímanotendur i Englandi,
fengið þráðlaust talsímasamband
við hvaða talsímanotanda sem er
í nýlendunum. Og þess verður vart
langt að bíða, að talsímanotendur
um heim allan geti hringt hvert
um heim, sem vera skal, þar sem
talsímar eru fyrir. Það er þegar
svo langt komið, að nú getur tal-
símanotandi í Hampstead, London,
talað frá heimili sínu til Astralíu,
Argentínu, Uruguay, Chile, Mar-
okko, Bandaríkjanna, Kanada,
Mexíkó og Kúba — og auk þess
til flestra borga á meginlandi
Evrópu. Sir. Cecil Clementi, bresk-
ur landstjóri, 'staddur á Java i
Asiu, talaði nýlega við nýlendu-
málaráðuneytið breska í London.
Er það í fyrsta skifti, sem bresk-
ur nýlendumálaráðherra hefir tal-
að í síma við breskan landstjóra,
staddan austur i Asíu. Vegalengdin
frá Java er ca. 7500 mílur enskar.