Rökkur - 01.12.1930, Síða 55
RÖKKUR
165
fór frá Englandi, hafði þessu
ekki verið kipt i lag; það var
að eins liægt að nota fjóra
inótora í einu til þess að fljúga
áfram. Heldur ekki voru sett-
ir nýir, léttari mótorar í loft-
skipið. En til þess að auðvéld-
ara yrði að liækka skipið á
fluginu, var það tekið i sund-
ur og settur í það nýr mið-
hluti. Lengdist loftskipið við
þetta í 777 fet ensk úr 732,
gasbelgurinn rúmaði nú um
5.500.000 kúbikfet, en áður
5.000.000 og lyftimagnið óx úr
159 smálestum i 165. Vegna
þess, að loftskipið var tekið
i sundur til þess að lengja það,
Iiefir það vafalaust veikst að
miklum mun. Það er engum
efa undirorpið, að ferðin gekk
illa frá byrjun. Kl. 7.36 var
lagt af stað. Ekki fyr cn kl.
10.30 fór R-101 yfir Hastings
(ensk borg við Ermarsund).
Það flaug ekki yfir Abbeville
(borg í Sommehéraði i Frakk-
landi) fyrr en um miðnætti,
og fregnin um, að það nálg-
aðist Beauvais, kom ekki fyrr
en kl. 1.44 f. b. Fáum mínút-
um síðar lenti loftskipið ú
bæðinni, annaðhvort eftir að
sprcnging varð í skipinu eða
hreint og beint vegna þess, að
skipið liafði ekki magn til þess
að halda sér uppi, cr það
þyngdist, vegna úrkomunnar,
sem hafði gegnvætt allan belg-
inn að utan.
Þess má og geta, að maður
að nafni Binks, sem var einn
þeirra, sem björguðust, lét svo
um mælt, að hann teldi orsök-
ina, að flogið befði verið of
lágt. Hann segir, að yfir Erm-
arsund hafi verið flogið mjög
lágt, samkvæmt hæðarmælin-
um 1000 fet, en sér bafi virst
það lægra; skipið befði þá og
flogið grunsamlega liægt. Loft-
skipið flaug svo lágt yfir Beau-
vais, að við lá, að það rækist
á dómkirkjuturn borgarinnar.
Af framanskráðum atbuga-
semdum er ljóst, að loftskipið
befir ekki látið vel að stjórn;
Það hefir ekki verið hægt að
bækka það á fluginu, þegar
það þyngdist svo mjög', sem
raun varð á; liefir sennilega
smálækkað á fluginu og loks
rekist á liæðina. Loftskipið
mun hafa brotnað um miðju,
en eigi ber mönnum saman
um, livort það varð áður en
skipið lenti á hæðinni. Senni-
lega liefir skipið rekist á liæð-
ina, orðið sprenging í því um
leið og brotnað í miðju, þar
sem það Iiafði áður verið tek-
ið í sundur til að stækka það,
bvorttveggja í sömu svifum.
Ætlað er, að Bretar muni nú
leggja alla áberslu á smíði
stórra flugvéla til póst- og far-