Fréttablaðið - 01.02.2023, Page 7
Eftirlaunaaldur í Frakk
landi var hækkaður
2010 úr 60 árum í 62.
Lin mjaðmagrindar
brotnaði eftir viðkynn
ingu sína við páfagauk
og er enn dofinn.
benediktboas@frettabladid.is
TAÍVAN Taívanskur maður hefur
verið dæmdur í tveggja mánaða
fangelsi og sektaður um hartnær
13 milljónir íslenskra króna eftir að
páfagaukur hans slasaði lækni.
Samkvæmt Taiwan's Central
News Agency fór læknirinn Lin úr
mjaðmarlið og mjaðmagrindar-
brotnaði eftir að hann datt af völd-
um fuglsins þegar hann var úti að
skokka. Gaukurinn, sem er af Scar-
let macaw tegund, er 40 sentimetra
hár og með 60 sentimetra vænghaf
og mat dómstóllinn það svo að eig-
andinn hefði átt að gera ráðstafanir
enda ætti hann stórt gæludýr.
Lin þurfti að fara á sjúkrahús og
dvelja þar í viku. Hann sagði dóm-
stólum að hann hefði ekki geta
unnið í sex mánuði eftir slysið en
hann er lýtalæknir og tjónið því
mikið.
„Hann getur nú gengið, en ef hann
stendur í langan tíma, þá er enn
dofi,“ sagði lögfræðingur læknisins
við TVBS News í Taívan.
Huang sagðist ætla að virða
niðurstöðu dómstólsins en ætlar
að áfrýja og heldur því fram að
gaukurinn sé ekki árásargjarn og
að bæturnar séu of háar. n
Páfagaukur slasar
taívanskan lækni
Páfagaukur af tegundinni sem varð
lækninum að falli. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
arnartomas@frettabladid.is
BANDARÍKIN Vera Liddell, fyrrver-
andi skólastarfsmaður í Chicago,
hefur verið kærð fyrir stórfelld fjár-
svik á 19 mánaða tímabili.
Liddel er sögð hafa stolið meira
en 11 þúsund pökkum af kjúklinga-
vængjum og 1,5 milljónum Banda-
ríkjadala af skattfé almennings.
Saksóknarar halda því fram að
Liddell hafi lagt fram hundruð
óleyfilegra pantana á matvöru,
einkum á kjúklingavængjum, til
stærsta heildsala skólahverfisins.
Þá segja saksóknarar að Liddell
hafi sótt matvælin á merktum vagni
skólaumdæmisins en þau hafi aldrei
ratað til skólanna. n
Stal tugþúsundum
kjúklingavængja
Liddell er sökuð um að hafa stolið
11 þúsund pökkum af vængjum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Stoltenberg heimsækir Japan
Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, situr um borð í F-2A orrustuþotu japanska varnarliðsins á Iruma-flugvelli í Sayama. Hann hvatti til aukinnar sam-
vinnu við Japan þar sem öryggishagsmunir landsins og NATO væru nátengdir. Áður bað hann Suður-Kóreu um að auka stuðning við Úkraínu. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Langt er síðan Ísland
hefur talað fyrir því að
samningurinn taki
ekki sérstaklega til
fiskveiða.
Úr svari þriggja ráðuneyta
kristinnhaukur@frettabladid.is
UTANRÍKISMÁL Þórdís Kolbrún
R. Gylfadóttir utanríkisráðherra,
Svandís Svavarsdóttir matvælaráð-
herra og Guðlaugur Þór Þórðarson,
umhverfis-, orku- og loftslagsráð-
herra, lögðu fram sameiginlegt
minnisblað um afstöðu Íslands í
viðræðum um nýjan úthafssátt-
mála Sameinuðu þjóðanna á ríkis-
stjórnarfundi 23. janúar.
Eins og sagði í Fréttablaðinu í
fyrra hefur gengið erfiðlega að koma
saman verndarsáttmála úthafanna
(BBNJ). Umhverf issinnar saka
Íslendinga og nokkrar aðrar þjóðir
um að vilja halda fiskveiðum utan
sáttmálans. Fimmta samningalotan
fór fram í New York í ágúst en var
frestað til 20. febrúar.
