Rökkur - 01.12.1930, Blaðsíða 52
162
R ö K K U R
innanríkisráðherra var við rið-
inn, og svo mikla eftirtekt
vakti fyrir nokkrum árum.
Kelly telur, að liér sé um að
ræða 800.000 ekrur lands. Oliu-
lindir eru miklar á þessum
slóðum og telur Kelly verð-
mæti þeirra 40 milj. dollara.
— Wilbur innanríkismálaráð-
herra liefir svarað Kelly og
telur ásakanir hans markleysu.
En málið verður rætt í þing-
inu. Andstæðingar stjórnar-
innar sjá um það. Verður
stjórnin vafalaust að gefa full-
nægjandi skýrslu, og verður
að svo stöddu ekki sagt liverj-
ar líkur eru fyrir því, að hún
geti hreinsað sig af ásökunum
Kelly’s. Reynsla liðinna tíma
liefir á stundum verið sú, að
margir óttast, að stjórnin hafi
eitthvað óhreint i pokahorn-
inu.
Fernando de Rosa,
stúdentinn frá Turin, sem þann
22. okt. í fyrra gerði tilraun til
þess að myrða Umberto, italska
krónprinsinn, er hann var
staddur í Belgíu, var dæmdur til
5 ára fangelsisvistar. — Verj-
andi de Rosa liafði m. a. sagt:
„Ef konungurinn í Ítalíu hefði
ávalt mælt eins djarflega og
komið eins göfugmannlega
fram og Albert Belgíukonung-
ur, þá hefði fascisminn í Italíu
verið kæfður í fæðingunni — og
Fernando de Rosa væri ekki á-
kærður fyrir banatilræði.“ —
De Rosa lét svo um mælt í rétt-
inum, að liatrið á fascismanum
liefði leitt til þessarar ákvörð-
unar, að bana einhverjum af ít-
ölsku konungsættinni, sem
liefði gert bandalag við leiðtoga
fascismans.
Mlle. Yvonne Hautin,
ein af aðal-leikkonum frakk-
neska þjóðlcikhússins (Comó-
die Francaise), gekk nýlega i
klaustur i Lourdes.
Frakknesku flugmennirnir
Diedonné Costes og Maurice
Bellonte, sem í sumar flugu
fyrstir manna vestur yfir At-
lantshaf, frá Frakklandi til
Bandaríkjanna, höfðu 100.000
dollara upp úr afreki sínu vest-
an hafs.
HagnaSur af ferðamönnum.
Á fyrra misseri yfirstandanda
árs komu 52,302 amerískir
ferðamenn til Bretlands. —
Hagnaðurinn af komu ame-
riíjkra ferðamanna til Bret-
lands er í ár áætlaður 100 milj.
dollara.