Fréttablaðið - 01.02.2023, Blaðsíða 8
Gjaldskrárhækkanir hins
opinbera eiga mesta sök á því
að verðbólga hækkaði mjög
í janúar, þegar venjulega er
verðhjöðnun vegna útsalna.
Hagfræðingar búast við
vaxtahækkun Seðlabankans í
næstu viku.
olafur@frettabladid.is
Vísitala neysluverðs hækkaði um
0,85 prósent í janúar, langt umfram
það sem greiningardeildir bjuggust
við, og hækkar ársverðbólgan úr 9,6
í 9,9 prósent milli mánaða.
Greiningardeildir höfðu spáð 0,2–
0,5 prósenta hækkun vísitölunnar
milli mánaða og misstu því alger-
lega marks að þessu sinni.
Neytendasamtökin lýstu á mánu-
dag yfir gífurlegum vonbrigðum
með aðgerðir stjórnvalda sem leiða
til þeirrar miklu verðbólgu sem
fréttir berast af í dag. „Aldrei þessu
vant nær venjubundin lækkun verð-
bólgu vegna janúarútsala ekki að slá
á hækkunina að neinu ráði. Hækk-
un verðbólgu í janúar er að mestu
tilkomin vegna hækkana á búsi,
bílum og búvörum. Þessi kostn-
aðarliðir eiga það sameiginlegt að
hið opinbera stýrir verði þeirra
að verulegu leyti með álögum. Því
miður virðist það ganga eftir sem
stjórn Neytendasamtakanna benti
á í umsögn um fjárlagafrumvarpið,
að krónutöluhækkanir gjalda ríkis-
ins skila sér beint út í verðbólguna.
Stjórn Neytendasamtakanna
segir stöðuna grafalvarlega og skor-
ar á stjórnvöld að ganga á undan
með góðu fordæmi og gera allt sem
í þeirra valdi stendur til að draga úr
verðbólgu.
Erna Björg Sverrisdóttir, aðal-
hagfræðingur Arion banka, tekur í
sama streng og Neytendasamtökin
og segir stóran hluta þessarar hækk-
unar stafa af gjaldskrárhækkunum
hins opinbera. „Janúarmælingin
hefur þar af leiðandi ekki kúvent
verðbólguhorfunum, þótt þær hafi
lítillega versnað,“ segir Erna sem
telur nokkuð víst að stýrivaxta-
hækkun fylgi í kjölfarið, en næsti
vaxtaákvörðunardagur peninga-
stefnunefndar Seðlabankans er
eftir viku.
Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur
Landsbankans, segir það valda
áhyggjum hversu almenn verð-
bólgan sé orðin, það er hve margir
undirliðir vísitölunnar hækka veru-
lega.
„Síðast þegar verðbólgan mældist
jafn mikil og nú höfðu einungis 17
prósent undirliðanna hækkað um
meira en 10 prósent. Núna er staðan
slík að 27 prósent undirliða hafa
hækkað meira en 10 prósent. Við
sjáum framlag húsnæðis til verð-
bólgu aðeins dragast saman, enda
hefur kólnun gert vart við sig á
fasteignamarkaði, en á móti kemur
gengisveiking og hækkanir á inn-
fluttum vörum. Við sjáum að fram-
lag innf luttra vara til verðbólgu
hefur aukist á síðustu mánuðum,“
segir hún.
