Rökkur - 01.12.1930, Qupperneq 63

Rökkur - 01.12.1930, Qupperneq 63
R Ö K K U R 173 að langt, ályktað, og hann sá aðeins eitt ráð til að skerpa sálarsjón sína: Endurnæra líkama sinn fyrst. Hann leit á súpuskálina, sem fangavörður- inn hafði fært honum, bar hana að vörum sér og svolgraði í sig alt, sem i lienni var, af mikilli græðgi, — en hann gat þó haft vald á sér. Hann vissi; að sér myndi hætt, eins og ástatt var fyrir honum, ef hann neytti of mikils matar. Hann hafði heyrt getið um skipbrotsménn, sem höfðu hungrað, en beðið bana, af því að þeir gáðu sín ekki, er þeir náðu í mat, og átu meira en þeir þoldu. Edmond Dantés lagði brauðskorpuna, sem hann hafði tek- ið i hönd sér, aftur á borðið. Hann lagðist á flet sitt. Hann ól engar sjálfsmorðshugsanir lengur. Löngun til að lifa hafði kviknað í brjósti lians. Smám saman varð alt skýrara fyrir hugs'kotssjónum hans. Hann var allur að hressast, gat safn- að hugsunum sinum í einn þráð — og haldið þræðinum. Og hann hugs- aði sem svo: „Eg verð að þraut- prófa þetta, en án þess að koma nokkrum í vandræði. Ef um verka- mann er að ræða, þarf eg ekki ann- að að gera en að lemja á vcgginn. Hann mun þá hætta í bili, og spyrja hvers vegna lamið sé. En þar sem engin launung er í sambandi við starf hans, mun hann bráðlega taka til óspiltra málanna af nýju. Sé aft- ur á móti um fanga að ræða, mun hann verða úttasleginn og hætta. Og hann mun ekki byrja á nýjan leik, fyrr en allir eru sofnaðir. Edmond reis á fætur af nvju, en nú var enginn skjálfti á limum hans. Og alt stóð skýrt fyrir sjónum hans. Hann gekk út í eitt horn myrkva- stofunnar og reif stein úr veggnum, sem var orðinn laus, vegna rakans. Hann gekk að veggnum, þar sem þruskið heyrðist best, og lamdi þrjú högg á vegginn með steininum. Þeg- ar, er hann hafði lamið fyrsta högg- ið, hætti allur hávaði. Edmond hlust- aði sem best hann mátti. Ein klukku- stund leið, tvær, þrjár stundir, en ekkert hljóð barst að eyrum hans gegnum vegginn. Fyrir handan vegg- inn var dauðahljótt. Vonir Edmonds fengu nýtt þrek. Hann át nú brauðskorpuna og drakk vatn með. Leið honum nú orðið sæmilega, eftir atvikum, enda var hann stálhraustur að upplagi. Þögn- in ríkti allan daginn. Kvöld kom, og ekkert þrusk hafði heyrst. „Það er fangi,“ mælti Edmond upphátt í mikilli gleði. Nóttin leið, án þess hann heyrðí nokkurn hlut. Honum féll ekki dúr á auga. Árla næsta morguns færði fanga- vörðurinn honum mat af nýju. Ed- mond snæddi nú morgunverð sinn af góðri lyst. Hann lilustaöi án af- láts,, beið þess ,að þruskið byrjaði af nviu En nú greip hann eirðar- leysi. Hann fór að ganga fram og aftur i klefanum, og annað veifið gekk hann að myrkvastofugfuggan- um og hrFti járnrimlana, til þess að herða vöðvana, þvi að hann hafði nú ásett sér að reyna að safna full- um kröftum, svo að hann væri fær í att, ef tækifæri cæfist til stroks. En þess á milli lagði hann við hlust- irnar, en ekkert hlióð barst að eyr- um hans. Hann varð óþolinmóður og argur í skapi og í huganum ásak- aði bann fangann, sem var að grafa, um beimsku. ,.Þvi getur honum ekki skilist.“ hugsaði hann, ,.að sá. sem lamdi á vegginn, þráir frelsið eins heitt og bann siálfur.“ Þrir sólarhringar liðu, — sjötíu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Rökkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.