Rökkur - 01.12.1930, Síða 51
ROKKUR
161
stefnu i New York bráðlega, til
þess að ráðgast um, hvernig til-
tækilegast væri að ráða bót á
heimskreppunni. Á meðal þátt-
takendanna verða aðalbanka-
stjórar Englandsbanka og
Frakklandsbanka (Banque de
France), dr. Hans Luther frá
þýska rikisbankanum (Reiehs-
bank) o. fl. Frá Englandsbanka
eru tilnefndir Montagu Norman
yfirbankastjóri og Sir E. M.
Harvey. —
Tékkar og talmyndirnar þýsku.
Mikillar andúðar í garð Þjóð-
verja hefir gætt að undanförnu
i T kkóslóvakíu, aðallega í Prag.
Vilja Tékkar, margir hverjir,
draga sem mest úr þýskum
áhrifum þar í landi. Kom þetta
livað skýrast i ljós dag nokkura
seinni hluta septembermánaðar,
er nokkur þúsund þjóðernis-
sinna, sem flestir eða allir voru
T kkar, söfnuðust saman á göt-
unum i Prag og létu reiði sína
við Þjóðverja bitna á þeim leik-
hússtjórum, sem þá dagana
sýndu þýskar talmyndir í leik-
húsum sínum. Lögreglan fékk
við ekkert ráðið og voru margir
Iögreglumenn hart leiknir. Múg-
urinn æddi þvi næst inn i Avion
kvikmyndaleikhúsið, en þar var
há sýnd þýsk lalmynd, barði á-
horfendur og rak alla kvik-
myndahússgestina út. Leikhús-
stjórinn var neyddur til að hætta
að sýna talmyndina. Múgurinn
æddi því næst um göturnar og
mölvaði rúður i öllum búðum ’
Þjóðverja og Gyðinga. Sama
sagan og í Avion endurtók sig
í tveimur öðrum kvikmynda-
leikhúsum. Ennfremur braut
múgurinn allar rúður á skrif-
stofum Prager Presse, blaði Be-
nes utanríkismálaráðherra. —
Borgarstjórinn í Prag neyddist
loks til þess að biðja innanríkis-
málaráðherrann að banna að
sýna þýskar talmyndir um
stundarsakir.
Nýtt olíumálahneyksli?
Ralpli Kelly, umboðsmaður
Bandaríkjastjórnar í Colorado
ríki, sem hefir umsjón með
jarðeignum ríkisins þar, hefir
borið það á innanrikismála-
ráðuneytið í Washington, að
það hafi á undanförnum sex
árum veitt öflugum oliufélög-
um umráð yfir stórum olíu-
svæðum, sem eru ríkiseign, í
fullu heimildarlevsi og ríkinu
til stórskaða. Jafnframt sagði
Kelly af sér starfa sínum eftir
25 ára starf fyrir ríkið. Ætla
margir, að hér muni ekki
minna hneykslismál á ferðinni
en Teapot Dome hneykslið svo
nefnda, er Fall fyrrverandi