Rökkur - 01.12.1930, Side 50
aoferöir við byggingu slíks stór-
hýsis.
Ungur risi.
Ivan Langley er enskur piltur
nefndur, sextán ára gamall. Hann
er fimm fet ensk á hæS og io
þuml. og vegur 420 pund ensk og
vex enn óSfluga og gildnar aS
sama skapi.
Gistihús mikið
er veriö aS byggja viS Park Lane
í London, þar sem áSur var Dor-
chester House. HiS nýja gistihús
er 270 fet á lengd og 105 á hæS.
— Fáar borgir munu jafnmiklum
breytingum undirorpnar og Lun-
dúnaborg nú á dcgum. VerSur
breskum blöSum tíSrætt um breyt-
ingarnar, sem flestar þykja til
mikilla bóta, en þó kveSur viS
annan tón hjá þeim, semi sakna
gamalla og merkra húsa, sem orS-
iS hafa aS víkja fyrir nýtísku
húsum.
Frá Frakklandi.
Atvinnuleysi er nú afar mik-
ið í Þýskalandi, Bretlandi og
fleiri löndum, eins og af og til
er getið um í skeytum til blað-
anna. En það verður alt ann-
að uppi á teningnum, þegar til
Frakklands kemur, því þar
standa atvinnuvegirnir í mikl-
um blóma. Þ. 19. sept. flutti eitt
Lundúnablaðanna fregn frá
París þess efnis, að 904 karlar
og konur hefði undanfarna
viku þegið atvinnuleysisstyrk
frá binu opinbera, en 928 vik-
una þar á undan. Og frá 8.—13.
sept. voru 2,702 útlendingar
fluttir inn til ýmiskonar vinnu,
ítalir, Pólverjar og Portúgals-
menn, og nokkrir Þjóðverjar.
Auk þess komu fjölda margir
útlendingar til Frakklands til
vinnu yfir uppskerutímann.
Breska flugmálaráðuneytið
hefir falið Vickers Aviation,
Ltd., í Southampton að smíða
flugbát mikinn.Flugbátur þessi
á að geta flutt 40 farþega, auk
flugmannanna. Flugbáturinn
verður 100 feta langur, 20 feta
hár og 160 fet á milli væng-
brodda. Flugbáturinn verður all-
ur smíðaður úr málmi og verð-
ur 34 smálestir á þyngd. Sex
Rolls-Royce H-vélar verða í
flugbátnum og hefir bver
þeirra 850 hestöfl. Hámarks-
hraði flugbátsins verður senni- ;
lega 155—160 mílur enskar á
klukkustund. Ráðgert er, að
smíði flugbátsins taki alt að
því tvö ár.
Heimskreppan og bankarnir.
Ensk blöð skýra frá því í lok
septembermánaðar, að í ráði
væri að helstu bankamenn stór-
veldanna kæmi saman á ráð- j