Una segir peningastefnunefnd
Seðlabankans án efa munu líta til
hærri versnandi verðbólguhorfa
við næstu vaxtaákvörðun. „Líkur á
óbreyttum vöxtum og jafnvel lækk-
unum síðar á árinu fara dvínandi
við þessar aðstæður. Nefndin mun
örugglega líta svo á að herða þurfi
taumhaldið þegar verðbólga tekur
sig upp með þessum hætti.“
Erna Björg bendir á að þrátt fyrir
að húsnæðisverð lækki milli mán-
aða hækki reiknuð húsaleiga sem er
veigamikill þáttur vísitölu neyslu-
verðs. Nú megi búast við vaxta-
hækkun Seðlabankans sem þýði að
húsnæðisverð þurfi að lækka um
um það bil 0,8 prósent milli mánaða
til að framlag reiknaðrar húsaleigu
verði hlutlaust. Arion banki gerir
ráð fyrir því að reiknuð húsaleiga
virki til hækkunar verðbólgu vísi-
tölunnar á næstu mánuðum þrátt
fyrir verðlækkanir á húsnæðis-
markaði. n
olafur@frettabladid.is
UTmessan verður haldin í Hörpu
föstudaginn 3. febrúar. Þar verða
afhent Upplýsinga tækniverðlaun
Ský, heiðursverðlaun fyrir framúr-
skarandi framlag til upplýsinga-
tækni á Íslandi. Einnig verða afhent
verðlaun í undirflokkum.
Á laugardaginn verður síðan opið
hús allan daginn fyrir almenn-
ing. Meðal þess sem ber fyrir augu
verður elsti tölvubúnaður á Íslandi,
kannski í síðasta sinn.
Ekki er gefið upp hver eru tilnefnd
til aðalverðlaunanna, Upplýsinga-
tækniverðlauna Ský. Þar var hægt
að tilnefna einstakling, fyrirtæki
eða verkefni sem hefur skarað fram
úr á sviði upplýsingatækni, skapað
verðmæti og auðgað líf Íslendinga
með hagnýtingu á upplýsingatækni.
Áhersla er lögð á að framlagið hafi
þegar sannað sig með afgerandi
hætti. Það er Guðni Th. Jóhannes-
son, forseti Íslands, sem afhendir
verðlaunin í Eldborgarsal Hörpu.
Auk aðalverðlaunanna verða veitt
verðlaun í fjórum undirflokkum.
Í f lokknum UT-fyrirtækið 2022
eru tilnefnd fyrirtækin AwareGO,
sem sérhæfir sig í mannlega þætt-
inum þegar kemur að netöryggi,
Gangverk, sem þróar lausnir fyrir
fyrirtæki sem starfa á alþjóðamark-
aði, og Kolibri, sem talið er standa
framarlega þegar kemur að fyrir-
tækjamenningu og fjölbreytileika.
Í f lokknum UT-Sprotinn 2022,
sem er fyrir fyrirtæki sem hafa verið
starfandi síðastliðin 1–6 ár og bjóða
lausnir sem vakið hafa athygli, eru
tilnefnd fyrirtækin indó spari-
sjóður, sem býður bankaþjónustu
með lítilli yfirbyggingu, Smitten,
sem er vinsælasta stefnumóta-
appið á Íslandi, og Snerpa Power,
sem býður lausn fyrir stórnotendur
(iðnað) á raforkumarkaði sem leiðir
til bættrar nýtingar auðlinda og
aukinnar samkeppnishæfni.
Í f lokknum UT-Stafræna þjón-
ustan 2022, sem ætlaður er lausn-
um sem skara fram úr og einfalda
líf fólks, eru tilnefnd fyrirtækin
CERT-IS, sem hefur tekið stór skref í
að stuðla að bættu netöryggi og við-
bragðsgetu innan íslenskrar netlög-
sögu, umferdin.is, sem er nýr vefur
Vegagerðarinnar, gagnvirkur og á
að auðvelda aðgengi vegfarenda að
upplýsingum um færð á vegum, og
Landspítalaapp fyrir sjúklinga, sem
ætlað er að gefa sjúklingum betri
innsýn í meðferðina, bæta upplifun
þeirra og gera þeim kleift að taka
virkan þátt í meðferð sinni.
