Fréttablaðið - 01.02.2023, Side 10
Allir íhlutir
eru keyptir
af verk-
tökum
sem eru
staðsettir
eins nálægt
verksmiðj-
unni og
hægt er.
Umhverfisvænir húsbátar
voru til sýnis á Mid-Atlantic
ráðstefnu Icelandair í síðustu
viku. Bátarnir eru nú þegar
komnir í notkun við Fjallsár-
lón og eru sagðir þola 50 stiga
frost. Eigandi ferðaþjónustu
við lónið segist horfa fram á
gott sumar.
Finnska ferðaþjónustufyrirtækið
Aurora Hut hefur slegið í gegn á nor-
rænum markaði með húsbáta sína.
Bátarnir eru hátæknilega þróaðir,
umhverfisvænir, að stórum hluta úr
gleri og er hægt að koma þeim fyrir
bæði á vatni og á þurru landi.
Húsbátar Aurora Hut voru meðal
annars kynntir á Mid-Atlantic ráð-
stefnunni sem fór fram á vegum
Icelandair í Laugardalshöll um
síðustu helgi. Eliza Reid forsetafrú
og Lilja Alfreðsdóttir, menningar-
og viðskiptaráðherra, voru meðal
þeirra sem virtu húsbátana fyrir sér.
Tomi Sipola, sölustjóri Aurora
Hut, var staddur á ráðstefnunni
þar sem hann sýndi áhugasömum
gestum gistirýmið og svaraði spurn-
ingum þeirra.
„Hugmyndin er að fá æðislega
upplifun hvar sem er og án þess að
skaða umhverfið. Þú getur til dæmis
séð norðurljósin á besta stað og
þarft ekki að bora neitt eða setja
upp neitt rafmagnskerfi. Jafnvel
þótt það sé 50 stiga frost úti, þá er
hlýtt hérna inni. Þú bara slakar á og
nýtur náttúrunnar.“
Húsbátarnir, (f ljótandi hót-
elin) eru framleiddir í verksmiðju
AuroraHut Oy í Ylivieska í Finn-
landi og eru allir íhlutir keyptir af
verktökum sem eru staðsettir eins
nálægt verksmiðjunni og hægt er.
Fyrirtækið leggur mikla áherslu
á umhverfisvernd og fylgir mjög
ströngum reglugerðum þegar
kemur að efnisflæði og meðhöndl-
un á úrgangi.
„Það að vera umhverfisvæn er
mjög mikilvægt fyrir okkur. Hita-
kerfið er til dæmis knúið áfram með
dísilolíu sem er búin til úr úrgangi.
Við viljum passa að allt sem við
gerum sé umhverfisvænt og þar að
auki endurvinnanlegt,“ segir Tomi.
Húsbátarnir komu fyrst til lands-
ins í fyrrasumar og hægt var að bóka
Fljótandi hótel það nýjasta í ferðaþjónustu
Húsbátarnir komu fyrst til landsins í fyrrasumar og gátu ferðamenn gist í þeim við Fjallsárlón. MYND/AÐSEND
Tomi Sipola,
sölustjóri
Aurora Hut
Steinþór Arnars-
son, eigandi
Fjallsárlóns ehf.
Helgi Steinar
Gunnlaugsson
helgisteinar
@frettabladid.is
helgisteinar@frettabladid.is
Flugfélögin EasyJet og Ryanair hafa
hvatt fyrrverandi starfsfólk Flybe
til að sækja um vinnu hjá sér eftir að
síðasttalda félagið varð gjaldþrota
síðastliðinn laugardag. Flybe er nú
farið á hausinn í annað skiptið og
misstu rúmlega 280 manns vinnuna.
Ryanair auglýsti á vefsíðu sinni að
lausar stöður væru í boði fyrir flug-
menn, flugvirkja og flugvallarstarfs-
fólk. Að sama skapi hefur EasyJet
sagt að 250 laus störf séu í boði í flug-
áhöfnum.
Margir fyrrverandi starfsmenn
Flybe fóru í gegnum svipaða reynslu
þegar félagið varð fyrst gjaldþrota í
mars 2020, þegar kórónaveirufarald-
urinn varð Flybe að falli. Fyrirtæki
í eigu bandarísks fjárfestingarsjóðs
kom svo Flybe til bjargar og tóku
flugvélar félagsins aftur á loft í apríl
2022.
Martin Chalk, formaður Samtaka
breskra atvinnuflugmanna, segir
skiljanlegt að fólk sé reitt og áhyggju-
fullt en bætir við að störf séu í boði
og að aðstæðurnar hafi breyst mikið.
„Kosturinn nú er sá að markaðurinn
er mun líf legri en hann var, fyrst
kórónaveirufaraldurinn er meira og
minna í baksýnisspeglinum,“ segir
Martin.
John Strickland og fleiri flugmála-
sérfræðingar hafa bent á að þrátt
fyrir mikla eftirspurn eftir flugferð-
um hafi Flybe einfaldlega ekki náð
að halda sér á floti. Hörð samkeppni
og hækkandi eldsneytisverð hafi
verið stór vegartálmi fyrir flugfélagið
sem skort hafi á sama tíma skýra og
forsvaranlega viðskiptastefnu. n
Starfsfólk Flybe með öryggisnet
Flybe var eitt sinn stærsta innanlandsflugfélag í Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
140 þúsund króna ævintýraferð sem
innihélt siglingu um Fjallsárlón og
gistingu í húsbátnum á lóninu sjálfu.
Hátt verð á slíkri gistingu tengist ef
til vill verðmiða bátsins, en einn
Aurora Hut kostar í kringum 50
þúsund evrur.
Steinþór Arnarson, framkvæmda-
stjóri Fjallsárlóns ehf., sér um rekstur
húsbátanna á Íslandi og segist von-
góður fyrir komandi sumar. Hann sé
þegar búinn að taka á móti nokkrum
bókunum og er öruggur með stað-
setninguna. „Talsmenn fyrirtækisins
hafa heimsótt einhverjar hundrað
staðsetningar þar sem þessir hús-
bátar eru og segja þeir að ég sé með
bestu staðsetninguna sem þeir hafa
séð,“ segir Steinþór.
Hann segist leggja mikla áherslu
á að staðsetja húsbátana þar sem
þeir eru ekki fyrir neinum og valda
ekki neinni sjónmengun. „Bátarnir
eru alltaf frekar vel faldir og svo
þegar ég sigli mína leið meðfram
lóninu þá verður maður varla var
við þá.“
Tomi og Steinþór viðhalda nánu
samstarfi og virðast leggja áherslu
á svipuð atriði þegar kemur að
ferðaþjónustu. Húsbátarnir eru
umhverfisvænir en engu að síður
hlaðnir aukabúnaði svo sem þráð-
lausri nettengingu, eldhúsi og
hljómkerfi.
„Það er meira að segja hola í
miðjunni fyrir fiskveiðar og svo
líka æðislegt hljómkerfi þannig að
þú getur dorgað við rúmið á meðan
þú hlustar á Elvis,“ segir Tomi. n
Kosturinn nú er sá að
markaðurinn er mun
líflegri en hann var.
Martin Chalk, formaður Samtaka
breskra atvinnuflugmanna
GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR
588 80 40
www.scanver.is
RAFMÓTORAR
10 MARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 1. FEBRÚAR 2023
MIÐVIKUDAGUR