Rökkur - 01.12.1930, Qupperneq 64

Rökkur - 01.12.1930, Qupperneq 64
174 ROKKUR * og tvær langar, erfiðar biðstundir. Loks, kvöld nokkurt, að aflokinni seinustu korau fangavarðarins, er Edmond enn einu sinni hlustaði við vegginn, þóttist hann heyra þruskið á ný, en nú svo veikt, að hann var í óvissu um, hvort þetta væri ímynd- un eða elcki. Hann fór aftur að ganga nm gólf, reyndi að safna hugsunum sínum i einn farveg — og þvi næst, er hann gat hugsað skýrt um þetta eitt, lagði hann aflur við hlustirnar. Það var ekki mn að villast. Eitt- hvað var að gerast hinum megin við vegginn. Fanginn var orðinn smeik- ur um, að upp mundi komast um strokutilraunina, og fór nú hægara og varlegar að öllu en áður. Ed- mond stæltist við þetta, og hann á- kvað að aðstoða þennan iðjusama og áhugasama félaga sinn. Fyrst af öllu færði hann til flet sitt, en við vegginn hinum megin, þóttist hann nú heyra þruskið. Hann svipaðist um eftir einhverju, sem hann gæti notað í stað verkfæris, til að mola steypuna, sem var á milli steinanna. En hann sá engan nothæfan hlut. Hann hafði engan hníf eða hvassan hlut við hendina. Aðeins grindurn- ar í klefaglugganum voru gerðar af járni, en hann hafði svo oft reynt krafta sina á þeim, að hann vissi, að eigi þýddi að hugsa um þær. Auk þess myndi fangavörðurinn strax veita því eftirtekt, ef liann næði rim úr glugganum. í myrkvastofunni var rúmflet, stóll, borðskrifli, fata og krukka. Á rúminu voru járntengsli, en þau voru svo ramlega fest í tréð, að hann gat ekki losað þau, nema með skrúfjárni. Að borðinu eða stólnum gat hann heldur ekki haft nein not til þessa. Handarhald hafði verið á fötunni, en hún var nú hand- arhaldslaus. Hann sá aðeins eitt ráð: Að brjóta krukkuna í mola og not- ast við brotin. Hann tók krukkuna og henti henni á gólfið. Hann tók tvo eða þrjá oddhvössustu molana og faldi í fleti sínu. Hin brotin lét hann liggja á gólfinu. Hann óttað- ist ekki, að það myndi vekja grun hjá fangaverðinum, þótt krukkan hefði brotnað. Hann hafði alla nótt- ina fyrir sér, en vegna þess hve dimt var, varð honum lítið ágengt. Auk þess varð hann þess fljótlega var, að veggurinn var svo harður, að hann vann litið sem ekkert á neð krukkubrotunum. Undir dögun færði hann rúmfletið aftur að veggnum og beið þess, að dagur rynni. Hann var nú loks orðinn vongóður og þolin- móður. Alla nóttina hevrði hann til fang- ans, sem hvíldarlaust hélt áfram starfi sínu. Dagur rann. Fangavörð- urinn kom. Edmond kvaðst hafa mist krukkuna úr hendi sér, er hann ætlaði að fá sér að drekka. Fanga- vörðurinn for nöldrandi að sækja aðra krulcku, án þess að tina saman krukkubrotin á gólfinu. Hann kom bráðlega aftur með aðra krukku, ráð lagði Dantési að gæta hennar vel, og fór svo sína leið. Það glaðnaði yfir Dantési, er hann heyrði, að lyklinum var snúið í skránni. Hann lagði við hlustirnar, uns fótatakið hvarf og dó út. Því næst flýtti hann sér að færa til rúm- ið, og hann sá, í skímunni daufu, sem lagði inn um gluggann, að hann hafði erfiðað til einskis um nóttina. Hann hafði reynt að vinna á stein- inum sjálfum, í stað þess að krafsa í bindinginn milli steinanna. Bind- ingurinn var orðinn laus í sér, vegna rakans, og það glaðnaði yfir Dant- ési, er hann sá bindinginn láta und- an, þótt honum aðeins tækist að rífa
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Rökkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.