Samkvæmt svari ráðuneytanna
til Fréttablaðsins segir að vonir
standi til að samningar takist á
þessum fundi. Ísland sé í svokölluðu
metnaðarbandalagi og vilji hagnýt-
an og vandaðan samning sem fyrst.
„Þó að kjarnaatriðin í afstöðu
Íslands séu enn óbreytt frá því við-
ræður hófust hefur nálgunin breyst
í takt við þróun viðræðanna,“ segir
í svarinu.
„Nú er orðið ljóst að BBNJ-
samningurinn mun ekki snúa með
beinum hætti að fiskveiðistjórnun,
og þau málefni verða þar af leiðandi
ekki til umræðu í komandi viðræðu-
lotu. Langt er síðan Ísland hefur
talað fyrir því að samningurinn taki
ekki sérstaklega til fiskveiða.“
Í ágúst hafi Ísland tekið þátt í
gerð málamiðlunar um þann kafla
sem líklegastur sé til að hafa áhrif á
fiskveiðar, um svæðisbundnar ráð-
stafanir og verndarsvæði. „Sú mála-
miðlun nýtur breiðs stuðnings og er
því stutt í að sá kafli sé í höfn með
hætti sem Ísland sættir sig við.“ n
Vilja ljúka gerð úthafssáttmála í mánuðinum
Mótmæli hófust á ný í Frakk-
landi í gær þar sem mikil
óánægja ríkir um áform
Emmanuel Macron um að
hækka eftirlaunaaldur. Frakk-
landsforsetinn segir breyting-
arnar nauðsynlegar.
arnartomas@frettabladid.is
FRAKKLAND Mótmæli fóru fram
víða í Frakklandi í gær þar sem mik-
ill fjöldi mótmælenda hélt á götur
út. Átta stór stéttarfélög tóku þátt
í mótmælunum þar sem almenn-
ingssamgöngur og skólastarfsemi
var hindruð.
Mótmælin beinast gegn áformum
Emmanuel Macron Frakklandsfor-
seta um að hækka eftirlaunaaldur-
inn í Frakklandi úr 62 árum upp í
64.
Þótt verkalýðsfélögunum og lög-
reglu komi ekki saman um heildar-
fjölda mótmælenda virðast þau þó
sammála um að hann sé hærri en
þegar breytingunum var síðast mót-
mælt 19. janúar.
Skoða na k a nna nir sý na að
mikill meirihluti Frakka er and-
vígur breytingunum, en Macron
virðist ekki ætla að haggast. Sagði
hann meðal annars á mánudag að
umbæturnar væru „nauðsynlegar
til að tryggja lífeyriskerfið“. Mac-
ron gerðu áður tilraun til að breyta
kerfinu árið 2019 en hætti við þegar
Covid skall á.
Þar sem Endurreisnarf lokkur
Macron hefur ekki meirihluta á
franska þinginu mun forsetinn
neyðast til að treysta á stuðning frá
um sextíu þingmönnum Repúbl-
ikanaflokksins. Þar er ekki á vísan
að róa því að þótt þeir séu margir
hlynntir lífeyrisumbótum hafa
sumir þingmannanna varað við
því að þeir gætu greitt atkvæði gegn
breytingunum.
Að sög n r ík isstjór nar innar
myndu breytingarnar á lífeyriskerf-
inu skila um 17,7 milljörðum evra til
viðbótar í lífeyrisiðgjöld. Stéttar-
félög hafa bent á að aðrar leiðir séu
mögulegar til að afla tekna, svo sem
að skattleggja hina ofurríku.
Eftirlaunaaldurinn var áður
hækkaður árið 2010 þegar ríkis-
stjórn Nicolas Sarkozy, þáverandi
Frakklandsforseta, lét hækka hann
úr 60 árum upp í 62 ár.
Mörg af nágrannalöndum Frakk-
lands hafa nú þegar hækkað eftir-
launaaldurinn sem er 67 ár á Ítalíu
og í Þýskalandi, 66 ár í Bretlandi og
65 ár á Spáni. n
Telja of seint að fara á eftirlaun 64 ára
Hvar er félagslega réttlætið? spyr einn mótmælenda í París á skilti sínu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FRÉTTABLAÐIÐ FRÉTTIR 71. FEBRÚAR 2023
MIÐVIKUDAGUR