Rökkur - 01.12.1932, Qupperneq 111
R O K K U R
189
lians, sem handtekinn var í
gær.“
Þ. 13. ágúst er símað frá
ðladrid: „Ríkisstjórnin á mik-
ið vandamál óleyst, þ. e. hvort
liegna sknli leiðtogum upp-
reistarmanna með því að taka
þá af lífi eða ekki. Almenning-
ur krefst þess, að Sanjurjo,
eitt sinn átrúnaðargoð lýðsins,
verði tekinn af lífi. Ýmsir
þingmenn hafa horið fram
kröfur um það, að Sanjurjo
verði leiddur fyrir lierrétt og
því næst skotinn. En i augum
spánversku ráðherranna, lög-
fræðinga, háskólakennara og
ýmsra mætustu manna þjóðar-
innar er úr vöndu að ráða.
Þeir eru mótfallnir líflátshegn-
ingum og vildu ekki setja
ákvæði um þær i stjórnarskrá
lýðveldisins, en í hegningar-
lögumun eru ákvæði um líf-
látsdóma, því að menn töldu
rétt að hafa slík ákvæði i lög-
um, að því er herinn snerti að-
allega. Ank þess vita ráðherr-
arnir vel, að það getur verið
óheppilegt að heita of mikilli
hörku, það geti leitt til þess,
að samúðin með konungssinn-
um aukist.
En eins og stendur má al-
þýða manna ekki heyra annað
nefnt, en að Sanjurjo sé tekinn
af lífi. Fjölmennir fundir eru
iialdnir um alt landið, kröfu-
álvktanir samþyktar mót-
mælalaust, og- símskeyti her-
ast ríkisstjórninni aðra hverja
mínútu að kalla má, þess efn-
is, að Sanjurjo verði að dæma
til lífláts.
Æsingin i landinu er mikil,
ekki sist á Suður-Spáni, þar
sem lýðurinn er enn í því
skapi að vilja lialda áfram
hermdarverkum. Ungir lýð-
veldissinnar i Granada liafa
tekið upp á því, að móðga
konur konungssinna með því
að rífa af þeim krossmerki
þeirra, og eru horfur á, að upp
á þessu verði tekið i öðrum
horgum Spánar. Víða eru
spánverskir aðalsmenn liand-
teknir og settir í fangelsi. Á
meðal þeirra er liertoginn af
Medinaceli, einn af mektar-
mönnum Spánar. í fyrsta skifti
svo menn vita til er spánversk-
um aðalsmönnum nú búin vist
í fangahússklefum, eins og
horgurum, sem komast í tæri
við lögin. Áður fyrr nutu aðals-
menn, er fangelsaðir voru, ým-
issa forréttinda. Samkvæmt til-
kynningu í gærkveldi hafa 468
menn verið liandteknir og
settir í fangelsi síðustu dagana.
Þungar sakir eru bornar á
fæsta hina handteknu. Sumir
halda því fram, að yfirvöldin