Rökkur - 01.12.1930, Qupperneq 53
RÖKKUR
163
Loftskipaslysin.
Fiver var orsökin til þess, að
R—ÍOl fórsl?
Flugmálasérfræðinga hefir
um mörg ár greint á um, hvort
réttara væri, að leggja áherslu
á smíði risa-loftskipa eða risa-
flugvéla. Ilafa einkum Frakk-
ar haft megna ótrú á loftskip-
unum og lagt alla áherslu á
smíði flugvéla. — Þjóðverjar
liafa, sem kunnugt er, veiáð
forgöngumenn um smíði loft-
skipa, en Bretar hafa smíðað
tvö stór loftskip, R-100, sem
flaug til Kanada í sumar og
heim aftur, og R-101, er fórst
i Frakklandi þann 5. októher.
Er það mesta flugslys, sem
sögur fara af. — Bandaríkja-
menn hafa og lagt stund á
smíði stórra loftskipa. En ým-
islegt bendir á, vegna þeirrar
reynslu, sem fengist hefir, að
í framtíðinnl verði lögð meiri
áhersla á smíði stórra flug-
véla en loftskipa. Loftskipa-
slysin eru orðin mörg. Skal hér
að eins drepið á hin helstu.
Þann 17. okt. 1913 fórst þýska
loftskipið Z-2 hjá Johannist-
liall í Þýskalandi. Það eyði-
lagðist vegna sprengingar.
Tuttugu og átta menn hiðu
bana. Þann 24. ágúst 1921 varð
sprenging í loftskipinu R-38
(ZR-2) hjá Hull í Englandi.
Fjörutíu og tveir menn biðu
bana. Þ. 21. febr. 1922 fórst
loftskipið Roma, sem smíðað
var í Italiu og selt til Banda-
ríkjanna, skamt frá Hampton,
Virginia, U. S. A. Þrjátíu og
fjórir menn biðu bana af
meiðslum. — Þ. 22. des. 1923
fréttist síðast til frakkneska
loftfarsins Dixmude, sem þá
var yfir Miðjarðarhafi. Hefir
sennilega lirapað í sjó niður
og allir mennirnir druknað. Á
því voru 17 yfirforingjar og
35 skipsmenn aðrir. Varð þetta
til þess, að Frakkar liættu við
smíði risa-loftfara. — Þann 3.
sept. 1925, er loftfarið Shenan-
doah, sem var eign ameriska
flotans, var á leiðinni frá Lake-
hurst, New Jersey til St. Paul,
lenti það í þrumuveðri yfir
Ohio og eyðilagðist. Fjórtán
menn biðu bana. Loks mun
öllum í fersku minni, er pól-
farið Ítalía fórst. Sjö þeirra,
sem á loftskipinu voru, fórust.
Hinum, þar á meðal Nohile,
var bjargað. Og loks þann 5.
okt. í ár ferst R-101 nálægt
Beauvais í Frakklandi. A skip-
inu voru 56 menn og þeirra á
meðai flugmálaráðherra Bret-
lands og margir sérfræðingar.
Átta menn að eins komust lífs