Í f lokknum UT-Fjölbreytileika-
fyrir mynd 2022, sem ætlað er að
vekja athygli á því sem vel er gert
og styðja fjölbreytileika og gott
fordæmi, eru tilnefnd Ada Konur
á Instagram, sem hvetur ungar
konur til að sækja nám í tölvunar-
fræði, Guðrún Valdís Jónsdóttir,
upplýsingaöryggisstjóri Syndis,
sem er leiðandi sérfræðingur í
öryggis- og tæknigeiranum hér
á landi og erlendis, og Inga Björk
Margrétar Björnsdóttir, sem hefur
verið leiðandi í umræðu um stafræn
aðgengismál og stafrænar hindranir
sem fylgt geta þeirri öru þróun sem
verið hefur í tæknigeiranum síðustu
ár.
Arnheiður Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri Ský og UTmess-
unnar, segir ánægjulegt að UT-mess-
an verði nú aftur opin fyrir almenn-
ingi eftir tveggja ára hlé. „Við erum
mjög spennt að geta leyft fólki að
koma og sjá það sem er að gerast í
tæknigeiranum á Íslandi núna á
laugardaginn.“
Hún segir spennuna skína úr and-
litum gesta og þá sérstaklega ungu
kynslóðarinnar við að komast í færi
við alls kyns tól og tæki ásamt því að
prófa sýndarveruleika og leika með
lítil vélmenni. „Vísinda-Villi verður
með þrjár sýningar í Eldborg þar
sem hann gerir tilraunir, auk þess
sem hægt er að fylgjast með Hönn-
unarkeppni HÍ. Boðið verður upp á
að prófa rafíþróttir og foreldrar og
börn geta fengið fræðslu um hvað
rafíþróttir eru í raun og veru,“ segir
Arnheiður.
Hún segir rúsínuna í pylsuend-
anum svo vera sýningu á elsta
tölvubúnaði landsins, en sett hefur
verið upp stórsýning á fjölda tækja,
svo sem gataspjaldavélum, fyrsta
snerti bank anum og öðrum risa-
tölvum og svo gæti farið að þessi
tæki verði ekki aftur til sýnis þar
sem engin söfn hafi áhuga á að taka
við þessum dýrmæta og sögulega
búnaði.
Um 50 tæknifyrirtæki verða með
bása í Hörpu. Þar verða alls kyns
þrautir og leikir sem draga fram
hversu fjölbreyttur tæknigeirinn
er, en eitt aðalmarkmið opna tækni-
dagsins er að sögn Arnheiðar að
vekja áhuga fólks og hvetja unga
sem aldna til að velja sér hann sem
framtíðarvettvang, en viðvarandi
skortur er á tæknifólki um allan
heim.
Tæknidagur UTmessunnar, sem
opinn er öllum almenningi, er laug-
ardaginn 4. febrúar klukkan 10–7 í
Hörpu. Frítt er inn. n
Hækkun verðbólgu í
janúar er að mestu til
komin vegna hækkana
á búsi, bílum og búvör-
um. Þessi kostnaðar-
liðir eiga það sameigin-
legt að hið opinbera
stýrir verði þeirra að
verulegu leyti með
álögum.
Neytendasamtökin
Líkur á óbreyttum
vöxtum og jafnvel
lækkunum síðar á
árinu fara dvínandi við
þessar aðstæður.
Una Jónsdóttir,
aðalhagfræðing-
ur Landsbankans
Janúarmælingin hefur
þar af leiðandi ekki
kúvent verðbólguhorf-
unum, þótt þær hafi
lítillega versnað.
Erna Björg
Sverrisdóttir,
aðalhagfræðing-
ur Arion banka
Við erum mjög spennt
að geta leyft fólki að
koma og sjá það sem er
að gerast í tæknigeir-
anum á Íslandi núna á
laugardaginn.
Arnheiður Guð-
mundsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Ský og
UTmessunnar
UTmessan í Hörpu opin almenningi á laugardaginn
Hægt er að bjástra við marg spennandi í Hörpu á UTmessunni á laugardaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Nær örugglega vaxtahækkun í næstu viku
Hagfræðingar telja nær víst að peningastefnunefnd undir forystu Ásgeirs Jónssonar muni hækka vexti í næstu viku.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
8 MARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 1. FEBRÚAR 2023
MIÐVIKUDAGUR