Fréttablaðið - 01.02.2023, Blaðsíða 4
Verkfræðideild flug-
vallarins er hins vegar
að skoða möguleika í
þeim efnum.
Úr svari Isavia til Fréttablaðsins
Ég sé ekki hvernig það
er réttlætanlegt að setja
fatlaða einstaklinga í
þessar aðstæður sem
fylgja einangrunarvist.
Árni Múli Jónas-
son, formaður
Þroskahjálpar
Árni Múli Jónasson, formaður
Þroskahjálpar, segir ekkert
réttlæta einangrunarvist
fatlaðra í gæsluvarðhaldi. Ný
skýrsla Amnesty International
kallar eftir því að látið verði
af einangrunarvist barna og
fatlaðra einstaklinga meðan á
gæsluvarðhaldi stendur.
lovisa@frettabladid.is
MANNRÉTTINDI Formaður Þroska-
hjálpar segir að samtökin taki undir
kröfu mannréttindasamtakanna
Amnesty International, um að látið
verði af einangrunarvist fatlaðra
einstaklinga í gæsluvarðhaldi.
Í nýrri skýrslu Amnesty er greint
frá óhóflegri notkun einangrunar-
vistar í gæsluvarðhaldi. Samtökin
hvetja yfirvöld til að breyta verk-
lagi og reglum og að einangrunarvist
barna og fatlaðra einstaklinga verði
alfarið bönnuð.
„Þessi skýrsla virkar trúverðug og
kemur frá aðila sem nýtur virðingar
og það er fullt tilefni til að taka hana
alvarlega. Það er engin spurning um
það í okkar huga,“ segir Árni Múli
Jónasson, formaður Þroskahjálpar
og lögmaður.
Hann segir skýrsluna áfellisdóm
yfir réttarvörslukerfinu, lögregl-
unni, ákæruvaldi og fangelsismála-
yfirvöldum.
„Það er allt réttarvörslukerfið
undir og þetta hlýtur að kalla á
skoðun, bæði hjá réttarvörslukerf-
inu og dómsmálakerfinu, að tryggja
að meginreglur réttarríkisins séu
viðhafðar því það er margt þarna
sem bendir til þess að svo sé ekki,“
segir Árni Múli.
Ítarlega er f jallað um það í
skýrslunni hvaða áhrif það hefur
á einstaklinga að vera í einangrun
Taki tillit til fatlaðs fólks í varðhaldi
og hvaða áhrif það getur haft á þá
ábyrgð sem þeir axla í þeim málum
sem þeir eru grunaðir í.
Í skýrslunni segir einstaklingur
sem var í einangrun að skorturinn
á mannlegum samskiptum hafi
valdið því að hann sagði meira en
hann hafði ætlað sér við lögregluna.
Þrátt fyrir að einangruninni sé ekki
beint ætlað að þrýsta á játningu þá
geri hún það óhjákvæmilega.
Árni Múli segir að sérstaklega út
frá sjónarhorni fatlaðs fólks sé þetta
alvarlegt. Hann bendir á að Ísland sé
búið að fullgilda Samning Samein-
uðu þjóðanna um réttindi fatlaðs
fólks þar sem er að finna fjölmörg
ákvæði sem hafa þýðingu í þessu
samhengi.
„Um það hvernig eigi að standa
að málum í réttarvörslukerfinu sem
tekur tillit til fatlaðs fólks og laga sig
að þörfum þess. Að það sé passað að
einstaklingar með fötlun fái stuðn-
ing og þá vernd sem þeir eiga skilið
og rétt á samkvæmt samningunum,“
segir Árni.
Að sögn Árna sér hann ekki hvað
réttlæti að setja fatlaða einstaklinga
í aðstæður sem fylgi einangrun.
„Og þá tala ég helst um ein-
staklinga með þroskahömlun, ein-
hverfa og fólk með geðfatlanir, sem
augljóslega er mjög berskjaldað og
viðkvæmt fyrir því að vera sett í
þessar aðstæður sem fylgja einangr-
unarvist, með því tilfinningalega og
líkamlega álagi sem því fylgir. Við
lítum á þetta sem mjög stórt mál,“
segir Árni.
