Fréttablaðið - 01.02.2023, Page 2
Brotavilji lögreglunnar
er einbeittur, með-
virkni dómstólanna
algjör.
Steinbergur
Finnbogason,
lögmaður
Upp vegginn
Á lista ferðatímaritsins Condé
Nast yfir bestu máltíðir sem
rithöfundar tímaritsins brögð-
uðu á í fyrra má finna humar-
súpu í Grindavík. Einn eigenda
staðarins segir lykilatriði að
gera mikið úr upplifuninni að
af snæða við höfnina.
kristinnpall@frettabladid.is
GRINDAVÍK „Þetta kom okkur á
óvart en er um leið gríðarlegur
heiður að þeir hafi fundið okkur
þarna í Grindavík enda Condé Nast
tímarit sem einblínir á lúxusferða-
mennsku,“ segir Hilmar Sigurðsson,
einn fjögurra eigenda Bryggjunnar
í Grindavík.
Ferðatímaritið Condé Nast hefur
sett humarsúpuna á Bryggjunni á
lista sinn yfir bestu máltíðir í heimi.
„Þarna er iðulega einblínt á tuttugu
bestu hótel heims, tíu bestu strend-
ur heims og slíkt,“ segir Hilmar til
marks um hversu mikilvæg umsögn
tímaritsins sé.
Í umsögn Condé Nast segir að
ferðast þurfi um landið á meðan
Íslandsdvöl standi yfir. Í Grindavík
hafi blaðakonan fengið eina bestu
humarsúpu sem hún hafi fengið á
lífsleiðinni. Á köldum vetrardögum
í New York verði henni trekk í trekk
hugsað til veitingastaðarins.
„Við erum með eina af tuttugu
bestu máltíðum heims samkvæmt
síðunni og í hóp með mörgum
af bestu veitingastöðum heims,
veitingastöðum með Michelin-
stjörnur,“ segir Hilmar sem kveður
íslenskt yfirbragð staðarins eiga
stóran þátt í upplifuninni fyrir
erlenda ferðamenn.
„Það er tenging við netagerðina
og höfnina þaðan sem hráefnið
kemur. Við erum ekki með marga
rétti á matseðlinum en leggjum
mikið upp úr að gera þetta vel og
nostra við matinn á gamla mátann,“
útskýrir Hilmar.
Uppskriftin að humarsúpunni
vinsælu á sér langa sögu að sögn
veitingamannsins. Hún komi frá
fyrrverandi eigendum veitinga-
staðarins, netagerðarbræðrunum
sem áttu húsið og bryggjuna.
„Þeir voru búnir að þróa þessa
uppskrift í mörg ár með heima-
mönnum og vanda vel til verka.
Súpan er gerð alveg frá grunni, eftir
ákveðinni aðferðafræði og allt soðið
í langan tíma til að nostra við þetta.
Það tekur auðvitað sinn tíma en
við erum harðákveðnir í að halda
í þessa uppskrift,“ segir Hilmar og
bætir við að það sé til heimildar-
mynd um súpuna og bræðurna.
„Það var gerð bíómynd um bræð-
urna og súpuna sem var meðal ann-
ars sýnd á RÚV. Myndin er búin að
fá viðurkenningar og hefur verið
sýnd víða erlendis og fjallar um
þessa súpu og tengslin við höfnina.
Myndin á sinn þátt í vinsældum
súpunnar og eftirspurninni,“ segir
Hilmar. Flestir viðskiptavinirnir séu
erlendir ferðamenn en að Íslending-
ar líti alltaf við inni á milli og þeir
séu alltaf velkomnir.
„Við eigum von á um hundrað
þúsund manns á veitingastaðinn
þetta árið,“ segir Hilmar. „Maður
heyrir af því að þetta sé orðið að
skyldustoppi fyrir leiðsögumenn í
ferðamannabransanum þegar þeir
fara um Reykjanesskagann.“ n
Humarsúpa í Grindavík ein
besta máltíðin í víðri veröld
Bryggjan í Grindavík hefur slegið í gegn hjá ferðamönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hilmar
Sigurðsson,
einn eigenda
Bryggjunnar
SKOÐUN Alla daga ársins brýtur
íslenska réttarríkið mannréttindi
á miklum fjölda fólks. Þetta skrifar
Steinbergur Finnbogason lögmaður
í aðsendri grein í Fréttablaðinu í
dag.
„Brotavilji lögreglunnar er ein-
beittur, meðvirkni dómstólanna
algjör, þegjandi samþykki stjórn-
valda æpandi og aðhald fjölmiðla
ekkert,“ segir í greininni.
Steinbergur leggur út af skýrslu
Amnesty International sem kemst
að þeirri niðurstöðu að hér á landi
sé einangrun gæsluvarðhaldsfanga
beitt sem vísvitandi pyntingatæki.
SJÁ SÍÐUR 4 OG 13
Ríkið brjóti á fólki
hvern einasta dag
Gabríela Einarsdóttir var meðal keppenda á úrslitakvöldinu í klifri á Reykjavíkurleikunum sem nú standa yfir. Þrátt fyrir að veðurguðirnir ólmuðust úti fyrir
með hríðarbyl mætti fólk vel til að fylgjast með klifrinu enda er þetta í fyrsta skipti eftir Covid sem slíkt er í boði. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
arnartomas@frettalbadid.is
KJARAMÁL Stéttarfélagið Ef ling
kynnti í gær verkfallsboðanir sem
samninganefnd félagsins samþykkti
á mánudag. Boðanirnar taka annars
vegar til hótelkeðjunnar Berjaya
Hotels og hótelsins The Reykjavík
Edition og hins vegar til starfa við
vörubifreiðaakstur og olíudreifingu.
Atkvæðagreiðslur um þessar
boðanir hefjast föstudaginn 3.
febrúar og lýkur þriðjudaginn 7.
febrúar, sama dag og þegar sam-
þykkt verkfall á að hefjast hjá
Íslandshótelum.
Samtök atvinnulífsins hafa stefnt
Ef lingu fyrir Félagsdóm vegna
niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar
um verkfall. Halldór Benjamín Þor-
bergsson, framkvæmdastjóri SA,
segir verkfallsboðunina ólögmæta
þar sem miðlunartillaga frá ríkis-
sáttasemjara sé óafgreidd.
Vika er nú liðin frá síðasta fundi
Eflingar og SA þar sem ríkissátta-
semjari lagði fram miðlunartillögu
í kjaradeilunum.
Hvorki náðist í Halldór Benjamín
né Sólveigu Önnu Jónsdóttur, for-
mann Eflingar, í gærkvöldi. n
Efling stefnir að víðtækari verkföllum
Eflingarfólk gengur til héraðsdóms í
fyrradag. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
2 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 1. FEBRÚAR 2023
MIÐVIKUDAGUR