Kveðst Árni bíða viðbragða dóms-
málaráðuneytis og réttarvörslukerf-
isins við niðurstöðum skýrslunnar
og ábendingum sem henni fylgja. n
- ómissandi með steikinni
benediktarnar@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Rannsókn á skot á rás
á Blöndu ósi í fyrra er á lokastigi að
sögn Eyþórs Þor bergs sonar, vara-
saksóknara hjá lögreglu em bættinu
á Norður landi eystra.
„Það er alveg á enda punkti og lík-
lega vika til hálfur mánuður eftir af
rann sókninni,“ segir Eyþór.
Niðurstöður úr DNA-sýnum sem
komu frá Svíþjóð liggja fyrir og búið
er að þýða þær. Þegar niðurstöð-
unum var skilað til lögreglunnar
á Norðurlandi eystra voru þær á
sænsku og þurfti því að þýða þær.
Þó að rann sókninni sé að ljúka
vill Ey þór ekki tjá sig um hvort
gefnar verði út ákærur. Ákæruvaldið
liggi hjá héraðs saksóknara. n
Blönduósmálið er
á lokametrunum
Á vettvangi skotárásinnar á Blöndu-
ósi í ágúst. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
benediktarnar@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Nauðsynleg gögn
vegna manndrápsins á Ólafsfirði
hafa ekki skilað sér. Beðið er eftir
niðurstöðum úr krufningu og frá
DNA-sýnum.
Þetta staðfestir Eyþór Þorbergs-
son, varasaksóknari hjá lögreglu-
embættinu á Norðurlandi eystra.
„Það kom í ljós að endanleg niður-
staða krufninganna var ekki komin.
Þegar lík eru krufin eru tekin alls
konar sýni sem þarf að rannsaka og
það var ekki búið,“ segir Eyþór.
Þá segir Eyþór að niðurstöður úr
DNA-sýnum sem tekin voru vegna
rannsóknarinnar og send til Sví-
þjóðar, séu ekki komnar til baka. n
Tafir í rannsókn á
Ólafsfjarðarmáli
Í þessu húsi á Ólafsfirði var maður
stunginn til bana. FRÉTTABLAÐIÐ/GARÐAR
gar@frettabladid.is
FLUGMÁL Isavia skoðar nú leiðir til
að bæta vetraraðstöðuna fyrir far-
þegaþotur við flugstöðina á Kefla-
víkurflugvelli.
Þetta kemur fram í svari við
fyrirspurn sem Fréttablaðið sendi
fyrirtækinu vegna hrakninga fleiri
hundruð farþega í óveðri á dög-
unum. Hluti af vandanum þá var
gríðarmikil hálka á stæðum eftir
að þotunum hafði verið ekið út af
flugbrautinni.
„Það er ekki virkur búnaður með
hita undir stæðum á vellinum,“ er
svar Isavia við þeirri spurningu
hvort rétt sé að á flughlöðunum við
flugstöðina sé upphitunarbúnaður
til að verjast hálku en að hann virki
ekki sem skyldi.
„Verkfræðideild f lugvallarins er
hins vegar að skoða möguleika í
þeim efnum og hefur til þess meðal
annars leitað upplýsinga af alþjóða-
flugvöllum erlendis,“ segir Isavia.
Þá spurði Fréttablaðið hvort verið
gætu ranar – eða landgangar – við
flugstöðina sem hægt væri að nota
í meiri vindi en núverandi rana
þannig að koma mætti farþegum
frá borði við erfiðari skilyrði en nú
sé hægt.
„Miðað við flugvélaflotann sem
f lýgur til Kef lavíkurf lugvallar í
heild sinni þá eru þeir landgangar
sem við notum nú, og aðrir með
samskonar öryggisviðmið og þeir,
landgangarnir sem við getum
notað,“ segir í svari Isavia við þess-
ari síðari spurningu. n
Skoða hitun á flugstæðum á Keflavíkurflugvelli
Þota rakst í landgang. MYND/AÐSEND
Einangrunarvist
er sögð geta
leitt til þess
að fangar segi
meira við lög-
reglu en þeir
hugðust gera.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
4 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 1. FEBRÚAR 2023
MIÐVIKUDAGUR